Víkurfréttir - 24.04.2013, Síða 26
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR26
Það er viðeigandi að frá-farandi formaður NFS sé
FS-ingur vikunnar svona rétt
áður en sumarfrí framhald-
skólanema skellur á. Sá heitir
Ísak Ernir Kristinsson og er 19
ára gamall Keflvíkingur sem
stundar nám á viðskipta- og
hagfræðibraut FS. Ísak starfar
sem körfuboltadómari samhliða
námi en hann dæmdi leiki í bæði
undanúrslitum karla og kvenna
þetta árið. Það verður að teljst
glæsilegur árangur hjá dómara á
sínu fyrsta ári í efstu deild.
Hvað er skemmtilegast við
skólann?
Í FS er gríðarlega öflugt félagslíf sem
gefur náminu mikinn lit.
Hjúskaparstaða?
Einhleypur
Hvað hræðistu mest?
Pennana hennar Rósu.
Hvað borðar þú í morgunmat?
Herbalife sjeik
Hvaða FS-ingur er líklegur til
þess að verða frægur?
Það koma gríðarlega margir FS-ingar
til greina. FS er gullnáma af öflugu
og flottu fólki. Ég hef trú á öllum!
Hver er fyndnastur í skólanum?
Í FS eru margir snillingar og mjög
margir sem eru meinfyndnir. En ég
hef gríðarlega gaman af gjaldkera
NFS Bjarka Þór.
Hvað finnst þér vanta í mötu-
neytið?
Oft vantar kók. En FS er heilsueflandi
framhaldsskóli þannig að það er ekki
í boði að selja óhollustu.
Hver er þinn helsti galli?
Ég segi alltaf já.
Hvað er heitasta parið í skól-
anum?
Ísleifur og Olga Ýr.
Hverju myndirðu breyta ef þú
værir skólameistari FS?
Kristján er gríðarlega flottur skóla-
meistari. En ef ég væri skólameistari
FS þá myndi ég treysta stjórn NFS
betur fyrir aðstöðunni þeirra og
leyfa jafnvel formanni NFS að vera
með lykil af skólanum svo stjórn og
nefndir geta unnið í aðstöðu NFS
fyrir utan skóla eða þegar þau hafa
tíma.
Af hverju valdir þú FS?
Ég hafði gríðarlega trú á náminu í
FS og NFS. Ég vildi taka þátt í að efla
NFS sem var á blússandi siglingu
eftir nokkurra ára lægð.
Áttu þér viðurnefni?
Nei það er lítið um það. Sigurbergur
er samt að reyna innleiða viðurnefnið
Snakki, ég veit það ekk.
Hvaða frasa notar þú oftast?
Ég veit það ekki. Já það er frasinn.
Hvernig finnst þér félagslífið í
skólanum?
Félagslífið er gríðarlega gott í FS. NFS
er að verða samkeppnishæft við stóru
skólana í Reykjavík. Ég hlakka til að
sjá hvar NFS verður eftir 2-3 ár.
Áhugamál?
Ég er félagsmálanörd! Einnig er ég
körfuboltadómari sem er lífsstíll.
Hvert er stefnan tekin í fram-
tíðinni?
Eftir FS er stefnan tekin á háskóla-
nám. Einnig langar mig að sjá svo-
lítið af heiminum.
Hvað finnst þér um Hnísuna?
Hnísan er gríðarlega flottur skóla-
þáttur sem Sindri Jóhanns og félagar
komu upp á mjög hátt level.
Hver er best klædd/ur í FS?
FS-ingar eru allir gríðarlega vel
klæddir. En það þarf lítið til að gleðja
Viktor Smára.
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Sævar Ingi Þórhallsson er
nemandi í 10-SBV
í Holtaskóla. Hann
væri til í að hitta
Neymar og segir að
hann sé með ósköp
venjulegan fatastíl.
Hvað gerirðu eftir
skóla?
Ég fer oftast að læra,
fer svo smá í tölvuna
og fer á æfingu
Hver eru áhuga-
mál þín?
Handbolti, ræktin og
vinir
Uppáhalds fag í skólanum?
Að sjálfsögðu íþróttir
Ef þú gætir hitt einhvern
frægan, hver væri það?
Sá kappi væri Neymar
Ef þú gætir fengið einn ofur-
kraft hver væri hann?
Að geta birst hvar sem er
Hvað er draumastarfið?
Flugmaður, er að stefna á það
Hver er fræg-
astur í sím-
anum þínum?
Theodór Sigur-
bergsson
Hver er merki-
legastur sem
þú hefur hitt?
L a n d s l i ð i ð í
handbolta
Hvað mynd-
irðu gera ef þú
mættir vera
ósýnilegur í
einn dag?
Held að allir viti
svarið við þessari
spurningu
Hvernig myndirðu lýsa fata-
stílnum þínum?
Held bara ósköp venjulegur fata-
stíll
Hvernig myndiru lýsa þér í
einni setningu?
Váá hvað þú ert fyndinn
Hvað er skemmtilegast við
Holtaskóla?
