Víkurfréttir - 26.04.2012, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGURINN 26. APRÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Bláa Lónið fagnar 20 ára af-mæli á þessu ári og í tilefni
þess bauð fyrirtækið öllu starfs-
fólki ásamt mökum, um 250
manns, í ævintýraferð á Suður-
land.
Fjölbreytt afþreying var í boði og
upplifðu starfsmenn m.a. jökla-
göngu og ísklifur á Sólheimajökli,
jeppaferð og göngu í Þórsmörk,
menningar- og sögutengda göngu-
ferð um Njáluslóðir og heimsókn
á Þorvaldseyri auk gljúfragöngu
þar sem þátttakendur tókust á við
Bleiksársgljúfur og Bleiksá í Fljóts-
hlíð.
Suðurlandið varð m.a. fyrir valinu
þar sem það svæði varð hvað verst
úti í eldgosinu árið 2010 og var það
því einkar áhugavert að heimsækja
svæðið og sjá áhrif gossins á lands-
lag og náttúru.
Ferðir og skipulagning var í
höndum hótel Fljótshlíðar og
South Iceland Adventure og tókst
öll skipulagning og framkvæmd
frábærlega. Starfsfólk Bláa Lónsins
er sammála um að það að sækja
Ísland heim er einstök upplifun
og hvetur önnur fyrirtæki og ein-
staklinga til að njóta alls þess sem
Ísland hefur upp á að bjóða.
- Fleiri myndir á vf.is
Föstudaginn 27. apríl verður tekin í notkun ný ráðn-
i n g a l au s n h j á
Reykjanesbæ en
samningur hefur
v e r i ð g e r ð u r
milli bæjarins og
Tölvumiðlunar
um innleiðingu
H3 heildarlausnar
í mannauðsmálum. Ráðninga-
lausnin er fyrsta skrefið.
Með tilkomu H3 verður auðveld-
ara að halda faglega utan um allar
umsóknir, greina, svara og ráða.
Ráðnir einstaklingar flytjast raf-
rænt inn í aðrar einingar í H3 sem
kemur í veg fyrir tvískráningar og
minnkar handavinnu.
H3 ráðningalausnin er rafræn og
umsóknir verða á vef Reykjanes-
bæjar undir laus störf og almenn
atvinnuumsókn. Frá föstudeg-
inum 27. apríl verður því eingöngu
tekið við umsóknum í gegnum
ráðningavef bæjarins og á það við
störf í allar stofnanir bæjarins sem
eru tæplega 40 talsins. Það sem
breytist fyrir umsækjandann er að
hann verður að vera með netfang
og aðgang að neti til að sækja um
starf hjá Reykjanesbæ því svarbréf
og aðrar upplýsingar berast rafrænt
á netfang umsækjanda. Starfsþró-
unarstjóri og stjórnendur stofnana
bæjarins vinna svo saman að ráðn-
ingarferlinu sjálfu.
Öll laus störf verða auglýst eins og
áður undir laus störf á vef bæjar-
ins og skulu allar eldri umsóknir
endurnýjaðar.
Guðrún Þorsteinsdóttir
Starfsþróunarstjóri
ÝMISLEGT
Búslóðaflutningar og allur al-
mennur flutningur. Er með 20
rúmmetra sendibíl/kassabíl með
lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.
Tek að mér allskonar viðgerð-
ir á bílum, sláttuvélum. Er með
greiningartölvu til að bilanagreina
margar tegundir bíla. Vanur mað-
ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð!
Uppl. S: 864 3567.
ÓSKAST
Ellilífeyrisþegi óskar eftir lang-
tímaleigu 2ja herbergja íbúð á
jarðhæð eða í lyftuhúsi. Uppl. í
síma 845 3908.
Leiguhúsnæði óskast.
Herbergi eða lítil einstaklingsíbúð
óskast vegna vinnu á Suðurnesjum.
Skammtímaleiga frá 1. eða 15. maí
til loka september 2012, hugs-
anlega lengur. Helst í Keflavík eða
Njarðvíkum. Sími 866 9794.
