Víkurfréttir - 24.04.2013, Síða 37
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 24. apríl 2013 37
VEGNA ALÞINGISKOSNINGA
Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM
27. APRÍL 2013
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Kosið verður í Stóru-Vogaskóla,
gengið inn frá leikvelli.
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna
alþingiskosninga liggur frammi almenningi til
sýnis á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins fram að
kjördegi.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki
hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á
að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
KJÖRFUNDUR
VÍKURFRÉTTIR
Í SÍMANN
m.vf.is
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 11. apríl - 17. apríl. nk.
• Bingó • Gler-, keramik- og leir-
námskeið • Handavinna
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Línudans • Félagsvist •
Tölvuklúbbur • Bridge •
Hádegismatur • Síðdegiskaffi
Föstudaginn 26. apríl nk. á
Nesvöllum kl. 14:00
Dönsum saman /Danssýning
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar í
síma 420 3400 eða á
www.nesvellir.is/
SMÁAUGLÝSINGAR
421 0000
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM
SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
ÓSKAST
Óska eftir 3ja herbergja íbúð
Í Reykjanesbæ til leigu. Erum eldri
hjón með öruggar greiðslur. Uppl.
í síma: 6927781 Steini, helst eftir 7
á kvöldin.
3-4 herb. í Reykjanesbæ
Einstæð móðir með tvö börn
óskar eftir íbúð í júní/júlí. Traustar
greiðslur. Get borgað tryggingu og
sýnt fram á meðmæli. Skoða allt.
Guðrún Ósk, oskin_90@visir.is
TAPAÐ/FUNDIÐ
Fugl
Í síðustu viku fannst fyrir utan
Sundmiðstöð Keflavíkur þessi
dísarfugl. Lögreglan kom og tók
upplýsingar en ekkert hefur gerst.
Fuglinn er heima hjá einum starfs-
manni sundmiðstõðvar í góðu yfir-
læti. Upplýsingar i síma 8665861
Jóna.
KAUPUM
BÍLA Í
NIÐURRIF
Eigum varahluti
í marga bíla
Iðavellir 9c - 230 Reykjanesbæ - 421 7979
www.bilarogpartar.is
Reykjanesmótið í Götuhjól-reiðum verður haldið í 5.
skipti um næstu helgi. Í ár ber
mótið heitið, ORBEA Reykjanes-
mótið í götuhjólreiðum, en Inter-
sport sem er innflutningsaðili
á ORBEA hjólum styrkir fram-
kvæmdina.
Í boði eru tvær vegalengdir: 32
km (byrjendaflokkur) eða 64 km
(keppnisflokkur). Keppt verður
laugardaginn 27. apríl kl. 10:00.
Mæting er við sundlaugina í Sand-
gerði og ræst verður frá Hvalsnes-
vegi.
Eins og áður sagði þá er mótið nú
haldið í 5. skipti en upphaf þess
kemur frá tveimur öflugum frum-
kvöðlum, þeim Haraldi Birgi
Hreggviðssyni og Inga Þór Einars-
syni. Mótið hefur stöðugt orðið
vinsælla í hjólaheiminum, en það
má einkum rekja til góðs skipulags
á mótahaldinu, sem og stórkost-
legra verðlauna og útdráttarverð-
launa, ásamt veglegum veitingum.
Á þessum tíma hefur fjöldi kepp-
enda margfaldast, úr 30 í það að
vera tæplega 100 keppendur sl. ár. Í
ár er jafnvel búist við enn fleirum.
Tvö síðastliðin ár þá hefur Þrí-
þrautardeild UMFN komið inn í
þetta með þeim félögum og nú í ár
er sjálfvirk tímataka í fyrsta skipti.
Fjöldi fyrirtækja gefur verðlaun og
Sandgerðisbær hefur verið einkar
liðlegur í að veita aðgang að sund-
lauginni í verðlaunaafhendingu og
slökun eftir mótið.
Mótið í ár er sérstaklega sterkt
þar sem það verður úrtökumót
fyrir íslenska hjólalandsliðið fyrir
Smáþjóðaleikana. Sjón er því sögu
ríkari um helgina fyrir þá sem vilja
fylgjast með, en jafnframt viljum
við biðja vegfarendur að vera þolin-
móða og taka tillit til keppenda.
Nánari upplýsingar um mótið er á
hjolamót.is, en skráningargjald er
2500 kr. fyrir keppnisflokkinn og
1500 kr. fyrir byrjendaflokkinn.
Reykjanesmótið í götuhjólreiðum
Besta hjólreiðafólk landsins hjólar frá Sandgerði á kosningadaginn.
Grindvíkingar eru komnir út í horn í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik.
