Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.06.2012, Side 15

Víkurfréttir - 14.06.2012, Side 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 14. júNí 2012 útspark Ómar JÓhannsson Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn. af bekknum á em Nú er EM byrjað í allri sinni dýrð. Aðeins heimsmeistarakeppnin toppar þetta stórkostlega mót. Þarna mætast flest af bestu liðum í heimi, það er í raun bara Brasilía og Argentína sem maður saknar. Og mótið fer vel af stað. Reyndar var ég að horfa á mína menn í Svíþjóð tapa sínum fyrsta leik. Eftir að hafa séð leik Frakka og Englendinga þá held ég samt að þeir eigi ennþá möguleika að fara áfram. Svíþjóð hefur verið mitt lið síðan að ég bjó þar í nokkur ár. Ég flutti þangað á sautjánda ári til þess að spila með Malmö FF. Þar var ég í þrjú ár. Þarna voru margir góðir fótboltamenn og 2 af þeim spila í sænska landsliðinu í dag. Marcus Rosenberg og Zlatan Ibrahimovic. Á þeim tíma bjóst maður samt ekki við að þeir myndu eiga jafn farsælan feril og raun hefur verið. Þegar ég kem út spila ég með unglingaliði Malmö FF sem var skipað 17 og 18 ára strákum. Marcus Rosenberg er einu ári yngri en ég og spilaði þá fyrir 16 ára liðið. Hann var hægri bakvörður og ég verð að viðurkenna að ég hefði sjálfsagt ekki vitað hver hann var ef við hefðum ekki lent í sama bekk í skóla. Það fór ekki mikið fyrir hæfileikunum á fótboltavellinum. Þegar ég er svo á eldra ári í unglingaliðinu og hann á því yngra komst hann ekki einu sinni í liðið. Hann spilaði með varaliðinu og var þá farinn að fá sénsinn sem framherji. Þegar hann er svo á eldra ári í unglingaliðinu slær hann loks í gegn sem framherji. Hann verður markakóngur ung- lingadeildarinnar og er færður upp í aðalliðið. Þar spilaði hann í nokkur ár en sló í gegn í meistaraflokki þegar hann var lánaður til Halmstad. Þaðan lá leiðin aftur til Malmö, svo til Ajax og þá til Werder Bremen þar sem hann spilar í dag. Zlatan Ibrahimovic þarf varla að kynna fyrir neinum sem eitt- hvað fylgist með fótbolta. Hann er einn af bestu framherjum heims síðustu ár og virðist bara verða betri með árunum. Við erum jafnaldrar og fylgdumst þess vegna að í gegnum unglinga- liðið. Það var samt þannig að fyrsta árið mitt hjá Malmö þá spilaði hann lítið. Hann þurfti að sætta sig við að vera mest á bekknum þar sem að aðrir framherjar gengu fyrir. Við vorum vissulega með gott lið og urðum sænskir meistarar það árið. Það var samt augljóst að Zlatan hafði hæfileika en það höfðu aðrir leikmenn líka. Zlatan var ekki nógu stöðugur og spilaði ekki nógu mikið fyrir liðið að mati þjálfaranna. Það var ekki fyrr en árið eftir sem að hann fékk að spila reglulega í unglingaliðinu. Um haustið var hann svo fyrst færður upp í aðalliðið og árið eftir sló hann svo í gegn með þeim. Þaðan lá leiðin til Evrópu og sögu hans eftir það þekkja flestir. Níu deildarmeistaratitlar á níu árum með fimm mismunandi liðum talar sínu máli. Þó að þeir séu að mörgu leyti ólíkir eiga þeir það sameiginlegt að hafa ekki komist í lið þegar þeir voru 17 ára. Vissulega hefur Zlatan náð töluvert lengra á sínum ferli en Marcus en þeir hafa samt báðir átt flottan feril. Sérstaklega í ljósi þess í hvaða stöðu þeir voru þegar þeir voru yngri. Einhverjir hefðu ef til