Víkurfréttir - 31.05.2012, Side 24
Ekki á allt kosið
Hér í sumarhúsahverfinu á Spáni ríkja sérlög og reglur. Fimm-tíu húsa hverfiseining skipar með sér nefnd, sem hefur sinn
forseta, varaforseta og vara varaforseta. Við búum við hliðina á
Bessastöðum. Miguel forseti ræður ríkjum hér. Sennilega bróðir
San Miguel, bjórframleiðanda, sem selur okkur mjöðinn á slikk.
Ég kann vel við að hafa hann hérna við hliðina á okkur. Passar upp
á að allt sé í góðu lagi og skipar fyrir, ef honum finnst ekki farið
eftir reglunum. Við urðum að saga sítrónutréð af því það skagaði
inn á lóðina hans. Alveg niður í rót. Eina tréð okkar í garðinum. Farið.
En nú eru kosningar í nánd í hverfi sjö. Forsetakosningar. Atkvæðaseðlum var dreift í hús og þeim á síðan að safna saman í byrjun ágúst. Ég tjáði honum að við
yrðum farin. Hann skilur ekki ensku. Ég tala ekki spænsku. Vantar Írisi mína. Þurfti
leiðbeiningar við að fylla út kjörseðilinn. Hann hjálpaði mér við það. Nafn ábúend-
ans og húsnúmer komst ég í gegnum. En hverjir eru í kjöri? Hann hjálpaði mér við
það líka. Kaus fyrir mig. Sjálfan sig. „El presidente“ sagði hann og barði sér á brjóst.
Benti á spænska fánann, sem blakti við hún á Bessastöðum. Ég fylltist lotningu við
þetta ágæta kosningakerfi. Algerlega eftir sérlögum og reglum hverfisins.
Ekki allt búið ennþá. Hann kom því áleiðis að árgjöld hverfisins yrðu að greiðast fyrir haustið. Níu þúsund krónur, íslenskar. Eitthvað færri evrur. Staðgreitt.
Kvittun og stimpill frá forsetanum gildir. Dugar fyrir raflýsingu í götunni, ruslagámi
úti á götuhorni og grasslætti á mönum við gangstéttarnar. Ákvörðun um aðra kúpla
á ljósastaurunum var tekin fyrir nokkrum árum og um það var kosið. Á íbúafundi
eins og hjá Árna bæjó heima. Meirihlutinn valdi laglega vasalaga kúpla með svartri
trjónu. Miklu flottara en hjá hinum, sem eru bara með kúlulaga kúpla. Hverfi sjö
vildi bera af.
Nú flokkum við ruslið líka. Dósir og flöskur í ávala gáma. Ruslið í kistulaga. Nýtilegt eða nothæft er lagt við hliðina. Hverfur yfirleitt á augabragði. Túpu-
sjónvarpið fékk að fjúka. Dýnur og annað dót, sem komið var til ára sinni fór sömu
leið. Nokkrum stundum síðar heyrðust hróp og skrækir. Einhverjir komust í góssið.
Tóku það fegins hendi. Máttu það. Okkur leið vel á eftir. Grundig imbakassinn
nýtist annars staðar. Fjarstýringin fylgdi með batteríum. Og nú sefur einhver í
gamla bælinu. Okkar.
vf.is
Fimmtudagurinn 31. maí 2012 • 22. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr KOMDU
Í GOLF
Í LEIRUNNI
NÝJAR
MOTTUR Á
ÆFINGASVÆÐINU.
OPIÐ TIL 22:00
JÓEL 6 HOLU
ÆFINGA-
VÖLLUR HENTAR
VEL FYRIR
BYRJENDUR
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
BrjálAð verð
husa.is
á GArðdöGum, hefst á fimmtudAG
sláttuvél
verð áður: 29.995 kr.
Nú: 23.995 kr.
10%AfslátturAf öllum GArðhúsum
verðdæmi
Allt frá GruNNi Að Góðu heimili
síðAN 1956
hluti af Bygma
mikið úrvAl, Al
lt fyrir GArðiN
N!
Víkurfréttir vantar starfsmann
í sölu og móttöku auglýsinga
Óskum eftir að ráða hressan og duglegan einstakling
í auglýsingadeildina okkar. Um er að ræða fullt starf.
Viðkomandi þarf að hafa þjónustulund og vera góður
í mannlegum samskiptum en jafnframt að vera skipu-
lagður og hafa aga, hörku og dugnað til að geta selt
auglýsingar í miðla fyrirtækisins.
Góð íslenskukunnátta er mikilvæg og kunnátta á helstu
tölvuforrit sem eru nauðsynleg í samskiptum og skipu-
lagi er nauðsyn.
Umsóknir er tilgreini allar helstu upplýsingar umsækj-
anda sendist á Pál Ketilsson, ritstjóra, á pket@vf.is.
Skrifstofur Víkurfrétta flytja innan tíðar á
4. hæð í Krossmóa 4. Þetta er útsýnið þaðan.