Víkurfréttir - 24.04.2013, Page 8
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR8
Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni í Keflavík um
helgina. Fór bifreiðin tvær veltur
og stöðvaðist á hjólunum. Mað-
urinn, sem reyndar var ökurétt-
indalaus, var nýbúinn að festa
kaup á bílnum.
Hann bauð félaga sínum með
í reynsluakstur og þegar hann
hafði komið bifreiðinni upp í um
hundrað kílómetra hraða fór fram-
hjól hennar út fyrir vegaröxl með
ofangreindum afleiðingum.
Ökumaðurinn og farþeginn voru
ferjaðir á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Annar þeirra reyndist
aðeins hafa hlotið skrámur. Hinn
slapp ómeiddur. Þeir voru síðan
færðir á lögreglustöð, þar sem
sýnatökur staðfestu að ökumað-
urinn hafði neytt amfetamíns og
metamfetamíns. Farþeginn hafði
neytt amfetamíns og kannabisefna.
Sá síðarnefndi framvísaði einnig
kannabisefni sem hann var með í
rassvasanum.
Skráningarnúmer voru klippt af
bifreiðinni þar sem hún var mikið
skemmd eftir atvikið og að auki
ótryggð.
Allt frá fæðingu er manneskjan háð
ástúð og umhyggju annarrar mann-
eskju og þá helst
foreldra s inna.
B örn þur fa að
geta reitt sig á sína
nánustu og það
skiptir sköpum
um velferð barna
hvernig foreldra
þau eiga, hvernig
aðbúnaður for-
eldranna er og hvernig samfélagið
sinnir sínum skyldum. Mestu erfið-
leikar sem börn eiga við að stríða
er að eiga foreldra sem ekki sinna
þeim, eru ekki í stakk búnir að axla
foreldraábyrgð og eru ekki færir um
að skapa börnum sínum viðunandi
uppvaxtarskilyrði. Öll börn eiga rétt
á góðum foreldrum og það ætti að
vera öllum ljóst hvað það er sem gerir
fólk að góðum foreldrum. Foreldrar
vilja reynast barni sínu vel og sé fjöl-
skyldan hornsteinn hvers þjóðfélags
er mikið í húfi að við sem þjóð getum
sammælst um hvað felst í foreldra-
ábyrgð að 18 ára aldri barnsins. Í því
samhengi er nauðsynlegt að spyrja
hvað hægt er að gera til að styðja for-
eldra sem margir eru undir miklu
álagi og við það að bugast í því þjóð-
félagsástandi sem við nú búum við.
Uppeldi og menntun er lögum sam-
kvæmt sameiginlegt verkefni heimila
og skóla og miðar að því að kalla það
besta fram í börnum og skapa skilyrði
til að hámarka eiginleika hvers og eins.
Lögð er áhersla á að börn fái notið
hæfileika sinna, njóti bernskunnar og
fái verkefni sem hæfa aldri þeirra og
þroska. Að börn lifi og læri í lýðræði
og búi við mannréttindi er sjálfsögð
krafa í velferðarþjóðfélagi. Þetta eru
fögur orð og áform en enginn skóli
eða stofnun kemur í stað foreldra og
foreldrar geta ekki komið í stað skóla.
Í skólum og frítímaþjónustu eflast
þau félagslegu tengsl sem börnum
eru nauðsynleg í samfélagi við annað
fólk. Að tilheyra hópi og þroskast og
dafna innan um vini og jafningja er
hverju barni nauðsynlegt.
Því miður færist í vöxt að foreldrar
geti ekki séð börnum sínum far-
borða eða eru ekki í stakk búnir
að annast börn sín af ýmsum
ástæðum. Vanheilsa foreldra getur
þar komið til og þau börn sem eiga
foreldra sem eru veikir fyrir af ein-
hverjum ástæðum eiga oft erfitt. Í
slíkum tilvikum reynir á samhjálp
og samfélagsþjónustu. Kerfið þarf að
bregðast við ef foreldrar bugast, eru
vanbúnir eða leita sér ekki aðstoðar.
