Víkurfréttir - 24.04.2013, Side 19
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 24. apríl 2013 19
SlöKKVIlIðSmInjaSaFn Í ReyKjaneSbæ
Fræðsluráð Reykjanesbæjar kallar eftir tilnefningum til
Hvatningarverðlauna fræðsluráðs.
Allir bæjarbúar geta tilnefnt einstaklinga eða
skólaverkefni til verðlaunanna. Tilnefna má þróunar- og
nýbreytniverkefni eða önnur vel unnin störf sem þykja
til fyrirmyndar í starfsemi skóla á yfirstandandi
skólaári.
Tekið er á móti tilnefningum á Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar fram til 6. maí 2013.
HVATNINGARVERÐLAUN FRÆÐSLURÁÐS
ER EKKI ÁSTÆÐA
TIL HRÓSA?
Hlutverk sjóðsins er að veita styrki og viðurkenningar
sem að stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi í leik-,
grunn- og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Styrkirnir eru veittir í samráði við reglur fræðsluráðs
um styrki til þróunarverkefna frá 2006.
Sækja þarf um til Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar fyrir 6. maí 2013.
STYRKIR ÚR SKÓLAÞRÓUNARSJÓÐI
FRÆÐSLURÁÐS
MANNGILDISSJÓÐUR
Úthlutun matjurtagarða hjá Reykjanesbæ er hafin.
Svæðin eru í Grófinni og Dalshverfi neðan við Seljudal.
Hver reitur er um 20m² og gjaldið er 3000kr.
Þeir sem óska eftir sama reit og í fyrra verða að
staðfesta pöntun fyrir 10. maí nk.
Hægt er að panta garða í síma Þjónustumiðstöðvar
420-3200 á opnunartíma.
MATJURTAGARÐAR
REYKJANESBÆJAR
2013
Byggingarfræði og þyngdarafl
þrívíddarverk Hallsteins Sigurðssonar
Laugardaginn 27. apríl kl. 14.00
Sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar Duushúsum
Aðalsteinn Ingólfsson ásamt listamanni
leiða gesti um sýninguna
Sýningunni lýkur 1. maí
Safnið er opið virka daga kl. 12.00 -17.00,
helgar kl. 13.00 – 17.00, aðgangur ókeypis
LISTAMANNSLEIÐSÖGN
slÖkkviliÐsminjasafn
Íslands
Seylubraut 1, Reykjanesbæ (gamla Rammahúsið).
Á safninu er til sýnis m.a. elstu reykköfunartækin, stigarnir, dælurnar og bílarnir. Fyrsti slökkviliðsbíll
Brunavarna Suðurnesja frá árinu 1947 er á safninu en hann er nýuppgerður og allur hinn glæsilegasti.
Opnunartími:
Sumardaginn fyrsta: 13-17
Laugardaga: 13-17
Sunnudaga: 13-17
Einnig er opið eft ir pöntunum fyrir
hópa.
Verð:
Fullorðnir 800 kr.
Öryrkjar og ellilíferisþegar: 500 kr.
Börn yngri en 18 ára fá frítt í fylgd
í samstarfi við Byggðasafn Reykjanesbæjar
Nánari upplýsingar gefa:
Sigurður Lárus GSM 862-1375
Ingvar Georg GSM 899-0557
Það eru slökkviliðsmennirnir Sig-
urður Lárus Fossberg og Ingvar
Georg Georgsson sem eiga heiður-
inn að safninu sem nú hefur verið
sett upp. Hugmyndin varð til þegar
Sigurði var falið það verkefni að
skrásetja alla ameríska slökkvibíla
af árgerðum 1940 til 1980 vegna
sögu þessara slökkvibíla á Norður-
löndum. Sú vinna var mikil og eitt
leiddi af öðru.
Eftir að Sigurður Lárus ræddi
við Ingvar Georg fór hugmyndin
á fullt og með stuðningi slökkvi-
stjóranna Jóns Guðlaugssonar
hjá Brunavörnum Suðurnesja og
Jóns Viðars Matthíassonar hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
var hugmyndin mótuð og kynnt
fyrir Árna Sigfússyni bæjarstjóra í
Reykjanesbæ, þar sem menn höfðu
augastað á húsakosti Byggðasafns
Reykjanesbæjar í Ramma. Til að
gera langa sögu stutta þá tók bæjar-
stjórinn hugmyndinni vel og hvatti
slökkviliðsmennina til að þróa
hana áfram.
Hér á landi er til fjöldi slökkvibíla
og annarra tækja frá fyrri tíð og er
aðeins lítið brot til sýnis á slökkvi-
liðsminjasafninu. Ástand gömlu
slökkvibílanna sem til eru í land-
inu er líka misjafnt. Mikið er til af
bílum í góðu ástandi en einnig eru
margir ekki sýningarhæfir og eru
geymdir við slæmar aðstæður víða
um land.
Á sýningunni á Fitjum eru aðeins
sýningarhæfir bílar og reynt að
hafa bílakostinn fjölbreyttan. Á
sýningunni er m.a. fyrsti slökkvi-
bíll Slökkviliðs Keflavíkur, Ford af
árgerðinni 1947. Hann var endur-
byggður frá grunni en slökkvi-
liðsmaðurinn Davíð Heimisson á
mestan heiður af þeirri vinnu. Davíð
varði um 1100 klukkustundum í
endurbæturnar á bílnum sem í dag
er eins og nýr. Hugmyndin er að
nota hann við hátíðleg tækifæri
en með honum á einnig að varð-
veita sögu Brunavarna Suðurnesja
en þann 15. apríl sl. eru 100 ár frá
því fyrsta slökkvilið Keflavíkur var
stofnsett.
Slökkviliðsminjasafnið í Ramma á
Fitjum verður opið um helgar og
þar munu slökkviliðsmenn starfa í
sjálfboðavinnu við að fræða gesti.
Þá er hugmyndin að stofna holl-
vinasamtök fyrir safnið og virkja
þannig slökkviliðsmenn sem eru
komnir á eftirlaun og fá þá m.a. til
að setja fróðleik um slökkviliðin
og slökkvistörf fyrri ára á það form
sem varðveita má til framtíðar.
Nýtt slökkviliðsminjasafn opnaði á dögunum í Ramma
á Fitjum. Það er félag áhugamanna
um sögu slökkviliða á Íslandi sem
stendur að baki safninu. Safnið er
hins vegar starfrækt undir hatti
Byggðasafns Reykjanesbæjar og
er í húsnæði byggðasafnsins á
Fitjum.
Gamlir slökkvibílar á safn
Sigurður Lárus og
Ingvar Georg við gamla
gripi á safninu á Fitjum.
Á myndinni til vinstri er
Davíð Heimisson.
Ford árgerð 1947 er fyrsti
slökkvibíll Slökkviliðs Keflavíkur.
Slökkvibílar af öllum
stærðum og gerðum.