Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 12
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR12 Kvennasveitin Dagbjörg er yngsta og ein virkasta slysa- varnadeildin innan Slysavarna- félagsins Landsbjargar og er nú að byrja 10. starfsárið sitt. Sveitin var stofnuð með þau mark- mið að vera bakhjarl Björgunar- sveitarinnar Suðurnes og vinna að slysavörnum á heimilum og almennt í bæjarfélaginu. Í þessi 10 ár hefur sveitin aðstoðað og unnið að mörgum góðum verkefnum fyrir Björgunarsveitina og stutt við bakið á þeim með gjöfum. Sveitin er líka virk í slysavörnum í bæjarfélaginu og má helst telja slysavarnaverkefnið „Glöggt er gests augað“ sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur nú tekið upp á sína arma og er það framkvæmt á landsvísu en við byrjuðum með þetta verkefni hér í Reykjanesbæ 2006. Foreldrum sem koma með börn sín í átta mánaða skoðun hjá ung- barnaeftirliti HSS er færður pakki frá Kvennasveitinni með gátlista um slysavarnir í umhverfi barna, bækling um öryggi barna á heim- ilum og fingravin (klemmuvörn fyrir litla fingur). Þá heimsækjum við alla grunnskóla bæjarins og gefum börnum í 1. bekk endur- skinsmerki við upphaf skólagöngu. Nýjasta verkefnið er hjóladagur þar sem við setjum upp hjólaþrautir, fræðum börn um öryggisatriði hjólanna og hvetjum þau til að nota hjólahjálma. Þetta verkefni er unnið við einn skóla í samstarfi við SL og Sjóvá en verða vonandi við fleiri skóla á komandi árum. Einnig framkvæmum við öryggis- kannanir á vegum SL og Umferðar- stofu eins og öryggi barna í bílum, hjálmanotkun og bílbeltakannanir. Við vitum um enn fleirri verkefni sem við gætum farið í og höfum fullan hug á að reyna að koma í framkvæmd með tímanum og fjölgun félagsmanna, eins og að gæta að slysahættum í bænum okkar og huga að öryggi við hafnir og bryggjur. Fjáraflanir eru líka stór hluti af verkefnum Kvennasveitarinnar og hafa þær verið margs konar og þó að sagt sé að við höfum „bakað“ mikið af tækjum og tólum björg- unarsveitanna þá eru slysavarna- konur hugmyndaríkar og tilbúnar að leggja ýmislegt á sig fyrir hug- sjónir sínar. Heimili Kvennasveitarinnar er í húsnæði Björgunarsveitarinnar Suðurnes sem er í raun orðið allt of lítið til að bera alla þá starfsemi sem þar fer fram og því var ákveðið á síðasta aðalfundi Kvennasveitar- innar að stofna sjóð sem myndi vera grunnur að því að stækka það húsnæði sem sveitirnar þurfa fyrir starfsemi sína. Nú ætla þrjár konur úr sveitinni, Kristbjörg, Ásta og Sólbjörg, (sam- tals eru þær 160 ára), að leggja í langferð og langar okkur að nýta ferðina í fjáröflun og styðja þannig við sjóðinn „Framtíðarheimili fyrir Kvennasveitina Dagbjörgu“. Þær ætla að fara til Spánar og hjóla rúmlega 800 km leið eftir hinni fornu pílagrímaleið, Jakobsvegi sem heitir eftir Jakobi, einum af lærisveinum Jesús. Ferðin byrjar í litlu þorpi sem heitir Ronces- valles, rétt við landamæri Spánar að Frakklandi og endar í borginni Santiago de Compostela, en þar er hin stórkostlega dómkirkja sem var byggð utan um grafreit hins heilaga Jakobs. Þær leggja af stað 30. apríl og ætla sér 14 daga til að komast þessa leið. Ferðakostnað greiða þær úr eigin vasa. Þær ætla að setja fréttir af ferðinni á heimasíðu Kvennasveitarinnar á Facebook, slóðin er https://www. facebook.com/#!/kvennasveitin- dagbjorg?fref=ts og vonast þær til að sem flestir fylgist með (allir sem biðja um aðgang verða sam- þykktir) og sendi þeim góðar hjóla- kveðjur um leið og þeir styðja við þessa krefjandi en skemmtilegu og óvenjulegu fjáröflun. Þeir sem vilja styðja við þetta fjár- öflunarverkefni er bent á reikning Kvennasveitarinnar sem er 0541- 04-760400, kt. 700404-5280. Engin upphæð er of lítil. Hjóla Jakobsstíginn til styrktar kvennasveitinni Þessi mynd er tekin á Kvennaþingi slysavarnadeilda á Ásbrú í haust. Kvennasveitin Dagbjörg sá um allan undir- búning. Þema þingsins var hernámsárin. Þarna erum við að fara í hátíðakvöldverð og ball í Officeraklúbbnum. Frá vinstri: Sólbjörg ritari, Ásta gjaldkeri og Kristbjörg formaður. Leiðin sem verður hjóluð, eða frá Roncesvalles til Santiago de Compostela. Þær Sólbjörg, Ásta og Kristbjörg ætla að fara til Spánar og hjóla rúmlega 800 km leið eftir hinni fornu pílagrímaleið, Jakobsvegi. AFLA FJÁR TIL HÚSBYGGINGAR

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.