Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 36
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR36
SPORTIÐ
Elís tekur við
kvennaliðinu
Elís Kristjánsson
hefur tekið v ið
þjálfun kvennaliðs
Keflavíkur í knatt-
spyrnu tímabundið,
en Snorri Már Jóns-
son sem hafði þjálfað liðið á síðasta
tímabili er hættur störfum. Elís
hefur starfað lengi sem þjálfari hjá
Keflavík og meðal annars þjálfað
yngri flokka kvenna í mörg ár. Elís
mun nú þjálfa lið meistaraflokks
næstu mánuði eða þar til annað
verður ákveðið. Frá þessu er greint
á heimasíðu Keflavíkur.
Halldór í UMFN
Halldór Örn Hall-
d ó r s s o n h e f u r
samið við körfu-
k n at t l e i k s d e i l d
UMFN þess efnis
að leika með liðinu
næstu tvö ár in.
Halldór Örn er 200 cm framherji/
miðherji. Greint er frá þessu á
heimasíðu UMFN.
Halldór Örn, sem lék með UMFN
í yngri flokkunum á árunum 1995-
1997, kemur til liðs við félagið frá
Þór á Akureyri þar sem hann lék
á nýliðnu tímabili. Þar skilaði
hann 14,2 stigum á leik og tók 7,2
fráköst (heildarframlag á leik upp
á 15,0). Halldór Örn lék einnig
lengi með Keflavík, og tvö tímabil
með Breiðablik, en þá lék hann
einmitt undir stjórn Einars Árna
Jóhannssonar þjálfara UMFN.
Keflavík er komið yfir í úrslita-
einvígi sínu gegn KR um Íslands-
meistaratitilinn í Domino’s deild
kvenna í körfuknattleik. Keflavík
lagði KR í fyrsta leik liðanna, 70-
52, í Toyotahöllinni á laugardag.
Jafnræði var með liðunum framan
af leik en Keflavíkurstúlkur sigu
fram úr í seinni hálfleik og unnu að
lokum 18 stiga sigur.
Jessica Ann Jenkins var stigahæst
í liði Keflavíkur með 23 stig og
Birna Valgarðsdóttir kom næst
með 14 stig. Stigaskorið dreifðist
nokkuð vel hjá Keflavíkurstúlkum
sem náðu einnig að halda Shan-
non McCallum hjá KR nokkuð í
skefjum. McCallum skoraði 26 stig
en hún er líklega einn besti leik-
maðurinn í deildinni og algjör
lykilmaður í liði KR.
Bryndís Guðmundsdóttir, leik-
maður Keflavíkur, er ánægð með
að liðið sé komið yfir í einvíginu
um titilinn. Liðin mætast öðru
sinni í Vesturbænum í kvöld. „Það
er gott að fara í Vesturbæinn 1-0
yfir. Okkur gekk vel að stöðva
McCallum. Hún var reyndar oft að
setja niður mjög erfið skot en okkur
gekk vel í varnarleiknum. KR liðið
þurfti að skjóta mikið fyrir utan því
við lokuðum vel teignum,“ segir
Bryndís.
„Leikurinn var jafn framan af en
við sigum svo fram úr í þriðja
leikhluta. Við erum með breiðan
og sterkan hóp leikmanna sem
skipti kannski sköpum. Þó varnar-
leikurinn hafi verið góður þá hefði
sóknarleikurinn mátt vera betri.
Okkur hefur ekki tekist að leika vel
Keflavík náði foryst-
unni í einvíginu um
Íslandsmeistaratitil
kvenna í körfu:
Vanmetum ekki kR
Keflavíkurstúlkur komnar á bragðið eftir sigur í fyrsta leik úrslitarimmunnar
bæði í vörn og sókn á
sama tíma en vonandi
kemur þetta í leiknum
í kvöld.“
Keflavík varð síðast
Íslandsmeistari kvenna árið 2011.
Titillinn fór til Njarðvíkur á síðasta
ári og eru Keflavíkurstúlkur stað-
ráðnar í að enda tímabilið með
því að hampa stærsta titlinum í ís-
lenskum körfubolta. „Það kemur
ekkert annað til greina,“ segir Bryn-
dís. „Þó að við séum komnar yfir í
einvíginu þá vanmetum við ekki
KR. Þær munu mæta dýrvitlausar í
leikinn í kvöld og munu spila betur
í sókninni en þær gerðu í fyrsta
leik. Þetta verður alls ekki auðvelt
en við ætlum okkur að verða Ís-
landsmeistarar.“ Íslandsmótin í júdó fóru fram
fyrir skömmu og náðu júdódeildir
Grindavíkur og Njarðvíkur fínum
árangri. Sigurpáll Albertsson frá
Grindavík keppti í fullorðinsflokki
og vann til bronsverðlauna.