Börn hafa takmarkaða möguleika á
að bera sig eftir björginni eða berjast
fyrir réttindum sínum. Ef foreldrar
gera það ekki, eða börnin eiga for-
eldra sem ekki ráða við hlutverk sitt,
standa börnin ein og án stuðnings.
Það er sá hópur sem verður verst úti í
samfélaginu og hópur sem við berum
öll ábyrgð á.
Nöturleg staðreynd kom fram í svari
velferðarráðherra við fyrirspurn á
hinu háa Alþingi nýlega um að 1.294
mál séu skráð sem heimilisófriður
hjá lögreglu á sl. ári (2012) og þar
af rúmlega 300 mál sem heim-
ilisofbeldi. Nærri lætur að lögreglan
sé kölluð út einu sinni á dag vegna
heimilisofbeldis. Afleiðingar heim-
ilisofbeldis eru margvíslegar og birtast
m.a. í því að nær helmingur unglings-
stúlkna, mæður framtíðarinnar, sem
orðið hafa fyrir slíku ofbeldi finnst
framtíðin oft og nær alltaf vonlaus.
Niðurstaða nýlegrar skýrslu Unicef
um réttindi barna er skýr en þar
segir að ein helsta ógn sem steðjar að
börnum á Íslandi sé ofbeldi. Ógnin
sé mikil en forvarnirnar takmark-
aðar. Það er því verðug spurning til
frambjóðenda í komandi alþingis-
kosningum hvað þeir setja í forgang
til að búa börnum á Íslandi betra líf
og öruggari heimili. Við getum ekki
bara rannsakað og skoðað afleiðingar
hrunsins eða ástandið sem er í mál-
efnum barna á Íslandi. Við þurfum að
bregðast við því með afgerandi hætti.
Við þurfum að ná til foreldra, styðja
þá og efla enn frekar samstarf heim-
ila og skóla um velferð barna. Það
þarf að bregðast við því vonleysi sem
ríkir hjá fólki um réttlátara samfélag
áður en í meira óefni er komið. Gras-
rótin þarf næringu og fjármagn til
forvarna. Kallað er eftir slíkri stefnu-
skrá hjá framboðum sem vilja hafa
áhrif í þágu heimila í landinu.
Helga Margrét Guðmundsdóttir,
tómstunda- og félagsmálafræðingur
n helga margrét guðmundsdóttir sKriFar:
Börnin okkar
Þegar hafnarstarfsmenn sem gæta Skessunnar í Hellinum, komu til
að opna hellinn hennar gestum til
ánægju og yndisauka í liðinni viku
urðu þeir varir við að Skessan hafði
misst málið og var orðin tannlaus.
Einhverjir óprúttnir aðilar höfðu brot-
ist inn í hellinn hennar um helgina og
slegið tennurnar úr henni og stolið há-
tölurunum sem gefa henni rödd.
En fyrir lok vinnudags höfðu hafnar-
starfsmenn tekið að sér tannlækningar
og komið tönnunum tveimur á réttan
stað í Skessuna og síðan settu þeir sig í
hlutverk talmeinasérfræðinga og færðu
henni hátalara þannig að Skessan fékk
rödd sína aftur.
Segið svo að hafnarstarfsmenn séu ekki
fjölhæfir.
Gerðu við tennur
án tannlæknaleyfis
Brann til kaldra
kola við Voga
Eldur kom upp í fólksbifreið á þjóðveginum til Voga um
miðjan dag á sunnudag. Fjöl-
skylda var í bílnum og slapp
hún án meiðsla.
Bifreiðin varð fljótt alelda en
slökkvilið Brunavarna Suður-
nesja var kallað út og slökkti það
eldinn.
Meðfylgjandi myndir tók Steinar
Smári Guðbergsson á vettvangi
brunans.
Ölvaður og dópaður velti bíl