Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.05.2012, Side 2

Víkurfréttir - 31.05.2012, Side 2
2 FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR Ölvaður öku- maður reyndi að stinga af á hlaupum Lögreglan á Suður- nesjum hafði um helgina afskipti af tveimur öku- mönnum sem grunaðir voru um ölvun við akstur. Annar þeirra sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, en endaði aksturinn með því að keyra á gangbrautarmerki. Hann stökk út úr bílnum og reyndi að stinga lögreglumennina af, en var handtekinn og færður á lögreglustöð. Umræddir ökumenn voru báðir sviptir ökuréttindum til bráðabirgða. Hrakti innbrots- þjófa á flótta Húsráðanda í Reykja- nesbæ brá heldur í brún þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugar- dagsins. Þar voru þá fyrir í for- stofunni tveir bláókunnugir karl- menn. Þeir tóku báðir til fótanna þegar þeir urðu húsráðandans varir og hurfu út í nóttina. Annar þeirra reyndist hafa farið inn um baðglugga við hlið forstofunnar og var að hleypa hinum inn um útidyrahurðina, þegar að þeim var komið. Þeir höfðu ekki haft ráðrúm til athafna áður en þeir hröktust á brott. TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR SKÓLASLIT Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöllinni, í dag fimmtudaginn 31. maí kl.18.00 Afhending áfangaprófsskírteina og vitnisburðar vetrarins. Íslandsbanki veitir hin árlegu „Hvatningarverðlaun“ Fjölbreytt tónlistaratriði Allir velkomnir Skólastjóri ATVINNA Leikskólinn Tjarnarsel auglýsir eftir leikskólakennurum í 100% stöðu. Þeir þurfa að geta hafið störf eigi síðar en 23. júlí nk. Einnig kemur til greina að ráða starfs- menn með aðra menntun eða með reynslu af að starfa í leikskóla. Lögð er áhersla á fjölbreytta starfs- og kennsluhætti í Tjarnarseli og megin áherslur eru á mál og læsi, lýðræði og mannréttindi, umhverfismennt og útinám. Umsóknarfrestur er til 19. júní nk., sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar veitir leikskóla- og aðstoðarleik- skólastjóri Tjarnarsels og einnig má nálgast upplýsingar um leikskólann, á vefsíðunni, www.tjarnarsel.is. DUUSHÚS SJÓMANNA- SÝNINGAR Í tilefni af 10 ára afmæli Duushúsa og Bátasafns Gríms Karlssonar verða nýjar sýningar opnaðar um sjómanna- helgina í öllum sölum Duushúsa sem allar tengjast sjómönnum eða sjómennsku. Eftirtaldar sýningar verða opnaðar laugardaginn 2. júní kl. 14:00. Allir velkomnir. Bátasalur Sýning á bátalíkönum eftir skipstjórann Grím Karlsson og tréskúlptúrum eftir skipstjórann Guðmund Garðarsson. Listasalur Millilandamyndir. Sýning á verkum úr einkasafni Matthíasar Matthíassonar, skipstjóra og Katrínar M. Ólafsdóttur. Einnig til sýnis skipalíkön af Fellunum í eigu Samskipa. Gryfjan Á vertíð. Ný sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar sem segir frá sögu svæðisins fram til 1940. Bíósalur Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar sem tengjast sjónum . Einnig er til sýnis stórt líkan af Skipasmíðastöð Njarðvíkur. ›› FRÉTTIR ‹‹ Gleymdu rúm- lega 200 þúsund í flugvél Tíu þúsund krónur í norskum seðlum, sem samsvarar um tvö hundruð og fimmtán þúsundum ís- lenskra króna, fundust þegar verið var að þrífa eina af flugvélum Iceland Express nýverið. Fundust fjármunirnir við eitt sæti flugvélarinnar. Lög- reglunni á Suðurnesjum var gert viðvart um fundinn og eru peningarnir nú í vörslu hennar. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga mótmælir hækkun launa framkvæmdastjóra Sorpeyðingar- stöðvar Suðurnesja og Kölku, þar sem hækkunin samræmist ekki almennum launahækkunum hjá sveitarfélögunum. Hörður Harðarson, bæjarfulltrúi í Vogum, bar málið einnig upp á síðasta fundi bæjarstjórnar Voga, þar sem hann hvatti bæjarfulltrúa til að taka undir bókun bæjarráðs varðandi launamál framkvæmda- stjórans. Var það samþykkt sam- hljóma í bæjarstjórninni. Bæjarráð Voga harmaði einnig á sínum fundi að hvorki aðal- né varafulltrúi sveitarfélagsins í stjórn SS hafi ekki mætt á fund stjórnar- innar. Það var einnig áréttað á fundi bæjarstjórnarinnar í síðustu viku. n Víkurfréttir óska eftir að ráða hressan og duglegan ein- stakling í auglýsingadeild blaðs- ins. Um er að ræða fullt starf. Við- komandi þarf að hafa þjónustu- lund og vera góður í mannlegum samskiptum en jafnframt að vera skipulagður og hafa aga, hörku og dugnað til að geta selt auglýsingar í miðla fyrirtækisins. Góð íslenskukunnátta er mikilvæg og kunnátta á helstu tölvuforrit sem eru nauðsynleg í samskiptum og skipulagi er nauðsyn. Umsóknir er tilgreini allar helstu upplýsingar umsækjanda sendist á Pál Ketilsson, ritstjóra, á pket@ vf.is. Vogamenn mótmæla hækkun launa framkvæmdastjóra Kölku Laust starf hjá Víkurfréttum Höfuðstöðvar Víkurfrétta flytja í Krossmóa 4 í næstu viku. Tveir kunnir bandarískir fjár-festar sem eiga stóra hluti í fyrirtækjum á borð við Twitter, Tumblr, Foursquare og Zynga (sem framleiðir m.a. Farmville- leikina) eru staddir hér á landi og tóku þátt í ráðstefnu sem fram fór á Ásbrú í Reykjanesbæ í gær. Meðal ræðumanna í gær var einnig forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson en hann hefur alla tíð sýnt uppbyggingunni á Ásbrú mikinn áhuga. Ráðstefnan, sem nefnist Start-up Iceland, var skipulögð af hópi sjálf- boðaliða undir forystu indverska fjárfestisins Bala Kamallakharan, en það er í gegnum persónuleg tengsl hans að þessir þekktu fjár- festar koma til landsins til að taka þátt í ráðstefnunni. Brad Burnham er annar stofnenda fjárfestingafyrirtækisins Union Square Ventures sem sérhæfir sig í fjárfestingum í ungum net- fyrirtækjum. Fyrirtæki hans var á meðal fyrstu fjárfestanna í sam- félagsmiðlinum Twitter, sem tæp- lega 150 milljón manna nota í dag. Burnham situr einnig í stjórn ör- bloggsíðunnar Tumblr sem nýtur vaxandi vinsælda, meðal annars á Íslandi. Í för með honum var annar kunnur bandarískur fjárfestir, Brad Feld. Feld er líklega þekktastur fyrir að hafa stofnað örfjárfestingarbúð- irnar TechStars, en raunveruleika- þættir þar sem fylgst er með ungum frumkvöðlum taka þátt í búðunum hafa verið sýndir á sjónvarpsstöð- inni Bloomberg. Brad Feld seldi eitt af fyrstu fyrirtækjunum sem hann fjárfesti í til Google og var síðan á meðal fyrstu fjárfestanna í leikja- fyrirtækinu Zynga. En Zynga er þekkt fyrir Facebook-leiki eins og Farmville og Zynga-poker. 400 manns sóttu ráðstefnuna. Ráð- stefnan var hugsað sem vettvangur til að kynnast því sem er að gerast í frumkvöðlafræðum, tækni og við- skiptum í dag og mynda tengsl við innlenda og erlenda frumkvöðla og fjárfesta. Markmið skipuleggj- endanna er að gera Startup Iceland ráðstefnuna að árlegum viðburði á Íslandi (ekki ósvipað Icelandic Airwaves) og fá áhrifamikla fjár- festa og frumkvöðla í tæknigeir- anum til að koma til Íslands og ræða saman um það nýjasta sem er að gerast í þessum heimi. Einn af eigendum Twitter og forseti Íslands á Ásbrú Brad Burnham á tali við Bala Kamallakharan sem stofnaði til Startup Iceland.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.