Guð ég veit það ekki
Hvaða lag myndi lýsa þér
best?
Erfitt líf Mc Sævar
Hvaða sjónvarpsþáttur myndi
lýsa þér best?
Jersey Shore
Besta:
Bíómynd?
Troy
Sjónvarpsþáttur?
Game of Thrones
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
JB klikkar seint
Matur?
Humar
Drykkur?
Kókómjólk er besti drykkurinn
Leikari/Leikkona?
Johnny Depp
Lið í Ensku deildinni?
Manchester United
Lið í NBA?
Lakers er mitt lið
Vefsíða?
Facebook
Ætla að verða flugmaður
n SÆVAR INGI ÞÓRHALLSSON // UNG UMSjóN: PÁLL oRRI PÁLSSoN • PoP@VF.IS
Sjónvarpsþættir
Ég hef ekki tíma til að horfa
á sjónvarpsþættir. Get t.d. ekki
nefnt eina persónu í Friends.
Hljómsveit
Valdimar.
Leikari
Tim Robbins
Vefsíður
Vf.is
Skyndibiti
Subway
Kennari
Hlynur Ómar
Fag
Viðskipti og lögfræði
Tónlistin
Ég er alæta á tónlist.
Hvað tónlist fílarðu í laumi
(guilty pleasure)?
Ég fíla Justin Bieber eins og flest
allir, það eru bara ekki allir til-
búnir að koma út úr skápnum
með það.
Félagsmálanörd
sem segir alltaF já
MANNLÍF og MENNINg
Ágætu Suðurnesjamenn. Laugardaginn 5. apríl sl.
frumsýndi Leik-
félag Keflavíkur
leikritið „Með
vífið í lúkunum“.
Leikritið hefur
fengið frábæra
dóma og fólk
hreinlega velt-
i s t u m , f æ r
magakrampa og jafnvel koma í
ljós langþráðir og löngu horfnir
magavöðvar af hlátri. Búið er að
auglýsa sjö sýningar en einungis
sex verið sýndar þar sem fella
þurfti niður sýningu sl. laugar-
dagskvöld vegna lélegrar mæt-
ingar áhorfenda.
Nú þegar búið er að sýna þessar sex
sýningar hafa þó aðeins tæplega
þrjú hundruð manns séð verkið en
til þess að sýningin geri ekki annað
en að standa undir kostnaði þá
þurfum við alla vega sex hundruð
manns. Þetta svæði býr svo vel
að eiga öflugt leikfélag, eitt það
öflugasta á landinu sem á hverju
ári setur á svið tvö leikverk, tekur
þátt í flestum þeim uppákomum
sem haldnar eru á vegum bæjar-
ins auk þess að halda úti öflugri
og ört vaxandi unglingadeild. Það
er því mikil synd að sjá ekki fram
á að geta haldið áfram því öfluga
starfi sem búið er að byggja upp
á liðnum árum. Að setja sýningu
á svið kostar mikla vinnu en við
uppsetningu á einu verki liggja að
baki a.m.k. sex vikna æfingatímabil
þar sem æft er fimm daga vikunnar
í 4-6 tíma. Það kostar einnig ágætis
pening að ráða leikstjóra, byggja
svið, auglýsa verkið o.fl. o.fl. Þótt
Leikfélag Keflavíkur búi yfir frá-
bærri aðstöðu í Frumleikhúsinu
og góðum tækjum þá er kostnaður
mikill sem fylgir uppsetningum og
þar þarf félagið eins og önnur félög
að stóla á áhorfendur. Vinna í leik-
húsi er öll unnin í sjálfboðavinnu,
bæði hjá þeim sem stjórna félaginu,
leika eða koma að uppsetningunni
með öðrum hætti. Það að leggja alla
þessa vinnu og krafta í verkefnið
sem fær svo einhverra hluta vegna
ekki áhorf er ferlega fúlt, vægast
sagt. Við vitum að verkið er frá-
bært, leikarar fá allir hörku dóma
um frábæran leik, allir sem einn
og orðið á götunni er einfaldlega
það að sýningin sé ekki síðri en þau
verk sem atvinnuleikhúsin eru að
sýna um þessar mundir. Undirrituð
hefur starfað með Leikfélagi Kefla-
víkur í rúm 30 ár og sjaldan hefur
aðsókn verið verri en nú á svo flott
leikrit eins og nú er í sýningu. Því
biðla ég til Suðurnesjafólks að sýna
okkur þann heiður og stuðning að
mæta í Frumleikhúsið á föstudags-
kvöldið 26. apríl kl. 20.00 en þá
verður sýningin sýnd í allra síðasta
sinn. Um leið vil ég þakka þeim
sem þegar hafa komið og séð þessa
frábæru sýningu.
Fh. Leikfélags Keflavíkur,
Guðný Kristjánsdóttir.
lokaútkall
- ákall til suðurnesjamanna
Fáðu TILBOÐ hjá
söluráðgjafa í síma
421 0001 eða á fusi@vf.is