4ra manna fjölskylda óskar eftir
íbúð 4ra herbergja eða stærra.
Langtímaleiga. Skilvísar greiðslur.
Í Ytri-Njarðvík eða Keflavík suður.
Uppl. í síma 892 5521.
Óska eftir barnapíu
Er að leita eftir stelpu til að passa
2-3 í viku. Er með 2 börn 7 og 3
ára.Upplýsingar í síma 840 2506
Alma.
SPÁKONA
Tarot og spilalagnir.
Birna (sem var á Ljósanótt) spáir í
Keflavík. Kem einnig í heimahús.
Einstaklingar / hópar (t.d. sauma-
klúbbar). Tímapantanir í síma 616
9523.
ÞJÓNUSTA
16 manna rúta vw til leigu
Til leigu 16 manna smárúta vw,
þarfnast yf irhalningar, mjög
miklir tekjumöguleikar í sumar
í ferðamannaiðnaði. Hægt að
semja um flest. Sendið email á
airportcarrental.is@gmail.com
Trésmiður
Vandaður, reyndur trésmiður
(meistari) tekur að sér viðgerðir,
viðhald og nýsmíði. Sanngjarnt
tímaverð eða fast verð.
Sími 659 5648 Stefán Ragnar
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týndur kisi í Innri-Njarðvík
Skuggi hvarf frá Furudal á skír-
dag hann er 3 ára, svartur m/gráu.
Skuggi er hreinræktaður skógar-
köttur hann er með „ljónaklipp-
ingu“ þ.e. rakaður nema haus, rófa
og lappir. Hann er gráflekkóttur
á skrokkinn. Hann er örmerktur,
geldur og ólarlaus. Vinsamlegast
hafið samband í gsm 869 0771.
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
2ja herbergja íbúð
til leigu á mótum Keflavíkur og
Njarðvíkur. Leiguverð 80 þús. kr.
með hita og rafmagni. Óskað er eftir
3ja mánaða bankaábyrgð. Notaleg
íbúð á góðum stað. Vinsamlegast
hafið samband við Áslaugu í síma
866 0038.
Einstaklingsíbúð
Góð einstaklingsíbúð til leigu mið-
svæðis í Keflavík. Upplýsingar í
síma 821 5824.
3ja herbergja íbúð á nh í einbýli
til leigu, allur búnaður getur fylgt.
Uppl. í síma 698 7626.
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM
SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM
WWW.VF.IS896 0364
Bói Rafvirki raf-ras.is
TIL SÖLU
Til sölu verslunarhúsnæði.
Verslunarhúsnæði á besta stað á
Hafnargötu 32. 86m2, áhvílandi
5M og verð 14.5M. Ýmis skipti
möguleg.
4 x 18 tommu álfelgur til sölu.
Passa undir Mercedes Bens. Verð
70 þús. eða tilboð. Uppl. í síma
896 2888.
Hagstofa Íslands gaf út tölur fyrir ferðaþjónustuna í síð-
ustu viku og var
þar margt áhuga-
vert sem ætti að
g l e ð j a Su ð u r-
nesjamenn. Sam-
kvæmt Hagstof-
unni þá fjölgar
s e l d u m g i s t i -
nóttum á hótelum og gistiheim-
ilum á Suðurnesjunum um 27%
milli áranna 2010 og 2011. Þetta
er mesta aukning á landinu milli
ára og kemur höfuðborgarsvæðið
næst á eftir með 16% aukningu.
Sprenging í fjölgun gistirúma
Á sama tímabili fjölgar gistirúmum
á hótelum og gistiheimilum á
Suðurnesjum mikið á milli ára eða
úr 628 í 873 sem er 39% aukning.
