Víkurfréttir - 31.05.2012, Side 12
12 FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
„Það komu stundum heilu dagarnir sem
fóru bara í að kynna sveitina og þá voru
kannski tíu viðtöl yfir daginn,“ segir
Brynjar. Nanna tekur undir það og segir
að þegar um sjónvarpsviðtöl hafi verið að
ræða þá hafi ræs verið klukkan fimm á
morgnana. „Við lentum alveg í því þegar
við vorum í New York að við komum
af tónleikastað klukkan tvö um nótt og
þurftum að vakna eftir þrjá tíma til þess að
gera okkur klár fyrir sjónvarpið.“ Sveitin
kom nýverið fram í spjallþætti grínistans
Jimmy Fallon sem gerði garðinn frægan í
Saturday Night Live þáttunum vinsælu.
Eru sem sagt engir frídagar
til þess að skoða þessa staði
sem þið eruð að heimsækja?
Brynjar: „Það kemur alveg einn
og einn dagur en það er ekk-
ert allt of mikið af frídögum.“
Nanna: „Við erum svo yfirleitt sofandi
þegar við keyrum á milli borga þannig að
við vöknum á einhverjum nýjum stað og
förum beint á hótel og svo tónleikastaðinn.“
Eru þið eitthvað búin að
átta ykkur á því hvað þið
eruð í raun orðin vinsæl?
Brynjar: „Ég veit það hreinlega ekki. Þegar
maður er úti þá er maður bara í rútunni
og að spila á tónleikum og er einhvern
veginn bara í þeim heimi.“
Nanna: „Það er oft soldið
klikkað og brjálað að gera.
Stundum er það frekar
yfirþyrmandi. Svo kemur
maður heim og þá finnst
mér eins og maður núllstilli
sig, nái alveg áttum aftur.“
Hvað gerðuð þið í
fríinu hér heima?
Brynjar: „Ég fór upp í sumar-
bústað. Ég fór líka í ræktina
til að ná af mér allri pítsunni.
Nanna: „Ég bara borðaði
geðveikt mikið. Ég ætlaði alltaf
í ræktina en svo fannst mér
bara miklu betra að borða og
horfa á sjónvarpið (hlær).
Er fólk að veita
ykkur einhverja at-
hygli úti á götu?
Nanna: Nei ekki get ég sagt
það. Kannski bara þegar fólk
er að drekka, þá fer fólk að
koma til manns og tjá sig.
Brynjar: „Í Keflavík kemur
fólk til manns sem þekkir
kannski foreldra manns og
óskar manni til hamningju með
árangurinn, eitthvað í þá áttina.“
Nanna: „Það er oft þannig,
fólk vill manni voðalega vel
og óskar okkur góðs gengis.
Eru þið ekki að upplifa
drauminn að mörgu leyti?
Nanna: „Jú. Ég held að við séum í mjög
skemmtilegri aðstöðu og erum að gera
það sem við viljum vera að gera. Þetta
er sjálfsagt erfitt í einhvern tíma og
maður þarf að hafa fyrir þessu.“
Brynjar: „Þetta verður kannski auðveldara
síðar og öll þessi vinna skilar sér vonandi.
Nanna: „Maður lærir bara á þetta en
við vitum auðvitað ekkert hvað við
erum að gera núna. Við rennum frekar
blint í sjóinn með þetta allt saman.“
Brynjar: „Þetta er oft svo mikið planað
fyrir okkur, við mætum bara upp í
flustöð. Það er vel séð um okkur.“
Hvernig eru þessir tónleikastaðir
sem þið hafið verið að leika á?
Brynjar: „Þeir eru mjög misjafnir.“
Nanna: „Já. Þegar við vorum t.d. að spila í
House of blues í Boston þá voru 2500 manns
í húsinu. Það var alveg svakalegt og maður
fékk alveg fiðring í magann. Nokkrum
dögum síðar vorum við að spila fyrir 200
manns. Bara svipað og að spila á Paddy´s.“
Brynjar: „Árni í hljómsveitinni orðaði
þetta skemmtilega þegar
hann sagði eftir fyrstu tónleikana að
þetta hefði verið þannig tilfinning að við
værum orðin fræg í Boston, svo kom það
í ljós á næstu tónleikum að við vorum
bara ekkert fræg í Boston (hlæja bæði).
Framundan er mikið af tónleikahátíðum
hjá sveitinni og mikil ferðalög. Þau
koma aftur heim núna þann 5. júní í
frí en svo verða þau meira og minna
að spila í júlí, ágúst og september.
Nanna: „Við spilum á Reading og erum
núna á leið á Sasquatch og Lollapalooza.
Svo munum við spila á Newport Folk
Festival og Osheaga í Montreal, Lowlands
Festival, Pukkelpop. Ég hef bara faið á
Hróarskeldu og það var æðislega gaman.
Við erum alltaf að spyrja umboðsmanninn
okkar hvort við getum ekki spilað þar.“
Hvernig líst ykkur á Keflavík
Music Festival sem er að
hefjast í Reykjanesbæ?
Nanna: Það hljómar rosalega vel. Mér finnst
alltaf gaman þegar það er svona gróska í
gangi. Þegar svona litlar hugmyndir verða
að einhverju svona dæmi. Það þarf oft
bara hugmynd og svo að kýla á það.“
Brynjar: „Það hljómar bara virkilega vel.“
Hvernig var svo að vera í
þætti Jimmy Fallon,
væntanlega öðruvísi en
að vera á tónleikum?
