Víkurfréttir - 26.04.2012, Side 24
Með innilegu þakklæti
Ég ákvað að vera sólarmegin í lífinu um helgina, alveg eins og Sirrý á sunnudagsmorguninn. Svo miklu skemmti-
legra að hlusta á hana heldur en stjórnmálafjasið á Bylgjunni.
Alveg drepleiðinlegt til lengdar en örugglega mikilvægt. Hún
fékk aftur á móti skemmtilegt fólk í þáttinn og auðvitað stóð
Tommi í Bláa hernum uppúr. Dugnaðarforkur sem vílar
ekkert fyrir sér. Tínir ruslið eftir okkur í tonnatali, allt árið
um kring. Síðan kom hún inn á hver bæri ábyrgð á kyn-
fræðslu unglinga og mér var hugsað til blaðsíðu 82 og 83 í
náttúrufræðinni hjá Vigni kennara. Hans leiðsögn var mína eina. Og góð!
Í Sunnudagsmogganum var einnig viðtal við þessa fyrrum ljúfu þulu, sem vekur mig jafnan af værum helgarblundi með hljómþýðri röddu. Þar talar
hún um nýju bókina sem hún var að gefa út, um hvernig maður laðar til sín
það góða í lífinu. Humm, já, hvernig fer maður nú að því? Hún fékk hug-
myndina að þakka fyrir allt á meðan hún gekk út Ægisíðuna löngu. Og hvað
átti hún svo að þakka fyrir í þessu grámyglulega veðri? Jú, þakka fyrir rokið
því það tryggði henni hreint andrúmsloft. Þakka fyrir ilminn af hafinu og
fyrir að búa nálægt sjónum. Þakka fyrir að búa á eyjunni Íslandi. Síðan þá
hefur hún stundað þakklætisgöngur. Þær eru nefnilega ágætt mótvægi við
þessi stöðugu skilaboð um að við eigum ekki nóg, séum ekki nógu falleg,
nógu vel menntuð, nógu vel vaxin og svo framvegis.
Ég ákvað að taka tilboði eiginkonunnar um þakklætisgöngu um ná-grennið. Á leiðinni hugsaði ég til þessarar jákvæðu konu úr útvarpinu
og endurtók þakkir mínar til alls í lífinu. Frúin leit á mig með alveg nýju
augnaráði, vissi ekki hvert ég var að fara í málgleðinni enda með endemum
þögull að eðlisfari. Á leiðinni gekk ég framhjá rusli á víðavangi. Dagblöð,
jólatré, stuðarahorn, bjórflaska, pappamál, hamborgarabréf, hundaskítur.
Hugsaði til Tomma og ákvað að í næsta túr tæki ég ekki bara skítapoka eins
og ég er vanur fyrir hundinn, heldur og ruslapoka. Gerði eitthvað gagn í
leiðinni. Tæki jákvæða þakklætisgöngu með rusla- og skítaívafi.
Við erum vön stórkostlegu gáleysi. Áratuga löngu. Þurfti ekki Landsdóm til að komast að því. Ekki endilega refsivert en umhugsunarvert. Takk
fyrir Tommi og takk fyrir Sirrý. Við þurfum á svona fólki að halda til að
minna okkur á.
vf.is
Fimmtudagurinn 26. apríl 2012 • 17. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
*M.v. vaxtatöflu Íslandsbanka 13.04 2012
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Íslandsbanki býður hagstæð framkvæmdalán
til endurbóta á húsnæði. Lánin eru óverðtryggð
skuldabréfalán með breytilegum vaxtakjörum
samkvæmt vaxtatöflu bankans hverju sinni.
Framkvæmdalán geta numið allt að 1,5 milljónum
gegn veði og allt að 750.000 kr. án veðs.
Kynntu þér framkvæmdalán á
www.islandsbanki.is eða í næsta útibúi
Íslandsbanka.
Stjórnvöld hafa framlengt átakið ALLIR VINNA
til 1. janúar 2013
Þú getur fengið endurgreiðslu á virðisaukaskatti
fyrir framkvæmdir á árinu 2012.
Kynntu þér málið á www.allirvinna.is.
6,25% óverðtryggðir vextir*
og engin lántökugjöld
Við bjóðum
framkvæmdalán
KOMDU
Í GOLF
Í LEIRUNNI
NÝJAR
MOTTUR Á
ÆFINGASVÆÐINU.
OPIÐ TIL 22:00
JÓEL 6 HOLU
ÆFINGA-
VÖLLUR HENTAR
VEL FYRIR
BYRJENDUR
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Ólafur Ólafsson leikmaður Grindvíkinga verður fjarri góðu gamni í úrslit-
unum gegn Þór Þorlákshöfn. Hann meiddist illa á ökkla gegn Stjörnunni,
en hann var þó mættur í búning og með hækjunar á lofti og tók virkan
þátt í fyrsta leiknum í úrslitarimmunni sem lauk með sigri Grindvíkinga.
Nánar á íþróttasíðu Víkurfrétta.