Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Síða 35

Víkurfréttir - 24.04.2013, Síða 35
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 24. apríl 2013 35 Á laugardag greiðum við atkvæði um hverjir munu koma hjólum atvinnulífsins í gang á nýjan leik. Að koma atvinnu- lífinu í gang er eitt mikilvægasta verkefnið fyrir ok ku r Su ð u r- nesjamenn og því nauðsynlegt að tryggja gott gengi Sjálfstæðis- flokksins í kosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn mun lækka álögur á fyrirtæki og vinna með þeim í að tryggja íbúum svæðisins atvinnu. Stöðugt umhverfi fyrir atvinnulífið er nauðsynlegt og það verður tryggt með atkvæði þínu veitt Sjálfstæðis- flokknum. Samkvæmt nýjustu könnunum þá er Sjálfstæðisflokkurinn með þrjá menn í Suðurkjördæmi og stutt í þann fjórða. Fremstar í flokki eru þingmennirnir Ragnheiður Elín Árnadóttir og Unnur Brá Konráðs- dóttir sem hafa beitt sér ötullega fyrir Suðurnesin á kjörtímabilinu. Í þriðja sætinu er Ásmundur Frið- riksson, en eins og allir vita sem til hans þekkja, mun hann verða mjög öflugur talsmaður fyrir Suðurnesin og eflingu atvinnulífsins á svæðinu. Fjórði maður listans og þriðji Suður- nesjamaðurinn er Grindvíkingurinn Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður og núverandi varaþingmaður. Vil- hjálmur er tveggja barna faðir og fulltrúi yngri kynslóðarinnar í hópi frambjóðenda og gífurlega mikilvægt að tryggja honum sæti á þingi. Suðurnesjamenn, tryggjum okkur öfluga forystu á þing fyrir Sjálfstæðis- flokkinn! Setjið X við D á laugardag Einar Jón Pálsson, Suðurnesjamaður Það er óhætt að segja að þessar síð- ustu vikur hafa verið lærdómsríkar fyrir mig sem er að sækja um vinnu hjá íbúum Suður- kjördæmis . Að bjóða sig fram til Alþingis og sækja umb o ð s i t t t i l kjósenda er meira en að segja það svo mikið er víst. Ekki síst er það erfitt ef flokkurinn sem maður býður sig fram fyrir er nýr og fjármunir til aug- lýsinga og ferðalaga eru af skornum skammti. Við frambjóðendurnir höfum samt reynt okkar besta til þess að koma okkar sjónarmiðum og áherslum á framfæri með greina- skrifum í staðarblöðin og á vefsíður, eins höfum við heimsótt fólk og staði, tekið þátt í framboðsfundum hér og þar og mætt í útvarpsþætti og sjón- varp. Það er von okkar að fólk hafi þannig getað áttað sig á því hver við erum og fyrir hvað við í Bjartri fram- tíð stöndum. Öll gerum við okkur grein fyrir þeim mikla vanda sem steðjar að í íslensku samfélagi og það hefur ekki farið fram hjá neinum að þar ber skuldavanda heimila hæst. Hann er mikill og á honum verður að taka með einum eða öðrum hætti. Greina ber vandann og ráðast síðan af fullum krafti í að hjálpa þeim sem verst standa. Atvinnumál, samgöngu- mál, menntamál, gjaldmiðilsmál og síðan grunnþjónustan öll eru allt málefni sem taka verður á af festu og ákveðni og leysa til framtíðar. Byggjum upp Björt framtíð vill byggja upp og tryggja sanngjarnt, frjálst og opið samfélag, þar sem leitast er við að halda á lofti grunngildum íslenskrar hefðar, frelsi, jafnrétti, trausti, virð- ingu, og heiðarleika. Samfélag þar sem enginn þarf að þjást af mismunun, fátækt, atvinnuleysi eða skorti á menntun. Samfélag sem tryggir okkur meiri fjölbreytni, minni sóun, meiri stöðugleika, samfélag sem er laust við efnahagslegar kollsteypur. Samfélag þar sem ríkir minna vesen og fólk er laust við óþarfa áhyggjur og getur treyst því að hlutir virki fljótt og vel. Björt framtíð leggur ríka áherslu á meiri sátt í íslensku samfélagi því hér á landi er hver sáttahöndin upp á móti annarri og í sundrung gerist ekki neitt. Björt framtíð vill breyta stjórnmálunum. Vinna að friði. Vil viljum tala af virðingu og sanngirni um hvert annað. Þannig eflum við traust. Björt framtíð trúir því að sam- einuð leysum við öll þau vandamál sem að íslensku þjóðfélagi steðja. Við í Bjartri framtíð viljum í raun hefja hér nýtt landnám þar sem við öll í sameiningu sköpum hamingjuríkt samfélag fyrir okkur og komandi kynslóðir. Hamingjuríkt og áhyggju- laust líf er það sem við öll þráum fyrir