Víkurfréttir - 24.04.2013, Blaðsíða 12
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR12
Kvennasveitin Dagbjörg er yngsta og ein virkasta slysa-
varnadeildin innan Slysavarna-
félagsins Landsbjargar og er nú
að byrja 10. starfsárið sitt.
Sveitin var stofnuð með þau mark-
mið að vera bakhjarl Björgunar-
sveitarinnar Suðurnes og vinna
að slysavörnum á heimilum og
almennt í bæjarfélaginu. Í þessi 10
ár hefur sveitin aðstoðað og unnið
að mörgum góðum verkefnum
fyrir Björgunarsveitina og stutt við
bakið á þeim með gjöfum.
Sveitin er líka virk í slysavörnum
í bæjarfélaginu og má helst telja
slysavarnaverkefnið „Glöggt er
gests augað“ sem Slysavarnafélagið
Landsbjörg hefur nú tekið upp á
sína arma og er það framkvæmt
á landsvísu en við byrjuðum með
þetta verkefni hér í Reykjanesbæ
2006.
Foreldrum sem koma með börn
sín í átta mánaða skoðun hjá ung-
barnaeftirliti HSS er færður pakki
frá Kvennasveitinni með gátlista
um slysavarnir í umhverfi barna,
bækling um öryggi barna á heim-
ilum og fingravin (klemmuvörn
fyrir litla fingur). Þá heimsækjum
við alla grunnskóla bæjarins og
gefum börnum í 1. bekk endur-
skinsmerki við upphaf skólagöngu.
Nýjasta verkefnið er hjóladagur þar
sem við setjum upp hjólaþrautir,
fræðum börn um öryggisatriði
hjólanna og hvetjum þau til að
nota hjólahjálma. Þetta verkefni er
unnið við einn skóla í samstarfi við
SL og Sjóvá en verða vonandi við
fleiri skóla á komandi árum.
Einnig framkvæmum við öryggis-
kannanir á vegum SL og Umferðar-
stofu eins og öryggi barna í bílum,
hjálmanotkun og bílbeltakannanir.
Við vitum um enn fleirri verkefni
sem við gætum farið í og höfum
fullan hug á að reyna að koma í
framkvæmd með tímanum og
fjölgun félagsmanna, eins og að
gæta að slysahættum í bænum
okkar og huga að öryggi við hafnir
og bryggjur.
Fjáraflanir eru líka stór hluti af
verkefnum Kvennasveitarinnar og
hafa þær verið margs konar og þó
að sagt sé að við höfum „bakað“
mikið af tækjum og tólum björg-
unarsveitanna þá eru slysavarna-
konur hugmyndaríkar og tilbúnar
að leggja ýmislegt á sig fyrir hug-
sjónir sínar.
Heimili Kvennasveitarinnar er
í húsnæði Björgunarsveitarinnar
Suðurnes sem er í raun orðið allt
of lítið til að bera alla þá starfsemi
sem þar fer fram og því var ákveðið
á síðasta aðalfundi Kvennasveitar-
innar að stofna sjóð sem myndi
vera grunnur að því að stækka það
húsnæði sem sveitirnar þurfa fyrir
starfsemi sína.
Nú ætla þrjár konur úr sveitinni,
Kristbjörg, Ásta og Sólbjörg, (sam-
tals eru þær 160 ára), að leggja í
langferð og langar okkur að nýta
ferðina í fjáröflun og styðja þannig
við sjóðinn „Framtíðarheimili fyrir
Kvennasveitina Dagbjörgu“.
Þær ætla að fara til Spánar og hjóla
rúmlega 800 km leið eftir hinni
fornu pílagrímaleið, Jakobsvegi
sem heitir eftir Jakobi, einum af
lærisveinum Jesús. Ferðin byrjar
í litlu þorpi sem heitir Ronces-
valles, rétt við landamæri Spánar
að Frakklandi og endar í borginni
Santiago de Compostela, en þar er
hin stórkostlega dómkirkja sem var
byggð utan um grafreit hins heilaga
Jakobs. Þær leggja af stað 30. apríl
og ætla sér 14 daga til að komast
þessa leið. Ferðakostnað greiða þær
úr eigin vasa.
Þær ætla að setja fréttir af ferðinni
á heimasíðu Kvennasveitarinnar á
Facebook, slóðin er https://www.
facebook.com/#!/kvennasveitin-
dagbjorg?fref=ts og vonast þær
til að sem flestir fylgist með (allir
sem biðja um aðgang verða sam-
þykktir) og sendi þeim góðar hjóla-
kveðjur um leið og þeir styðja við
þessa krefjandi en skemmtilegu og
óvenjulegu fjáröflun.
Þeir sem vilja styðja við þetta fjár-
öflunarverkefni er bent á reikning
Kvennasveitarinnar sem er 0541-
04-760400, kt. 700404-5280.
Engin upphæð er of lítil.
Hjóla Jakobsstíginn
til styrktar kvennasveitinni
Þessi mynd er tekin á Kvennaþingi slysavarnadeilda á Ásbrú í haust. Kvennasveitin Dagbjörg sá um allan undir-
búning. Þema þingsins var hernámsárin. Þarna erum við að fara í hátíðakvöldverð og ball í Officeraklúbbnum.
Frá vinstri: Sólbjörg
ritari, Ásta gjaldkeri og
Kristbjörg formaður.
Leiðin sem verður hjóluð,
eða frá Roncesvalles til
Santiago de Compostela.
Þær Sólbjörg, Ásta og Kristbjörg ætla
að fara til Spánar og hjóla rúmlega
800 km leið eftir hinni fornu
pílagrímaleið, Jakobsvegi.
AFLA FJÁR TIL HÚSBYGGINGAR