Víkurfréttir - 26.04.2012, Blaðsíða 22
22 FIMMTUdagUrInn 26. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
Ferðasaga
Um síðustu helgi fórum við í Keflavíkurliðinu í æfingaferð. Það
hefur tíðkast í mörg ár að lið haldi til útlanda stuttu fyrir mót til
að peppa mannskapinn upp, bæði fótbolta- og móralslega. Vinsæl-
ast hefur verið að fljúga suður á bóginn til heitari landa svo sem
Spánar og Portúgal. Við fórum ekki jafn langt suður, við fórum til
Víkur í Mýrdal.
Það var haldið af stað í sól og blíðu á sumardaginn fyrsta. Menn
fóru á einkabílum og þeir yngri drifu sig á leiðarenda á meðan
Hilmar tók sér meiri tíma og naut landslagsins með nokkrum
reyndari mönnum. Menn komu sér fyrir á Hótel Vík sem hugsaði
afbragsðvel um okkur alla helgina. Létt æfing var tekin seinni-
partinn þar sem einhverjir skokkuðu úr sér súran leik frá deg-
inum áður. Hinir spiluðu ungir á móti gömlum. Einu vonbrigðin
voru töluvert rok sem við úr Sunny Kef eigum ekki að venjast.
Ágætt að æfa sig í rokinu samt fyrir leikina upp á Skaga og út í
Eyjum. Kvöldið fór í almennt hótelhangs með tölvuleiki og spila-
stokka í aðalhlutverki. Teddi og Beggi fóru strax að vinna í því að
vera með skítugasta herbergið.
Menn mættu misferskir í morgunmatinn daginn eftir. Halli
Gumm kvartaði undan hrotum í herbergisfélaganum. Þá fékk
Maggi Þór svo heiftarlega martröð að hann og Viktor sváfu lítið
það sem eftir var ferðarinnar. Fyrri æfing dagsins var í rólegri
kantinum, Kiddi Björns skokkaði í hringi og hafði yfirumsjón
með hlutunum. Seinni æfingin var hressilegri. Við fengum að
sjá Ingó Veðurguð æfa með Sameinuðu Þjóðunum sem áður hét
Selfoss. Þeir voru einnig staddir þarna í mekka æfingaferðanna
þessa helgi. Yngri og eldri spiluðu aftur. Mesta lukku vakti Sævar
Júlíusson á föstudeginum þegar hann skilaði sér heilu á höldnu til
Víkur á Rauðu Þrumunni. Það voru ekki margir sem höfðu trú á
því en bíllinn er jafn þrjóskur og eigandinn. Um kvöldið fengu svo
nokkrir ungir drengir að kenna á visku Jóhanns Guðmundssonar
í Fótboltaspilinu.
Menn voru þreyttir á laugardeginum en hresstust fljótt við þegar
Ási mætti í stuttbuxum sem hann saumaði í 7. bekk í morgunmat-
inn. Aftur var róleg æfing fyrripartinn. Bræðurnir úr Harlem,
þeir Ísak og Kiddi, fóru í íþróttahúsið og sýndu ótrúleg tilþrif við
körfuna. Ég treysti Ísaki fyrir því að setja það á netið innan tíðar.
Þeir sem ekki voru komnir með nóg af fótbolta horfðu á enska
boltann milli æfinga. Fyrir seinni æfinguna reyndi Bojan við ís-
landsmetið í þrístökki. Hann dreif ekki í sandinn. Eldri og yngri
mættust í frábærum leik þar sem eldri fóru með sigur af hólmi
með Gunnar nokkurn Oddsson sem (h)elsta mann. Steini fékk
brunasár. Dói stóð svo fyrir æsilegasta dansleik sem sést hefur í
Vík þegar hann greip í nikkuna um kvöldið.
Á sunnudeginum var tekin ein æfing áður en haldið var heim á
leið. Jói Ben vildi reyndar horfa á Man United leikinn fyrst. Við
hinir í bílnum sögðum honum að þetta yrði hundleiðinlegur leikur
og auðveldur fyrir United í þokkabót. Hann missti af leik ársins.
Annars var þetta virkilega vel heppnuð æfingaferð. Hótelið til
fyrirmyndar, æfingaaðstaðan fín og allir á staðnum tilbúnir að
gera ferðina sem besta fyrir okkur. Hver þarf sól og strönd á Spáni
þegar þú hefur fjöllin og fólkið í Vík.