okkur sjálf og alla aðra. Hamingjan er spunnin úr aðstæðum sérhvers manns og kjarki hans til þess að taka ákvarðanir um líf sitt. Hamingjan fæst með því að öðlast þekkingu á möguleikum og næmi á þá, setja sér höndlanleg markmið og ná árangri. Góðir íbúar Suðurnesja, næsta laugardag göngum við til kosninga og veljum okkur leiðir til framtíðar. Slíðrum sverðin, snúum bökum saman og tryggjum okkur sjálfum, börnum okkar, barnabörnum og öllum þeim ófæddu einstaklingum sem eiga eftir að fæðast í þessu stór- kostlega landi okkar, bjarta framtíð. Kjósið X-A. Páll Valur Björnsson 1. sæti á lista Bjartrar fram- tíðar í Suðurkjördæmi Á laugardaginn stendur valið milli skýrra valkosta. Við getum valið okkur fulltrúa til starfa á Alþingi sem við teljum m u n a v i n n a h e i ð a r l e g a o g í þágu fólksins í landinu. Ein- staklinga sem við treystum til að vinna af dugnaði og réttsýni. Fólk sem hefur kjark til að takast á við kerfið og spillingu. Jöfnuður eða ójöfnuður Ég er sannfærð um að samfélag jafnaðar sé sterkara og réttlátara en samfélag ójafnaðar. Við berum ábyrgð á náunganum og eigum að láta okkur velferð annarra varða. Það er óásættanlegt að raunveruleg fátækt skuli fyrirfinnast í landi þar sem allt er til alls og ríkidæmi sumra virðast engin takmörk sett. Fyrirheit um að lækka samfélagslegar byrðar af þeim sem hve mest hafa milli handanna og afnám veiðigjalds er fyrirheit um aukna misskiptingu í íslensku sam- félagi. Aukinn ójöfnuð og óréttlæti. Vinstri græn telja sanngjarnt að þeir tekjumeiri greiði meira til samfélags- ins og að þjóðin njóti arðs af auðlind sinn. Þannig getum við búið til vel- ferðarsamfélag sem tryggir öllum aðstoð læknis, lögreglu og annarrar grunnþjónustu óháð búsetu og efna- hag. Umhverfisvernd eða stóriðjustefna Fyrirheit um breytingu á ramma- áætlun þannig að virkjanakostir í neðri hluta Þjórsár verði settir í nýt- ingarflokk eru áform um stóriðju- stefnu. Áform um nýtingu orkunnar til að reisa stórt álver er til marks um einhæfa stefnu í atvinnumálum sem leiðir af sér sóun á mannauð, spillingu á ósnortinni náttúru og eyðileggingu á einstöku lífríki. Við verðum að geta treyst því að lýðræðislega kjörnir full- trúar á Alþingi séu ekki að gæta sér- hagsmuna þegar kemur að ákvarð- anatökum sem þessum heldur að þeir séu talsmenn almennings. Það er þeirra hlutverk að vera rödd fólksins í landinu og líka þeirra sem enga rödd hafa, eins og náttúrunnar og kom- andi kynslóða. Vinstri græn vilja fjöl- breytta atvinnuuppbyggingu í sátt við umhverfi og náttúru. Atvinnustefnu sem byggir á nýsköpun, þekkingu og reynslu fólksins í landinu. Heiðarleg stjórnmál Gamaldags refapólitík og klækja- brögð verða að víkja fyrir heiðar- legum stjórnmálum sem snúast um almenning en ekki stjórnmálamenn- ina sjálfa. Það að stjórnmálaflokkar á Íslandi skuli leyfa sér að ganga óbundnir til kosninga er hinn mesti ósiður og er engum til hagsbóta nema stjórnmálaflokkunum sjálfum. Það á að vera sjálfsagt að kjósendur fái að vita hvort sá flokkur sem þeir hyggjast kjósa vilji starfa í anda félagshyggju eða einstaklingshyggju, jafnaðar eða ójafnaðar, umhverfisverndar eða stóriðjustefnu, almannahagsmuna eða sérhagsmuna. Það er alveg skýrt hvað ég vil. Ég vil félagshyggjustjórn – ég vil Vinstri græn. Arndís Soffía Sigurðardóttir lögfræðingur skipar 1. sæti á lista Vinstri grænna Kæru íbúar í Suðurkjördæmi. Síðustu vikur hafa verið afar ánægjulegar og fróðlegar fyrir okkur frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi. Við höfum heimsótt fjölmarga vinnustaði, hitt fólk, haldið fundi og átt samtal við fleiri hundruð íbúa kjör- dæmisins. Við þökkum ykkur öllum fyrir hlýjar móttökur og skemmtilegar stundir síðustu vikur. Eftir ferðalög okkar um kjördæmið stendur upp úr að : Í Suðurkjördæmi verður til meiri hluti allrar þeirrar orku sem framleidd er á Íslandi, bæði í þágu atvinnulífs og heimilanna. Við eigum enn tækifæri til frekari orkuöflunar og getum þannig skapað grunn fyrir þúsundir vel launaðra starfa um allt kjördæmið. Suðurkjördæmi er stærsta