Víkurfréttir - 31.05.2012, Page 16
16 FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Kaffihúsið Bryggjan var stofnað árið 2009 er þeir
bræður Aðalgeir og Kristinn
Jóhannssynir fundu fyrir sam-
drætti á netaverkstæði sínu sem
er til húsa í sömu byggingu og
hýsir nú kaffihúsið vinsæla við
höfnina í Grindavík.
„Við höfðum upphaflega nóg að
gera með okkar netaverkstæði
sem var hér til húsa. Síðan hefur
orðið breyting á sjávarútveginum
hérna í Grindavík og eru nánast
allir okkar kúnnar farnir héðan
burt. Verkefnastaðan hjá okkur
minnkaði og því varð að reyna
að finna upp á einhverju nýju að
gera,“ segir Kristinn er hann sest
niður með blaðamanni Víkurf-
rétta.
Kristinn segir að þeir bræður
hafi orðið varir við það að ferða-
mönnum væri sífellt að fjölga í Grindavík og stað-
setningin á húsnæðinu hafi talist góð til þess að reka
kaffihús. „Það var ekkert svona í Grindavík og okkur
datt í hug að láta reyna á þetta. Við vissum ekkert hvað
kaffihús snerust um, og vitum það kannski ekki enn,“
segir Kristinn en hann segir það hafa verið haft að
leiðarljósi að koma með eitthvað svona nýtt og spenn-
andi í heimabyggðina, stað sem fólk gæti komið á og
fengið sér kaffi og kökur.
Meira er gert en að selja kaffi og blómstar menning
í kaffihúsinu við höfnina. Þarna er flutt tónlist og
horft á fótbolta og svo hafa farið þarna fram skemmti-
legar umræður sem kallast milliliðalaust á Bryggj-
unni. „Þetta snýst um það að þá koma hér aðilar og
ræða ýmis málefni. Hér hafa t.d. allir bæjarfulltrúar
komið og svarað spurningum
bæjarbúa,“ en þessar umræður
fara alltaf fram á miðvikudags-
morgnum. Kristinn segir að þar
skapist sérstakt návígi við þá að-
ila sem sitja fyrir svörum en þar
á meðal hafa verið þingmenn og
ráðherrar. „Menn eru ófeimnir
við að spyrja og allt er leyfilegt,
svo lengi sem það sé innan þess
ramma sem menn kalla manna-
siði,“ segir Kristinn. Hann segir
spurningarnar oft vera hvassar
og stundum sé tekist á svo úr
verður lífleg morgunstund.
A n d r ú m s l o f t i ð h j á þ e i m
bræðrum er frekar frjálslegt og er
bæjarbúum frjálst að koma með
ljósmyndir og aðra muni til þess
að hengja upp á veggina. Þannig
er saga Grindavíkur að einhverju
leyti skráð á veggi Bryggjunnar
en einnig er þar athuglisverð tafla með ýmsum nöfnum.
Þar getur að líta aflakónga Grindavíkur frá árinu 1945
til ársins 1984, það var árið þegar kvótakerfið kom á,
en áður kepptust menn um að veiða sem mest og var
mikill heiður að verða aflakóngur. Geta þeir bræður
þulið upp sögu hvers og eins aflakóngs og söguna bak
við mennina og bátana ef gestir óska þess.
Alltaf er boðið upp á súpu í hádeginu og er humar-
súpan á staðnum sérstaklega vinsæl. Það er virkilega
heimilislegt um að litast á kaffihúsinu og ekki skemmir
útsýnið fyrir en þar blasir höfnin við í öllu sínu veldi.
Kristinn segir erlenda ferðamenn sérstaklega hrifna
af því að sitja þarna og fylgjast með lífinu við höfnina
enda ekki mörg kaffihúsin í heiminum sem státa af
svona umhverfi. n
„Þetta er búið að vaxa jafnt og
þétt síðan við byrjuðum fyrir
rúmum fimm árum. Það eru
þrír í fastri vinnu en það getur
farið upp í alveg 15 manns sem
starfa í kringum þetta um helgar
þegar mest lætur,“ segir Kjartan
Sigurðsson hjá Fjórhjólaævintýri
í Grindavík. Fyrirtækið sérhæfir
sig í að taka á móti hópum af
öllum stærðum og skipuleggur
allt frá óvissuferðum til árshátíða
og fjölskylduhátíða. Ferðirnar eru
tilvaldar fyrir vinnustaðahópa,
vinahópa, fjölskyldur og alla þá
sem áhuga hafa á hreyfingu og
útiveru.