SUMARSTÖRF
Í VOGUM 2012
Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu sumarið 2012.
STÖÐUR
FLOKKSTJÓRA Í
VINNUSKÓLA
Flokkstjóri starfar undir stjórn
forstöðumanns umhverfis og
eigna. Hann stjórnar starfi
vinnuskólahóps, kennir
nemendum rétt vinnubrögð,
vinnur með liðsheild, er
uppbyggilegur og til
fyrirmyndar.
Flokkstjóri verður að hafa
bílpróf og geta hafið störf í lok
maí. Ekki er gert ráð fyrir
frítöku á vinnutímabilinu.
Flokkstjóri skal vera 20 ára
eða eldri.
SUMARAFLEYSINGAR Í
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ
Um er að ræða störf við
afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum,
laugarvörslu og annað
tilfallandi. Starfsmaður þarf að
standast hæfnispróf sundstaða,
vera stundvís og geta unnið
undir álagi.
Skilyrði er að umsækjandi sé
20 ára eða eldri. Starfsmaður
verður að geta hafið störf í
júní. Ekki er gert ráð fyrir
frítöku á tímabilinu. Unnið er á
vöktum.
UMSJÓNARMAÐUR
LEIKJANÁMSKEIÐS
Leitað að einstaklingi til að sjá
um námskeið sumarsins.
Umsækjendur þurfa að geta
skipulagt daglegt starf
námskeiðanna og stjórnað
ungmennum úr vinnuskóla
sem verða til aðstoðar á
námskeiðunum.
Skilyrði er að umsækjandi sé
20 ára eða eldri.
Vinnuskóli, félagsmiðstöð og íþróttamiðstöð eru tóbakslausir vinnustaðir.
Umsóknarfrestur er til 18. maí 2012.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.
Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur eru hvött til að sækja
um ofangreind störf.
Nánari upplýsingar um störfin veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og
forstöðumaður umhverfis og eigna gsm 893 6983.
Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvar, í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar eða
á skrifstofu Sveitarfélagsins.
Reykjanesbær hefur verið að ná ótrúlegum árangri
í Skólahreysti undanfarin ár
og í fyrra náði Myllubakkskóli
m.a. þeim merka áfanga að
sigra keppnina sem fer sífellt
stækkandi. Úrslit keppninnar í
ár fara fram í kvöld en bæði
Holtaskóli og Heiðarskóli eru með
í úrslitunum en árið 2009 sigraði
Heiðarskóli keppnina og hafnaði
í 4. sæti í fyrra. 110 skólar taka
þátt í keppninni svo árangurinn
er eftirtektarverður.
Undankeppnirnar eru 10 talsins og
eru þær svæðisbundnar, þ.e. skólar
frá sama landssvæði keppa innbyrðis
sín á milli. Einn skóli frá hverju
landssvæði öðlast þátttökurétt í
úrslitunum, en tveir árangurshæstu
(ekki endilega stigahæstu) skólarnir
af þeim sem enda í 2. sæti í sínum
riðli fá svokölluð uppbótarsæti í
úrslitunum. Heildarfjöldi skóla í
úrslitum Skólahreystis er því 12.
Liðin úr riðlinum Reykjanes og
Hafnarfjörður eru gríðarlega sterk
og nánast undatekningarlaust
komast lið úr 2. sæti þaðan i úrslitin,
og að sjálfsögðu hafa yfirleitt lið
Skólahreystibærinn
Reykjanesbær
Gr i n d v í k i n g a r t ó k u forystu í einvíginu um
Ís l a n d s m e i s t a r a t i t i l i n n í
körfubolta karla er þeir sigruðu
Þór frá Þorlákshöfn á heimavelli
sínum 93-89 á mánudagskvöld.
Grindvíkingar voru með leikinn
í hendi sér allt frá upphafi en á
tímabili komu sprækir Þórsarar
til baka með gott áhlaup og
hleyptu spennu í leikinn.
Leikurinn var hrein og klár
skemmtun í 1. leikhluta og bæði
lið sýndu á sér sparihliðarnar.
Troðslur og falleg langskot í
öllum regnbogans litum fengu
að líta dagsins ljós og áhorfendur
skemmtu sér konunglega.
Lítið var um varnarleik hjá báðum
liðum í fyrri hálfleik og þegar
gengið var til búningsklefa voru
Grindvíkingar með forystu, 56-
44 og svo virtist sem þeir væru
á góðri leið með að landa þessu.
