Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 34

Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 34
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR34 Nú eru nokkrir dagar til kosninga og margir kostir eru í boði, um 11 framboð gefa kost á sér í Suðurkjördæmi og stefnumálin eru af ýmsum toga. Þrátt fyrir að framboðin eigi ýmislegt sam- eiginlegt þá eru þó ákveðin mál sem greinir þau að. Það kann að virðast f lókið fyrir ungt fólk að kynna sér stefnuskrá þeirra fjölmörgu framboða sem til staðar eru. Við viljum koma hér inn á nokkur atriði sem eru mikil- væg fyrir ungt fólk að hafa í huga þegar stigið er inn í kjörklefann þann 27. apríl nk. Flest þessara framboða hafa í stefnuskrá sinni einhverjar lausnir sem ætlað er að taka á skuldavanda heimilanna. Þrátt fyrir samhug flokkanna til að taka á skuldavanda heimilanna þá eru áherslurnar mismunandi. Þegar þetta stóra verkefni er haft í huga verða lausnir flokkanna að vera raunhæfar og verða að komast til framkvæmda strax eftir kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í þessu efni sett fram lausnir sem eru í senn raunhæfar og geta komist til framkvæmda strax í upphafi komandi kjörtímabils. Lausn Sjálfstæðisflokksins felst meðal annars í því að veita heimilum skattaafslátt sem færður verður beint inn á höfuðstól húsnæðislána. Þessi skattaafsláttur getur numið allt að 40.000 kr. á mánuði sem á 4 árum getur lækkað húsnæðislán um allt að 2 milljónir. Þess má einnig geta að Sjálfstæðisflokkurinn hefur í stefnuskrá sinni sam- bærilega leið fyrir ungt fólk sem hyggst kaupa sína fyrstu íbúð. Með þessu vill flokkurinn koma til móts við unga fólkið sem hefur hug á að komast af erfiðum og þungum leigumarkaði í öruggt húsaskjól. Þetta verður gert með svipuðum hætti og með húsnæðislánin, veittur verður ákveðinn skattaafsláttur sem lagður verður inn á sérstakan sparnaðarreikning ætlaðan til íbúðakaupa. Í umræðunni um lausnir á skuldavanda heimilanna í landinu má þó ekki gleyma mikilvægi atvinnulífsins. Það er nauðsynlegt að þeir flokkar sem koma til með að stýra landinu á komandi kjörtímabili verði í góðu sam- bandi við atvinnulífið og hafi vilja til að vinna með því en ekki á móti því. Það er nauðsynlegt öllum kjósendum í landinu að atvinnulífið verði tryggt og unnt verði að nýta þau tækifæri sem til staðar eru. Þetta verður meðal annars gert með skynsamri nýtingu auðlinda, einfaldara skattkerfi og meiri skilningi af hálfu ríkisvaldsins. Sjálf- stæðisflokkurinn er sá flokkur sem ætlar sér að styrkja atvinnulífið í landinu og með sterku atvinnulífi styrkist hagur ungs fólks og fjölskyldna í landinu. Það er mikilvægt að ungt fólk kynni sér vel þau málefni sem fyrir liggja og taki með virkum hætti þátt í um- ræðunni og láti sig málin varða. Unga fólkið mun lifa við þær ákvarðanir sem teknar eru á næstu árum og verður því að sýna áhuga á mótun þeirrar stefnu sem lögð er á komandi kjörtímabilum. Við viljum hvetja ungt fólk og ykkur öll til að taka virkan þátt í umræðunni og kynna ykkur stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins. Hildur Gunnarsdóttir, lögfræðingur og formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Ólafur Hannesson, stjórnmálafræðingur. Í grundvallaratriðum snúast þessar kosningar um það hvort fylgja eigi j a f n a ð ar s t e f nu S a m f y l k i n g a r - innar og byggja upp ve l ferðar- kerfið eða ekki og hvort við viljum ábyrg ríkisfjár- mál eða óraunhæf loforð. Samfylkingin tók við stjórnartaumunum þegar Ísland var á barmi gjaldþrots, rúið trausti, halli ríkissjóðs var stórkostlegur og fall krónunnar og verðbólgan höfðu brennt upp eignir. Við náðum saman fjárlagagatinu á aðeins 4 árum sem er afrek. Um leið og við stöðvuðum skuldasöfnun ríkissjóðs forgangsröð- uðum við í þágu velferðar og þeirra sem minna hafa handa á milli. Nú þegar við jafnaðarmenn höfum tekið til eftir aðra er mikilvægt að við fáum stuðning til að byggja upp á nýju kjörtímabili. Samfylkingin er ábyrg og henni má treysta til að skapa öruggt og gott samfélag. Staðreyndin er sú að: Atvinnuleysi hefur minnkað um helming frá 2009. Þúsundir ungra atvinnuleitenda fengið skólavist í gegnum átakið Nám er vinnandi vegur. Tækniþróunarsjóður var stórefldur til að skapa ný störf