fiskveiði- og fiskvinnslukjör- dæmið á landsbyggðinni. Við sköpum verðmæti og öflum útflutningstekna árlega upp á þúsundir milljóna króna fyrir þjóðina alla. Þar eru einnig gjöful landbúnaðar- héruð og miklir möguleikar til vaxtar hvort sem er í hefð- bundnum greinum, garðyrkju eða í ýmis konar nýsköpun í landbúnaði. Í Suðurkjördæmi er ekki aðeins að finna fyrsta og síðasta viðkomustað allra ferðamanna sem koma til landsins heldur eru í kjör- dæminu allir vinsælustu ferðamannastaðir landsins, s.s. Gullni hringurinn, Þing- vellir, Skógarfoss, Jökulsár- lónið og Bláa Lónið..svo fátt eitt sé nefnt. Ferðaþjónusta aflar þjóðarbúinu milljarða króna í tekjur á ári hverju. Við viljum að íbúar Suður- kjördæmis njóti afrakstur þessara gæða á sanngjarnan hátt og að kostir kjördæmis- ins verði um leið tækifæri íbúanna. Við erum hópurinn sem er algjörlega einhuga um að virkja alla þessa kosti, í þágu heimilanna - í þágu atvinnu- lífsins – í þágu Suðurkjördæmis. Við óskum eftir stuðningi þínum í kosningunum á laugar- daginn. Ragnheiður Elín Árnadóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Vilhjálmur Árnason, Geir Jón Þórisson Innifalið í K-klúbbnum er ársmiði á heimaleiki Keflavíkur, upphitun fyrir leik þar sem góðir gestir mæta og kaffi í hálfleik. Þeir sem hafa áhuga á að ganga í K-klúbbinn hafið sam- band við Jón í síma 844 8069 eða Svein í síma 897 9540 Klúbburinn n Arndís soffíA sigurðArdÓTTir skrifAr: n frAMBJÓðEndur sJÁLfsTÆðisfLokks í suðurkJÖrdÆMi skrifA: n PÁLL vALur BJÖrnsson skrifAr: n EinAr JÓn PÁLsson skrifAr: Skýrir valkostir Við viljum vinna fyrir Suðurkjördæmi Hamingja til framtíðar Stjórnmálin í nútímasamfélagi Ég hef ekki verið að fylgjast mikið með pólitík í gegnum árin fyrr en ég komst að því nýlega að bróðir minn væri í framboði hjá Pírötum í 7. sæti Suðurkjördæmis og þá fór ég að finna fyrir miklum áhuga á pólitík, ég ætla að styðja bróður minn því ég veit að hann vill berjast fyrir meiri réttindum fyrir fatlaða. Stefna Pírata er að bjarga internetinu frá spillingu og koma upplýsingum rétt til fólks og vera með nútímalega nálgun á vandamálum með hliðsjón af tækni- framförum nútímans. Síðastliðinn áratug hafa frjáls samskipti sérstaklega þurft að þola árásir frá mörgum aðilum svo sem ríkisstjórnum og fyrirtækjum eða jafn- vel stórum hluta af þjóð. Fullkomið dæmi um það er þegar stjór- nmálamenn skilja ekki afleiðingar gjörða sinna, vegna vanþekk- ingar á tæknilegum hliðum þess efnis sem um er að ræða eins og tilraunir innanríkisráðuneytisins á Íslandi til þess að stoppa klám á internetinu. Píratar hafa lagst alfarið gegn hugmyndum innan- ríkisráðuneytisins um að ritskoða internetið af nokkurri ástæðu og að það séu afbrotin sjálf sem eru versta vandamálið. Píratar hafa mælst með mikið fylgi samkvæmt könnunum og vonandi ná þeir að koma sínum mönnum inn á Alþingi eftir kosningarnar. Ég ætla að kjósa Samfylkinguna ég hef verið í Samfylkingunni í 4 ár en hef ekki verið mjög virkur en er að pæla í því að vinna við blaðamennsku og pólitík. Framsóknarflokkurinn hefur mælst með mikið fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi líka. Ég held að þetta endi með því að framsóknarmenn og sjálfstæðismenn verði í ríkisstjórn saman. Að vera öryrki er ekki val eða lífsstíll. Það fær enginn örorkumat nema að undangengnu læknisfræðilegu mati, í kjölfar veikinda eða slysa. Það eitt að lenda í slíkri stöðu er áfall í sjálfu sér. Því teljum við mikilvægt að þeir sem fá 75% örorkumat fái frá upphafi skýrar og greinargóðar upplýsingar um réttindi sín og þá þjónustu sem í boði er. Það er mikilvægt að þeir sem eiga, lögum samkvæmt, að veita fötluðu fólki – og þar með öryrkjum – þjón- ustu, eigi frumkvæði að því að fólk geti nýtt sér lögbundna þjónustu. Ég ætla í framtíðinni að fylgjast betur með pólitík og koma málefnum fatlaðra og öryrkja í umræðu og að það sé eitthvað gert í málum þeirra. Kær kveðja, Friðrik Guðmundsson n friðrik guðMundsson skrifAr: Tryggjum öfluga forystu fyrir Suðurnes

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.