Áfram voru Grindvíkingar með
undirtökin í 3. leikhluta en
Þórsarar settu upp skotsýningu
í upphafi síðasta leikhlutans og
þá kom spenna í leikinn. Einnig
var svæðisvörn Þórsara að stríða
Grindvíkingum. Grindvíkingar
innsigluðu sigur á vítalínunni en
með smá heppni hefðu nýliðarnir
frá Þorlákshöfn getað stolið
sigrinum. Leikurinn hafði upp
á að bjóða allt það besta sem
íslenskur körfubolti hefur fram
að færa og þrátt fyrir að tvö
öflugustu varnarlið deildarinnar
væru að mætast þá var það fyrst
og fremst sóknarleikurinn sem var
í fyrirrúmi.
Næsti leikur liðanna fer fram í
kvöld klukkan 19:15.
héðan endað í 1. sæti.
Fyrir hönd Heiðarskóla
í ár keppa þau:
Leonard Sigurðsson, Anton Freyr
Hauksson, Irena Sól Jónsdóttir og
Birta Dröfn Jónsdóttir.
Fyrir hönd Holtaskóla:
Patrekur Friðriksson, Guðmundur
Ólafsson, Sólný Sif Jóhannsdóttir
og Sara Rún Hinriksdóttir.
He l e n a Ó s k J ó n s d ó t t i r e r
íþróttakennari í Heiðarskóla en hún
á lið í Laugardalshöll í kvöld.
„Þetta er frábær árangur hjá
krökkunum og þau eru mikið að æfa
þessa dagana. Þau eru öll í sínum
íþróttum og það er nóg að gera hjá
þeim, svo hittumst við einu sinni í
viku og æfum Skólahreystigreinar,“
sagði Helena þegar blaðamaður
innti eftir þessum góða árangri
skólanna.
Af hverju eru krakkar héðan
svona góðir í Skólahreysti?
„Hér er mikill áhugi og það er orðin
dálítil hefð fyrir þessari keppni
hérna. Krakkarnir vilja standa sig
og vilja vera meðal þeirra bestu.
Það sýnir sig kannski best að við
erum með krakka í 8. bekk sem geta
varla beðið eftir næsta ári þegar þau
fá að taka þátt.“ Helena segir það
vera flott að vera í Skólahreysti og
árangurinn hafi smitað út frá sér
þannig að fleiri vilja taka þátt.“
Andlega tekur þetta á krakkana
en þau leggja mikinn metnað í
þetta allt saman. Í kvöld fer fram
bein útsending frá úrslitunum og
eðlilega tekur það á taugarnar. „Þau
finna alveg fyrir því að þau séu
að koma fram í sjónvarpinu. Það
gleymist hins vegar held ég þegar
þau eru byrjuð að keppa og stressið
fer. Tilhlökkunin er mikil og þau
vilja klára verkefnið.“
Lætin eru gríðarleg á svona
keppnum en það hvetur keppendur
áfram og gefur þeim auka orku.
„Ég held að bæði Heiðarskóli
og Holtaskóli eigi eftir að verða
ofarlega í þessari keppni, bæði liðin
eru mjög sterk,“ vert er einnig að
minnast á glæsilegt Íslandsmet
sem Jóhanna Júlía Júlíusdóttir úr
Myllubakkaskóla setti á dögunum
þegar hún tók hvorki fleiri né
færri en 177 armbeygjur. Bróðir
hennar Eyþór Ingi Júlíusson á
svo Íslandsmetið í upphýfingum,
5 8 s t y k k i t a k k f y r i r. „Vi ð
Suðurnesjamenn höfum átt mörg
Íslandsmet í Skólahreysti en þau
eru þó slegin ansi oft,“ segir Helena
en þessi tvö standa enn.
Það mætti kannski segja að
Reykjanesbær væri Skólahreystibær
og Helena getur tekið undir það.
„Kennararnir og krakkarnir hafa
metnað fyrir þessu og það skilar
kannski þessum árangri. Við eigum
flotta krakka sem eru að ná góðum
árangri í sínum íþróttum og það
skilar sér vel í Skólahreystið,“ segir
Helena að lokum en keppnin hefst
klukkan 20:00 í beinni útsendingu
á RÚV.
Stórkostleg skemmtun
í sigri Grindvíkinga