Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2012, Síða 9

Víkurfréttir - 14.06.2012, Síða 9
9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs samþykkti á síðasta fundi sínum með fimm atkvæðum að óska eftir fundi með fulltrúum Reykja- nesbæjar til að ræða hugmyndir um mögulega sameiningu sveitar- félaganna Garðs, Sandgerðis og Reykjanesbæjar. Það voru fulltrúar D-listans, sem skipar minnihlutann í Garði, sem lögðu fram tillögu þess efnis að óska eftir viðræðum við Reykjanesbæ. Tillagan þeirra var samþykkt með öllum atkvæðum minnihlutans og tveimur at- kvæðum meirihlutans. Tveir fulltrúar meirihlutans sátu hjá. Garðmenn vilja ræða sam- einingu við Reykjanesbæ ›› Blikksmiðja Jóa og Blikksmiðja Davíðs undir sama þaki: Blikksmiðir Tveir blikksmíðameistarar hafa sameinað krafta sína í blikksmiðju á Ásbrú í Reykja- nesbæ. Jóhann Ingason hefur rekið Blikksmiðju Jóa í nokkur ár að Klettatröð 5 á Ásbrú. Þar var áður blikksmiðja Íslenskra aðalverktaka og þar hafði Jóhann starfað síðan 1972. Þegar Davíð R. Sigurðsson blikk- smíðameistari var að leita sér að húsnæði fyrir sína starfsemi lágu leiðir þeirra Jóhanns og Davíðs saman. Jóhann var einn í stóru blikksmíðaverkstæði við Klettatröð og þar var pláss fyrir annan blikk- smið. Jóhann þekkti til Davíðs og sagði orðspor hans gott og því var ákveðið að þeir deildu saman verk- stæði. Þar starfa þeir nú hlið við hlið, vinna báðir sjálfstætt en bjóða einnig saman í stærri verkefni. Í samtali við Víkurfréttir sögðu þeir félagar að verkefnastaðan væri með ágætum og nóg að gera fram- undan. Starfsmenn fyrirtækjanna væru tveir til fimm eftir verkefnum en blikksmiðjurnar taka að sér alla almenna blikksmíðavinnu og skiptir þá engu hvort um er að ræða klæðningar, loftræstikerfi eða aðra sérsmíði. Þeir sem vilja setja sig í samband við blikksmiðina, þá er Jóann með síma 660 6200 og Davíð er í síma 861 0592. Blikksmiðir sameinast á Ásbrú Jóhann Ingason og Davíð R. Sigurðsson blikksmíðameistarar í húsakynnum sínum á Ásbrú í Reykjanesbæ. 1 2 -1 2 9 4 - H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Isavia óskar eftir kraftmikilli manneskju í starfsmannaþjónustu Isavia á Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða kraftmikinn og áhugasaman starfsmann í starfsmannaþjónustu til að sjá um launa- og starfsmannamál. Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf í fjölbreytilegu og alþjóðlegu umhverfi. Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna. Hjá Isavia starfa um 630 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru að sjá um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlands jafnt sem millilandaflug auk yfirflugþjónustu fyrir Norður - Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa. Starfssvið: • Launavinnsla • Umsjón með tímaskráningarkerfi • Uppfærsla starfsmannaskrár • Móttaka atvinnuumsókna, aðstoð við viðtöl og undirbúningur móttöku nýrra starfsmanna • Þróunarvinna í mannauðskerfi, ásamt ýmsum tölfræðilegum greiningum • Innkaup og utanumhald um einkennisfatnað starfsmanna • Vinna við innri vef, starfsmannahandbók o.þ.h. • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun æskileg • Reynsla af launavinnslu er skilyrði • Reynsla af starfsmannamálum er æskileg • Þekking og reynsla af tímaskráningarkerfi • Færni í Excel og Word forritum ásamt góðri þekkingu á helstu tölvuforritum • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð Áhersla er lögð á að umsækjandi hafi mikla samskiptahæfileika með góða og örugga framkomu. Umsóknir Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. Umsóknum skal skilað rafrænt á: www.isavia.is/atvinna. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní. Upplýsingar um starfið veitir Sóley Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri í Keflavík, soley.ragnarsdottir@isavia.is og Róberta Maloney, deildarstjóri kjaramála, roberta.maloney@isavia.is.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.