og einnig fram- kvæmdarsjóður ferðaþjónustunnar. Rammalöggjöf um ívilnanir til nýfjár- festinga og endurgreiðsla rannsókna- og þróunarkostnaðar til fyrirtækja hefur komið mörgum fyrirtækjum til góða. Við ætlum að: Lækka tryggingagjaldið og fjölga störfum. Koma á nýjum fjárfestingalánasjóði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Tryggja sjávarbyggðum hlutdeild í veiðleyfagjaldinu. Setja tækni- og verkmenntun í for- gang í skólakerfinu. Ljúka jafnlaunaátaki hjá hinu opin- bera. Staðreyndin er sú að: 60% þjóðarinnar borgar hlutfallslega minni skatta eða jafn mikla skatta og fyrir hrun. Þeir sem betur standa greiða meira til samfélagsins. Pers- ónuafsláttur hefur hækkað um 45% frá 2007 og er verðtryggður frá árs- byrjun 2012. Barnabætur hafa hækkað um 30% og stuðningur við barnafjölskyldur verður alls 11 ma.kr. á árinu 2013. Samfylkingin hefur ráðist í byggingu 12 hjúkrunarheimila fyrir aldraða um land allt. Endurreisn fæðingarorlofssjóðs er hafin og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna lögfestur. Jafnrétti kynjanna hefur hvergi mælst meira en á Íslandi undanfarin 4 ár. Við ætlum að: Láta börnin njóta forgangs. Gera gjaldfrjálsar tannlækningar barna að 18 ára aldri að veruleika, efla starf- semi Barnahúss og forvarnir gegn ofbeldi. Koma á einu húsnæðiskerfi fyrir alla, fjölga námsmannaíbúðum og efla leigumarkað. Staðfesta nýjar, einfaldari og betri almannatryggingar og bæta rétt líf- eyrisþega. Treysta grunnþjónustu heilbrigðis- kerfisins. Staðreyndin er sú að: Hrun gjaldmiðilsins árið 2008 setti fjárhag heimilanna í uppnám. Skuldir hafa verið niðurfærðar um 300 ma.kr. á kjörtímabilinu. 12 þúsund heimili hafa notið góðs af lækkun skulda. Þær eru nú í sömu stöðu og árið 2006. Rúmlega 100 ma.kr. hafa runnið til fjölskyldna í gegnum barna- og vaxtabætur. Húsleigubætur hafa hækkað og dregið hefur úr tekjuskerðingu þeirra. Sérstakar vaxtabætur eru komnar á fyrir íbúðaeigendur með lánsveð. Við ætlum að: Koma á Nýjum húsnæðisbótum fyrir alla. Þeir sem leigja fá jafn góðan stuðning og þeir sem kaupa. Koma 2.000 nýjum leiguíbúðum á markað í samstarfi við sveitarfélög og búseturéttarfélög. Sjá til þess að bankar fjármagni sann- gjarna lækkun skulda þeirra sem keyptu á versta tíma fyrir hrun. Ljúka afnámi stimpilgjalda og leggja af uppgreiðslugjöldin. Koma á stöðugleika og losa heimili og fyrirtæki undan bólum og verð- bólguskotum. Það bætir kjörin mest. Jöfnuður og réttlæti er grunntónninn í stefnu Samfylkingarinnar. Sundr- ung og margir smáflokkar munu veita sérhagsmunaöflunum undir- tökin eftir kosningar. Aðeins samstaða skilar okkur ár- angri. Veljum öruggt og gott samfélag - kjósum Samfylkinguna! Oddný G. Harðardóttir, 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi PÓSTKASSINN n Hildur gunnarsdóttir og ólafur Hannesson skrifar: n oddný g. Harðardóttir skrifar: Ungt fólk og kjörklefinn Loforð sem hægt er að standa við Sjáið aLLa þættina á vf.iS næSti nÝi þáttUR á Ínn veRðUR 6. MaÍ nK. Q SUðURneSjaMaGaSÍn Q Q Pabbi er kominn heim! Guðrún Valdís Þórisdóttir tók þessa mynd af dætrum sínum er þær stóðu á bryggjunni í Grindavík. Þar voru þær að bíða pabba síns sem hafði verið á sjó í mánuð á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. Eins og glögglega má sjá leynir gleðin sér ekki hjá stúlkunum. Guðrún náði þessu skemmtilega augnabliki á símann sinn en það hefur nú heldur betur borgað sig. Guðrún hlýtur að launum miða í Bláa lónið fyrir fjóra, út að borða fyrir fjóra á Olsen Olsen og miða fyrir fjóra hjá Sambíóunum Keflavík. Þær myndir sem einnig komu til greina voru heldur ekkert slor. Sumar flíkur eru einfaldlega meira uppáhalds en aðrar. Það sést greinilega hér þar sem þessi litla stúlka hefur vaxið upp úr skónum en neitar hreinlega að henda þeim. Ótrúlega sætt. Munið að merkja myndirnar ykkar #vikurfrettir á Instagram. Instagram VF 1. Kristinn Ástvaldsson, Ólöf Jónsdóttir, Elísabet Ástvaldsdóttir, Bragi Eyjólfsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Ástvaldur Kristinsson, Greniteigi 26, Keflavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík, mánudaginn 1. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Víðihlíð í Grindavík.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.