Þeir töpuðu þriðja leiknum gegn
Stjörnunni í Röstinni á mánu-
dagskvöld, 89-101, og verða að
vinna í Ásgarði á morgun til að
knýja fram oddaleik á sunnu-
dag. Fari svo að Stjarnan vinni á
morgun þá eru Garðbæingar Ís-
landsmeistarar.
Ungur leikmaður í Grindavíkurlið-
inu, Davíð Ingi Bustion, hefur vakið
eftirtekt í vetur og margir hafa velt
því fyrir sér hvaðan þessi tvítugi
leikmaður kemur. Davíð Ingi á
ættir sínar að rekja til Grindavíkur
en móðir hans kemur þaðan. Hann
hefur verið búsettur í Sviss nánast
allt sitt líf en ákvað að flytja til Ís-
lands í vetur og leika körfuknattleik
með Grindavík.
„Tíminn í Grindavík hefur verið
frábær,“ segir Davíð Ingi. „Ég er
búinn að æfa körfubolta lengi en
hætti að spila í Sviss fyrir tveimur
árum og flutti svo til Bandaríkj-
anna. Ég var þar í skóla en gat ekki
spilað með skólaliðinu. Ég hafði
aldrei áður spilað með meistara-
flokki þegar ég byrjaði að æfa með
Grindavík. Ég vildi prófa að búa
hérna og finna sjálfan mig sem
Íslending. Ég á stóra fjölskyldu í
Grindavík og fólkið hér er frábært.
Grindavík hefur alltaf verið liðið
mitt þó ég hafi búið erlendis allt
mitt líf.“
Davíð Ingi Bustion hefur
fulla trú á að Grindvík-
ingar komi til baka í ein-
víginu gegn Stjörnunni:
Nýtur þess að leika með
Grindavík
Davíð Ingi hefur spilað körfubolta
síðan hann var barn og lærði hann
íþróttina af föður sínum sem var at-
vinnumaður í körfubolta. „Í yngri
flokkunum snerist allt um vörn
og við spiluðum mjög fast. Öll hin
liðin í Sviss voru mjög hrædd við
okkur,“ segir Davíð Ingi og hlær.
Hann hefur fengið að spila mikið
með Grindavík í vetur og sannað
sig sem góður varnarmaður. Davíð
varð reyndar fyrir því óláni að
handleggsbrotna skömmu eftir
áramót og missti í kjölfarið af
bikarúrslitaleiknum sem Grind-
víkingar töpuðu fyrir Stjörnunni.
Hann er búinn að jafna sig að fullu
af þeim meiðslum.
„Ég fór inn í tímabilið með engar
væntingar og hef notið þess að fá að
leika með þessum frábæru strákum.
Ég er búinn að læra rosalega mikið,
hvort sem það er inni á vellinum
eða á bekknum að horfa á liðið.
Ég var lykilmaður í liðinu mínu í
Sviss og er vanur að spila mikið.
Ég geri alltaf mitt besta og reyni að
vinna vel fyrir liðið,“ segir Davíð.
Hann stefnir að því að komast inn í
Listaháskólann í haust og hefja nám
í arkitektúr. Hann hefur undan-
farið verið við nám í Iðnskólanum í
Hafnarfirði til að undirbúa sig fyrir
það nám en hann hefur nú þegar
lokið stúdentsprófi.
Við getum snúið þessu við
Þó Grindvíkingar séu komnir út í
horn í einvíginu gegn Stjörnunni
þá er Davíð ekki búinn að gefa upp
alla von um að liðið geti hampað
Íslandsmeistaratitlinum um næstu
helgi.
„Við eigum góðan séns. Allir
í liðinu vita að við getum unnið
Stjörnuna. Þetta snýst aðallega um
okkur sjálfa – hvað við ætlum að
gera. Við þurfum að framkvæma
okkar hlutverk og spila fyrir liðið.
Það er mikil reynsla í Stjörnuliðinu
og það verður erfitt að vinna þá
en við getum snúið þessu við. Í
fyrsta leiknum vorum við frábærir
og unnum stóran sigur. Annar
leikurinn var hræðilegur en þriðji
leikurinn var betri – við hættum að
spila sem lið á síðustu mínútunum.
Við erum búnir að fara yfir það
sem við gerðum vitlaust í öðrum
leik og líka eftir þriðja leik. Þetta
verður komið í lag á morgun. Ef
við spilum vel þá eigum við mjög
góðan möguleika. Við þurfum ekki
að vinna stórsigur, bara að vinna
með einu stigi.“
Vildi finna
sjálfan mig
sem Íslending
Fáðu TILBOÐ hjá
söluráðgjafa í síma
421 0001 eða á fusi@vf.is
Óþekktur leikmaður, Davíð
Ingi Bustion, hefur komið á
óvart með Grindavík í vetur.