Þessi aukning er meira í ætt við
sprengingu en venjulega fjölgun
milli ára. Þrátt fyrir þessa miklu
aukningu gistirúma milli ára þá
batnar nýting gistirúma á Suður-
nesjunum umtalsvert og fer úr
33,3% árið 2010 í 39,7% 2011 og
hefur aðeins þrisvar verið betri frá
1998. Nýtingin nú er sú næstbesta
á landinu og aðeins höfuðborgar-
svæðið er með betri nýtingu eða
45% en önnur svæði talsvert langt á
eftir. Á þessu ári (2012) fjölgar enn
hótelum og gistiheimilum. Stórt
hótel er nú að rísa við flugstöðina,
fyrsta gistiheimilið að opna í Garð-
inum, Hótel Berg hefur opnað við
Grófina í Reykjanesbæ, bænda-
gisting að Minna-Knarrarnesi á
Vatnsleysuströnd og fleira. Einnig
er í skoðun ný hótelbygging við
Bláa lónið sem gæti komist í gagnið
innan 3ja ára.
Hundrað gíga garðinn
Markaðsstofa Suðurnesja fékk
RG ráðgjöf til að telja ferðamenn
sem fóru um Reykjanesið á síðasta
ári. Þar kemur í ljós að um 110-
120 þúsund ferðamenn fara um
Hundrað gíga garðinn eða álíka
margir og um Reykjanesfólkvang
með Seltúni og Krýsuvík. Hundrað
gíga garðurinn er yst i hluti
Reykjanessins þar sem telst saman
Gunnuhver, Valahnjúkur, Reykja-
nesviti og Brú milli heimsálfa.
Hundrað gíga garðurinn býður upp
á mikla möguleika og getur tekið
á móti mun fleiri ferðamönnum.
Aðgengið að Gunnuhver er orðið
mjög gott og öruggt og sama má
segja um hina staðina. Ferðamála-
samtök Suðurnesja munu merkja
nýja gönguleið fyrir sumarið sem
nefnist 100 gíga leiðin. Áhugi er
fyrir því að endurhlaða sundlaug-
ina við Reykjanesvita og leggja að
henni vatn. Nauðsynlegt er að setja
upp þjónustuhús við Valahnjúk
til að hafa eftirlit með svæðinu og
bæta þjónustuna við ferðamenn
sem fara um Reykjanesið og um
leið að afla einhverra tekna fyrir
svæðið. Þetta svæði hefur dregið
að sér mikla athygli erlendis frá og
verður haldin hér alþjóðleg ráð-
stefna um jarðfræðiferðamennsku
(geotourism) á næsta ári þar sem
jarðfræði þessa svæðið verður sér-
staklega til umræðu.
Gott ferðasumar í vændum
Mikið og gott ferðasumar er í
vændum á Íslandi og ljóst að Suður-
nesin munu njóta þess ef marka má
bókanir á hótelum og gistiheimilum
fyrir sumarið. Upplýsingamið-
stöðin og aðrir ferðaþjónustuaðilar
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar gera
ráð fyrir mikilli umferð um flug-
stöðina eða allt að 15000 manns
á dag þegar mest verður. Við hjá
Markaðsstofu Suðurnesja horfum
því með bjartsýni fram á veginn.
Stærsti atvinnuvegur svæðisins,
ferðaþjónustan, er á blússandi
siglingu.
Kristján Pálsson framkvæmda-
stjóri Markaðsstofu Suðurnesja
Mikil fjölgun ferðamanna
um Suðurnesin 2011
Ný ráðningalausn
hjá Reykjanesbæ
Ísland sækjum það heim
– 20 ára afmælisferð starfsfólks Bláa Lónsins
n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000
Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222
Reykjaneshöfn hefur rift öllum samningum sínum
við Íslenska kísilfélagið, þar sem
félagið hefur ekki staðið við gerða
samninga.
Þetta kemur fram í tilkynningu til
Kauphallarinnar. Þar segir enn-
fremur að Reykjaneshöfn hafi
undirritað kaupsamning um lóð,
samning um lóðagjöld og hafnar-
samning við Stakksbraut 9 ehf.,
sem hyggst reisa kísilver á lóðinni
Stakksbraut 9 í Helguvík.
Að mati Reykjaneshafnar eru nýju
samningarnir ekki lakari en þeir
eldri sem gerðir voru við Íslenska
kísilfélagið.
Reykjaneshöfn riftir öllum samn-
ingum við Íslenska kísilfélagið