Kjartan segir að það sé nokkuð
jafnt flæði í aðsókninni árið um
kring og því séu þeir heppnir að
því leyti, en Kjartan á fyrirtækið
ásamt Jakobi Sigurðssyni bróður
sínum og Sigurði Óla Hilmarssyni.
„Það er sem sagt ekki alger geðveiki
hjá okkur á sumrin og við erum
kannski frábrugðnir öðrum ferða-
þjónustufyrirtækjum að því leyti.“
Að vísu er meira að gera á sumrin
en þá sæki einstaklingar meira í að
komast í fjórhjólatúra, en hópar á
veturna.
Eru þetta aðallega erlendir ferða-
menn?
„Núna eru þetta meira Íslendingar
en svona að jafnaði þá eru þetta 60-
70% erlendir ferðamenn.
„Við fáum ekki beint fólk vegna
Lónsins en megnið af okkar
kúnnum fara líka þangað. Maður
bjóst við því að meira fólk kæmi
þaðan en það virðist ekki vera. Fólk
er hugsanlega að nýta daginn alveg
í Lóninu.“
Kjartan segir leiðirnar allar vera
mjög flottar en Sandvíkin þar sem
Clint Eastwood tók upp á sínum
tíma er þó í aðalhlutverki. Brúin
milli heimsálfa er líka afar vinsæl.
„Það virkar vel á útlendingana að
sjá hvar flekarnir rísa upp og geta
labbað yfir brúna. Þeir sem eru að
fara gullna hringinn finnst gaman
að sjá muninn á flekunum á Þing-
völlum og hérna hjá okkur.
En hvernig er sumarið fram-
undan?
„Ég held að það verði mjög gott
og nú þegar eru komnar nokkuð
af bókunum.“ Fyrirtækið sér ekki
eingöngu um fjórhjólaferðir heldur
er t.d. boðið upp á hellaskoðanir,
fjallahjólaferðir og hópefli.
„Við erum með átta skipulagðar
ferðir á dag og þær eru frá klukku-
tíma og upp í sjö tíma. Svo er hægt
að fá einkaferðir hvenær sem er.
Svo vorum við að bæta við ansi
skemmtilegu tæki en það er fjög-
urra manna Buggy-bíll sem er einn
sinnar tegundar. Það er flott tæki
til þess að ferðast um hálendið og
í sandi.“
Jakob segir að aukningin hafi verið
um 35% á hverju ári síðan þetta
ævintýri byrjaði hjá þeim og alltaf
sé jafn gaman að fást við þetta.
„Þetta er fjölbreytt starf og maður
er alltaf að hitta nýtt fólk.“ Jakob
segir hópeflið verða sífellt vinsælla
en þar þarf fólk að leysa ýmsar
þrautir í sameiningu og keppir inn-
byrðis. „Fólk verður þá oft æst og
uppveðrað þegar keppni er í spil-
unum.“
Jakob er sammála því að Grindavík
sé í auknum mæli að verða vinsæll
ferðamannabær enda sé þar mikið
af náttúruperlum. Jakob segist
líka sjá í auknum mæli að Suður-
strandarvegurinn sé að koma með
aukna umferð til Grindavíkur og
Suðurnesjanna allra, sem eru bara
jákvæðar fréttir fyrir svæðið.
n
LEIKJANÁMSKEIÐ
Námskeið 6 – 9 ára og 10 - 12 ára: (Tvö aðskilin námskeið)
Námskeið 1: 06. júní - til 15. júní
Námskeið 2: 18. júní - 29. júní
Námskeið 3: 02. júlí - 13. júlí
Námskeið 4: 16. júlí - 27. júlí
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6–12 ára (fædd 2006 og fyrr) þar sem viðfangsefnin eru
skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru. Þátttakendur eiga að hafa með sér hollt og gott nesti og
í samræmi við lengd viðveru.
Miðað er við að börnin séu í virkri dagskrá frá kl. 09:00 - 16:00.
Hægt er að kaupa gæslu frá kl. 08:00 - 09:00 og frá kl. 16:00 - 17:00.
Leikjanámskeiðin munu hafa aðsetur í skólaseli Hópsskóla.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is
Umsóknareyðublöðum skal skilað á bæjarskrifstofuna.
Umsóknarfrestur fyrir fyrsta námskeið er til hádegis þriðjudaginn 5. júní.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Á VEGUM GRINDAVÍKURBÆJAR SUMARIÐ 2012
Kaffihús með sérstöðu og sál
Ævintýri við náttúru-
perlur Grindavíkur
›› Fjórhjólaævintýri í Grindavík:
›› Bræðurnir á Bryggjunni í Grindavík:
Úr fjórhjólaferð austan Grindavíkur á fallegum degi.