Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2012, Side 7

Víkurfréttir - 14.06.2012, Side 7
7VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 2 -0 8 9 2 Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Konur á öllum aldri eru hvattar til þess að hreyfa sig reglulega og vera hluti af íþróttahreyfingunni sem iðkendur, leiðtogar, sjálfboðaliðar eða foreldrar. HITTUMST Í KVENNAHLAUPINU LAUGARDAGINN 16. JÚNÍ GANGA EÐA SKOKK – ÞÚ RÆÐUR HRAÐANUM Munum brjóstahaldara- söfnunina HREYFING TIL FYRIRMYNDAR Hlaupið er á eftirtöldum stöðum á svæðinu: Vogar: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinn kl. 11.00. Vegalengd: 2,7 km. Forskráning í Íþróttamiðstöðinni á opnunartíma. Frítt í sund að loknu hlaupi. Reykjanesbær: Hlaupið frá Húsinu okkar í Keflavík kl. 11.00. Vegalengdir í boði: 2 km, 4 km og 7 km. Forskráning 14. og 15. júní milli kl. 17 og 19 í Húsinu okkar, Hringbraut 106. Frítt í sund að loknu hlaupi. Grindavík: Hlaupið frá Sundlaug Grindavíkur kl. 11.00. Vegalengdir í boði: 3,5 km og 5 km. Forskráning í sundlauginni á opnunartíma frá 11. júní. Ávextir í boði að loknu hlaupi. Garður: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni í Garði kl. 11.00. Vegalengdir í boði: 2 km, 3,5 km og 5 km. Forskráning í Íþróttamiðstöðinni á opnunartíma. Frítt í sund að loknu hlaupi. Nánari upplýsingar á sjova.is. Þátttökugjald er 1.250 kr. Slöngutengjasett með úðabyssu Q308 590,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum Fyrir garðinn WZ-9006 Greinaklippur 690,- Þrýstiúðabrúsi 1 líter WZ-4001 495,- 1/2” slanga 15 metra með byssu og tengjum 1. 390,- WZ-9019 Greinaklippur 1.490,- Slöngutengjasett með úðara WZ-9304 395,- Slöngusamtengi 98,- (mikið úrval tengja) WZ-9008 Hekk klippur 8” 1.690,- Garðkanna 5 L 695,- 208 3ja arma garðúðari 325,- Þrýstiúðabrúsi 5 lítrar WZ-6004 1.590,- Í grein sinni um rekstur Dvalarheimila á Suður-nesjum fer Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjar- stjórnar í Vogum, mikinn um árs- reikninga Garðvangs og Hlévangs. Hún hefur mikinn áhuga á lífeyris- greiðslum til framkvæmdastjóra sem hún spurði um á aðalfundi DS en fékk að sögn ekki nógu skýr svör. Venja er að þegar fundarmenn telja skýringar ekki nægjanlegar sé kallað eftir frekari upplýsingum á fundinum og er þá brugðist við með viðeigandi hætti. En það að kalla eftir upplýsingum 9 dögum síðar í fjölmiðlum er ný nálgun sem ég hef ekki upplifað áður. Inga Sigrún fullyrðir að ríkið hafi hafnað umræddum lífeyrisgreiðslum, fjárhagsnefnd SSS og stjórn SSS sömuleiðis. Einnig fullyrðir hún að málið hafi ekki verið afgreitt í stjórn DS. Allar þessar fullyrðingar eru rangar. Málið var kynnt stjórn DS sl. haust og var afgreitt á fundi 15. sept. 2011. Hvorki ríkið, fjárhags- nefndin eða stjórn SSS hafa fengið málið sérstaklega til umfjöllunar þannig að ég fæ ekki séð hvernig til- greindir aðilar gátu hafnað því. En eftir að hafa kveðið upp sinn stóradóm spyr hún um málsatvik. Yfirleitt er byrjað á því að rannsaka mál ef ástæða þykir og því næst eru gögn skoðuð. Eftir að hafa rýnt í gögn og metið aðstæður er síðan kveðinn upp dómur en Inga Sigrún kýs að hafa hinn háttinn á. Það þykir nú ekki til siðs að hafa launamál einstakra starfsmanna til umfjöllunar á opinberum vettvangi en ég skal reyna að skýra ferlið í málinu. Árið 2002 greinir Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins framkvæmdastjóra DS frá því að hann fengi ekki lífeyrisgreiðslur í samræmi við ráðningarsamning og innborgaðan lífeyri þrátt fyrir að hafa móttekið lífeyrisgreiðslurnar um árabil. Stjórn DS mótmælti þessari ákvörðun og staðfesti gagnvart framkvæmda- stjóra að samningur sem starfsmenn DS gerðu við LSR frá 1980 yrði virtur þrátt fyrir þessa túlkun LSR. LSR hafnaði þessari kröfu formlega árið 2007 og var þá líf- eyrinn endurreiknaður allt til ársins 1998. Málið var tekið upp aftur í stjórn DS 2008 þar sem ákveðið var að láta dómstóla skera úr um ákvörðun LSR. DS tapaði málinu og endurgreiddi LSR þá DS ofgreiddar lífeyris- greiðslur til 10 ára. Óumdeilt var að DS þurfti hins vegar að standa skil á samningum við framkvæmda- stjóra félagsins í samræmi við ráðningarsamning og ákvarðanir stjórnar DS allar götur frá því á síðustu öld. Í kjölfarið var leitað til Talnakönnunar til að fyllsta rétt- lætis væri gætt en þeir eru sérfræðingar í úrlausn svona mála. Þegar sá útreikningur lá fyrir var óskað eftir því af mér að hann væri sannreyndur af PWC, endurskoð- anda DS. Greiðslan var síðan framkvæmd með fullri vitund stjórnar DS og endurskoðandi DS fenginn til að hafa umsjón með frágangi greiðslunnar sem hann og gerði. Hér er verið að gera upp gamalt mál og reikna greiðslur til framtíðar og varðandi framsetningu í árs- reikningi var algerlega treyst á endurskoðendur. Inga Sigrún hefur á ýmsum stigum málsins getað aflað sér upplýsinga um allar þær spurningar sem hún kýs að viðra á síðum Víkurfrétta. Allt frá því málið var tekið fyrir af stjórn DS í haust og þangað til á aðalfundinum. En því miður kýs hún að fara leið tortryggninnar sem er allt of ríkjandi í dag. Það eru spennandi tímar framundan í öldrunarþjón- ustunni og við þurfum að einbeita okkur að því að koma hjúkrunarheimilunum í gott horf í stað þess að standa í þessum hnútuköstum. Baldur Þ. Guðmundsson formaður stjórnar DS ›› Baldur Þ. Guðmundsson, formaður stjórnar DS skrifar: Málefni DS Víkurfréttir hafa flutt ritstjórnarskrifstofur blaðsins að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.