Brynjar: „Já, það var rosalega spes.
Þetta gerðist svo hratt. Við vorum
búin að æfa í settinu hjá þeim
en við komum þarna snemma
um morguninn. Svo fengum við
tveggja tíma pásu og komum
seinnipartinn í förðun og loka-
undirbúning. Svo þegar þetta er að
gerast þá er stressið mikið, meira
en á venjulegum tónleikum.
Nanna: „Þetta var tekið upp og
svo spilað um kvöldið. Ég stillti
verkjaraklukkuna og sá okkur spila
í þættinum. Það var pínu skrítið
að vera í Bandaríkjunum að horfa
á okkur spila hjá Jimmy Fallon.“
Í lok júní kemur hljómsveitin
fram í sjónvarpsþætti Jay Leno
en hann hafa þau horft á síðan
þau voru krakkar. Þau hlakka
mikið til þess. „Þá kemur í
ljós hvort hann sé til í alvör-
unni,“ segir Nanna og hlær.
Þegar þau komu fram í
sjónvarpsþætti Fallon var
leikkonan Cameron Diaz
einn gestanna og langaði
strákana í hljómsveitinni
að hitta skvísuna.
Brynjar: Ég, Ragnar og
Arnar ætluðum að fá mynd
af okkur með Cameron
Diaz og fórum fyrir utan
búningsherbergi hennar.
Hún kom svo út og heilsaði okkur en það
eina sem kom upp úr okkur var stuna úr
Arnari. Þetta var ógeðslega vandræðalegt.
Það var mjög fyndið að sjá einhvern
sem maður hefur séð í ótal bíómyndum
labba bara framhjá manni og heilsa.“
Nanna: Við hittum líka Mark Hoppus bassa-
leikara úr Blink 182. Ég var svakalegur
aðdáandi þegar ég var yngri og fékk alveg
stjörnur í augun. Strákarnir voru svo alltaf
að segja við hann að ég elskaði hann, ég
neitaði því nú þrátt fyrir að það sé að ein-
hverju leyti satt,“ segir Nanna og hlær.
Hvert er framhaldið hjá ykkur?
Nanna: „Við verðum út árið og örugg-
lega eitthvað fram á næsta ár að spila þetta
efni. Við erum öll í sitthvoru horninu að
semja eitthvað efni. Við förum sennilega
ekki að æfa og taka upp efni fyrr en ein-
hvern tíma eftir áramót. Kannski er það
bara ágætt og við höfum úr fullt af hug-
myndum að velja þegar við setjumst niður.“
Brynjar: „Plata númer tvö er alltaf
mesta vesenið, er það ekki?“
Hvernig er það, eruð þið ekk-
ert þreytt á lögunum ykkar,
t.d. Little talks sem þið hafið
væntanlega spilað gríðarlega oft?
Brynjar: „Það er auðvitað alger klisja
en maður finnur alltaf mismunandi
strauma frá áhorfendum hverju sinni.“
Nanna: „Þegar við spilum það lag þá
missir fólk alveg vitið og þá verður þvílíkt
stuð og allir syngja með. Það er því
alltaf frekar gaman að spila það lag.“
Þið náið alveg að halda
ykkur á jörðinni?
Brynjar: Já ég held það sko (hlær). Við
höfum lent nokkrum sinnum í því að
fólk vilji fá mynd af sér með okkur utan
tónleika. Það er óneitanlega skrýtið að
einhver þekki mann í útlöndum.“
Nanna: „Við erum ekkert að lenda í því
að fólk sé að elta okkur á götum úti.“
Hvað finnst ykkum um alla
þessa umfjöllun um hljóm-
sveitina hér heima?
Nanna: „Þetta er stundum fyndið
hvað allir eru spenntir og hvað
öllum finnst þetta gaman.“
Er einhver pressa á ykkur?
Nanna: „Já alveg pínu sko. Á síðustu
tónleikaferð þegar platan okkar fór í 6.
sæti Billboard listans þá var ég að tala
við vini mína heima sem sögðu mér að
við hefðum verið í fréttunum daglega
í tvær vikur, það var soldið fyndið.“
Krakkarnir drifu sig svo til hinna í
hljómsveitinni sem væntanlega voru
komin í Fríhöfnina eða á barinn.
Viðtal og myndir:
Eyþór Ssæmundsson
Frægðarskrímslið
handan við hornið
- hjá Of Monsters And Men
Þau nanna Bryndís hilmarsdóttir söngkona og Brynjar leifsson gítarleikari hljómsveitarinnar of monsters and men eru orðin þrælvön viðtölum og kipptu sér lítið upp við það þó útsendari víkurfrétta hafi klófest þau í Flugstöð leifs Eiríkssonar áður en þau héldu af stað vestur um haf í síðustu
viku. hljómsveitin hefur verið mikið á ferðinni að undanförnu en þau voru að ljúka kærkomnu fríi hér heima á íslandi og á leið í aðra tónleikaferð.
vinsældir sveitarinnar eru sífellt að aukast og er sveitin oft talin á barmi hinnar margrómuðu heimsfrægðar.