Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Síða 8

Víkurfréttir - 24.04.2013, Síða 8
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR8 Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni í Keflavík um helgina. Fór bifreiðin tvær veltur og stöðvaðist á hjólunum. Mað- urinn, sem reyndar var ökurétt- indalaus, var nýbúinn að festa kaup á bílnum. Hann bauð félaga sínum með í reynsluakstur og þegar hann hafði komið bifreiðinni upp í um hundrað kílómetra hraða fór fram- hjól hennar út fyrir vegaröxl með ofangreindum afleiðingum. Ökumaðurinn og farþeginn voru ferjaðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Annar þeirra reyndist aðeins hafa hlotið skrámur. Hinn slapp ómeiddur. Þeir voru síðan færðir á lögreglustöð, þar sem sýnatökur staðfestu að ökumað- urinn hafði neytt amfetamíns og metamfetamíns. Farþeginn hafði neytt amfetamíns og kannabisefna. Sá síðarnefndi framvísaði einnig kannabisefni sem hann var með í rassvasanum. Skráningarnúmer voru klippt af bifreiðinni þar sem hún var mikið skemmd eftir atvikið og að auki ótryggð. Allt frá fæðingu er manneskjan háð ástúð og umhyggju annarrar mann- eskju og þá helst foreldra s inna. B örn þur fa að geta reitt sig á sína nánustu og það skiptir sköpum um velferð barna hvernig foreldra þau eiga, hvernig aðbúnaður for- eldranna er og hvernig samfélagið sinnir sínum skyldum. Mestu erfið- leikar sem börn eiga við að stríða er að eiga foreldra sem ekki sinna þeim, eru ekki í stakk búnir að axla foreldraábyrgð og eru ekki færir um að skapa börnum sínum viðunandi uppvaxtarskilyrði. Öll börn eiga rétt á góðum foreldrum og það ætti að vera öllum ljóst hvað það er sem gerir fólk að góðum foreldrum. Foreldrar vilja reynast barni sínu vel og sé fjöl- skyldan hornsteinn hvers þjóðfélags er mikið í húfi að við sem þjóð getum sammælst um hvað felst í foreldra- ábyrgð að 18 ára aldri barnsins. Í því samhengi er nauðsynlegt að spyrja hvað hægt er að gera til að styðja for- eldra sem margir eru undir miklu álagi og við það að bugast í því þjóð- félagsástandi sem við nú búum við. Uppeldi og menntun er lögum sam- kvæmt sameiginlegt verkefni heimila og skóla og miðar að því að kalla það besta fram í börnum og skapa skilyrði til að hámarka eiginleika hvers og eins. Lögð er áhersla á að börn fái notið hæfileika sinna, njóti bernskunnar og fái verkefni sem hæfa aldri þeirra og þroska. Að börn lifi og læri í lýðræði og búi við mannréttindi er sjálfsögð krafa í velferðarþjóðfélagi. Þetta eru fögur orð og áform en enginn skóli eða stofnun kemur í stað foreldra og foreldrar geta ekki komið í stað skóla. Í skólum og frítímaþjónustu eflast þau félagslegu tengsl sem börnum eru nauðsynleg í samfélagi við annað fólk. Að tilheyra hópi og þroskast og dafna innan um vini og jafningja er hverju barni nauðsynlegt. Því miður færist í vöxt að foreldrar geti ekki séð börnum sínum far- borða eða eru ekki í stakk búnir að annast börn sín af ýmsum ástæðum. Vanheilsa foreldra getur þar komið til og þau börn sem eiga foreldra sem eru veikir fyrir af ein- hverjum ástæðum eiga oft erfitt. Í slíkum tilvikum reynir á samhjálp og samfélagsþjónustu. Kerfið þarf að bregðast við ef foreldrar bugast, eru vanbúnir eða leita sér ekki aðstoðar. Börn hafa takmarkaða möguleika á að bera sig eftir björginni eða berjast fyrir réttindum sínum. Ef foreldrar gera það ekki, eða börnin eiga for- eldra sem ekki ráða við hlutverk sitt, standa börnin ein og án stuðnings. Það er sá hópur sem verður verst úti í samfélaginu og hópur sem við berum öll ábyrgð á. Nöturleg staðreynd kom fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn á hinu háa Alþingi nýlega um að 1.294 mál séu skráð sem heimilisófriður hjá lögreglu á sl. ári (2012) og þar af rúmlega 300 mál sem heim- ilisofbeldi. Nærri lætur að lögreglan sé kölluð út einu sinni á dag vegna heimilisofbeldis. Afleiðingar heim- ilisofbeldis eru margvíslegar og birtast m.a. í því að nær helmingur unglings- stúlkna, mæður framtíðarinnar, sem orðið hafa fyrir slíku ofbeldi finnst framtíðin oft og nær alltaf vonlaus. Niðurstaða nýlegrar skýrslu Unicef um réttindi barna er skýr en þar segir að ein helsta ógn sem steðjar að börnum á Íslandi sé ofbeldi. Ógnin sé mikil en forvarnirnar takmark- aðar. Það er því verðug spurning til frambjóðenda í komandi alþingis- kosningum hvað þeir setja í forgang til að búa börnum á Íslandi betra líf og öruggari heimili. Við getum ekki bara rannsakað og skoðað afleiðingar hrunsins eða ástandið sem er í mál- efnum barna á Íslandi. Við þurfum að bregðast við því með afgerandi hætti. Við þurfum að ná til foreldra, styðja þá og efla enn frekar samstarf heim- ila og skóla um velferð barna. Það þarf að bregðast við því vonleysi sem ríkir hjá fólki um réttlátara samfélag áður en í meira óefni er komið. Gras- rótin þarf næringu og fjármagn til forvarna. Kallað er eftir slíkri stefnu- skrá hjá framboðum sem vilja hafa áhrif í þágu heimila í landinu. Helga Margrét Guðmundsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur n helga margrét guðmundsdóttir sKriFar: Börnin okkar Þegar hafnarstarfsmenn sem gæta Skessunnar í Hellinum, komu til að opna hellinn hennar gestum til ánægju og yndisauka í liðinni viku urðu þeir varir við að Skessan hafði misst málið og var orðin tannlaus. Einhverjir óprúttnir aðilar höfðu brot- ist inn í hellinn hennar um helgina og slegið tennurnar úr henni og stolið há- tölurunum sem gefa henni rödd. En fyrir lok vinnudags höfðu hafnar- starfsmenn tekið að sér tannlækningar og komið tönnunum tveimur á réttan stað í Skessuna og síðan settu þeir sig í hlutverk talmeinasérfræðinga og færðu henni hátalara þannig að Skessan fékk rödd sína aftur. Segið svo að hafnarstarfsmenn séu ekki fjölhæfir. Gerðu við tennur án tannlæknaleyfis Brann til kaldra kola við Voga Eldur kom upp í fólksbifreið á þjóðveginum til Voga um miðjan dag á sunnudag. Fjöl- skylda var í bílnum og slapp hún án meiðsla. Bifreiðin varð fljótt alelda en slökkvilið Brunavarna Suður- nesja var kallað út og slökkti það eldinn. Meðfylgjandi myndir tók Steinar Smári Guðbergsson á vettvangi brunans. Ölvaður og dópaður velti bíl

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.