vill gefist upp. Farið í fýlu yfir því að vera ekki í liðinu. Ekki þeir. Þeir höfðu trú á sér og því sem þeir voru að gera. Það geta ekki allir orðið besti leikmaður í heimi. Ef maður hefur samt trú á sér og gefst ekki upp er aldrei að vita hvar maður endar. LJÓSANÆTUR- SÝNING LISTA- SAFNSINS 2012 – ALLIR SAMAN NÚ! SUMARHÁTÍÐ Á NESVÖLLUM 14. JÚNÍ KL. 14:00 Sú venja hefur skapast á Ljósanótt undanfarin ár að heimafólk hefur verið í aðalhlutverki á sýningu Listasafnsins í listasal Duushúsa. Í ár er ætlunin að þar verði stór samsýning listamanna af Suðurnesjum. Leitað er eftir verkum af öllum tegundum myndlistar, tvívíðum og þrívíðum verkum, málverkum, vatnslita- myndum, teikningum, ljósmyndum, skúlptúrum, hefðbundinni list og óhefðbundinni og í raun öllu því sem getur fallið undir víðustu skilgreiningu myndlistar. Skilyrðin fyrir þátttöku eru aðeins tvö; að listafólkið hafi náð 18 ára aldri og eigi lögheimili á Suðurnesjum. Markmið sýningarinnar er að sýna hina miklu grósku myndlistar á svæðinu og vonast er eftir að breiddin verði sem mest, atvinnulistamenn og áhugamenn á öllum aldri blandist í sköpuninni á eftirminnilegan hátt. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni eiga að senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið listasafn@reykjanesbaer.is fyrir 25. júní nk: Nafn listamannsins, netfang, heiti verksins, lýsing á verkinu m.a. stærð og gerð og ljósmynd af verkinu í góðri upplausn. Hver og einn má senda inn þrjú verk. Sérstök valnefnd velur svo úr innsendum verkum með framangreint markmið í huga. Listasafn Reykjanesbæjar Skemmtiatriði  - Gaman Saman Sölubásar Veitingar Allir hjartanlega velkomnir FALLEGIR GARÐAR OG SNYRTILEGT UMHVERFI Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar óskar eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggingu á gömlum húsum og lóðum, bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Hægt er að koma ábendingum til skila í síma 421-2700 eða senda á netfangið usk@reykjanesbaer.is Lionsklúbbur Njarðvíkur gaf knattspyrnu- deildinni hjartastuðtæki Lionsklúbbur Njarðvíkur færði Knattspyrnudeild Njarðvíkur hjartastuðtæki að gjöf. Í kjölfar atburða sem átt hafa sér stað á knattspyrnuvöllum á undan- förnum árum og þá sérstaklega í kjölfar þess að ungur leikmaður Bolton Wanderers í ensku knatt- spyrnunni hné niður nýlega gerði KSÍ könnun á því hjá liðum í Ís- landsmóti hvort hjartastuðtæki væru á heimavöllum félaganna. Í flestum tilfellum eru slík tæki til staðar. Hjá Njarðvík var svona tæki ekki til staðar og er þessi gjöf Lionsmanna því kærkomin. Stjórnarmenn og starfsmenn deildarinnar munu allir sækja námskeið í notkun tækisins. VANTAR BÍLA  VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ, VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SÖLUSKRÁ OG Á STAÐINN REYKJANESBÆ Fótbolti um helgina Á laugardag hefjast leikar í Pepsi-deild karla í knatt- spyrnu á ný eftir stutt hlé. Bæði Grindvíkingar og Keflvíkingar leika þá klukkan 14:00. Keflvík- ingar leika heima gegn FH og Grindvíkingar heimsækja Blika í Kópavoginn. Í 2. deild taka svo Njarðvíkingar á móti Fjarðabyggð á Njarðtaksvelli klukkan 14:00. Auglýsingasíminn er 421 0001 Póstur: gunnar@vf.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.