Sigurpáll keppti í -100 kg flokki og
voru þar sex keppendur sem skipt
var í tvo riðla. Sigurpáll vann sína
fyrstu glímu en tapaði annarri
gegn sigurvegara flokksins. Hann
komst þó upp úr riðlinum og
keppti undanúrslitaglímu þar
sem hann var yfir á stigum þar
til á lokasekúndunum þegar and-
stæðingur hans kastaði honum.
Hann hafnaði því í 3. sæti.
Þá fór fram Íslandsmót U21 árs
og kepptu þar þeir Björn Lúkas
Haraldsson og Guðjón Sveinsson
úr Grindavík. Björn Lúkas varð
Íslandsmeistari þriðja árið í röð í
-81 kg flokki og vann Guðjón til
bronsverðlauna í -73 kg flokki.
Njarðvík sendi 11 keppendur á
Íslandsmót barna- og unglinga.
Njarðvík vann til 10 verðlauna,
eitt gull, fjögur silfur og fimm
bronsverðlaun. Ingólfur Rögn-
valdsson varð Íslandsmeistari í
-34 kg flokki barna 11-12 ára.
Hann vann sinn flokk með yfir-
burðum.
Björn Lúkas
Íslands-
meistari í
jódó þriðja
árið í röð
Kö r f u k n at t l e i k s þ j á l f a r i n n
Hrannar Hólm sem starfað hefur
í Danmörku undanfarin ár, bætti
enn einni rós í hnappagat sitt þegar
hann var valinn þjálfari ársins í
þriðja sinn í röð hjá vefsíðunni
Eurobasket.com. Hrannar þjálfar
kvennalið SISU sem hefur undir
hans stjórn unnið tvöfalt undan-
farin þrjú tímabil. Lið Hrannars
taplaust í gegnum tímabilið 2013.
Samtals 33 sigurleikir að baki. Er
það í fyrsta sinn í kvennadeild
Danmerkur að lið fer taplaust í
gegnum deildarkeppni.
Hrannar hefur nú verið ráð-
inn íþróttastjóri hjá danska
körfuboltasambandinu og með
ráðningu Hrannars mun starfið
breytast og stór hluti þess snúast
um að finna og efla efnilegustu
körfuboltamenn og konur Dan-
merkur. Hrannar mun því hverfa
frá þjálfun.
Hrannar
þjálfari ársins
í Danmörku
Keflvíkingar eru
búnir að ákveða
hvernig búningur
liðsins í Pepsi-deild
karla verður í sumar.
Hann tekur örlitlum
breytingum frá því sem
verið hefur síðustu ár.
Liðið mun áfram leika
í dökkbláum peysum
en buxur og sokkar
verða hvítir. Með þessu
er horfið aftur til upp-
hafsins en búningur
liðsins var þannig á
upphafsárum þess
og aftur upp úr 1990.
Keflavík lék einmitt í
svörtum peysum og
hvítum buxum þegar
liðið varð Íslandsmeist-
ari árin 1964, 1969
og 1971. Einnig er
hugmyndin að breyta
til og létta aðeins yfir
búningnum miðað við
það sem verið hefur.
Varabúningurinn
verður algulur en sá
búningur var tekinn í
notkun í fyrrasumar. Á
meðfylgjandi mynd má
sjá Hörð Sveinsson og
Bojan Stefán Ljubicic,
leikmenn og fyrirsætur
Keflavíkurliðsins.
keflvíkingar
aftur í hvítar
stuttbuxur
Bryndís fékk góða heimsókn í Toyota
höllina þegar mæðgurnar Oddný
Harðardóttir, frambjóðandi og
dóttir hennar Inga Lilja Eiríksdóttir
fögnuðu sigrinum með henni.
Bryndís og Ingunn Embla fengu
plástur í leiknum gegn KR hjá Önnu
Pálu sjúkraþjálfara. Keflavíkur-
stúlkur fögnuðu vel í leikslok.