Neytendablaðið - 01.09.2010, Qupperneq 21
„Ein mikilvægasta bók um umhverfismál sem komið hefur út
undanfarin ár. Fáar bækur hafa gert mig jafn reiðan.“ Þannig
komst gagnrýnandi Financial Times að orði eftir að hafa les ið
bókina Waste - uncovering the global food scandal eftir Tristram
Stuart. „Ein af þessum bókum sem allir ættu að lesa. Hún gæti
breytt viðhorfi okkar til matar um ókomna tíð,“ segir gagn rýn-
andi The Independent.
Mat sóað í stórum stíl
Sú jákvæða athygli sem bókin hefur fengið kemur ekki á óvart.
Með rök studd um hætti rekur Tristram þau gríð ar lega neikvæðu
umhverfisáhrif sem sóun matvæla hefur í för með sér. Hann bend ir á
að ekkert hafi haft jafn mikil áhrif á vistkerfi jarðar og nútíma land
bún aður. Eftirspurn eftir mat í einum heims hluta þrýstir á um aukna
land nýtingu hinum megin á hnettinum og stór um landsvæðum er
breytt í rækt unar land, oft á kostnað mikilvægra vist kerfa svo sem
regnskóga. Það er því sláandi hversu mikill hluti matvæla endar á
ruslahaugum. Með aðeins broti af þeim matvælum sem er hent í
heiminum væri hægt að fæða þann milljarð sem sveltur.
Auðveldasta leiðin að hætta að sóa mat
Neytendablaðið sló á þráðinn til Tristrams og spurði hann fyrst
hvern ig hann fékk áhuga á sóun matvæla.
„Sem umhverfisverndarsinni uppgötvaði ég að ein auðveldasta
leiðin í baráttunni fyrir betra umhverfi er að hætta að sóa mat. Það
er í raun einfalt skref sem krefst ekki mikilla breytinga á lifnaðar
háttum en er jafnframt gríðarlega mikilvægt því eins og málum er
háttað í dag er matvælaframleiðsla heimsins ósjálfbær.“
Tristram nefnir einnig að hann hafi á unglingsárum alið gyltu sem
lifði aðallega á afgöngum sem hann viðaði að sér. „Einn daginn
ákvað ég að smakka brauðið sem var ætlað gyltunni og komst að
því að það var í fullkomnu lagi og reyndar betra en brauðið sem ég
var vanur að kaupa úti í búð. Ég varð forviða yfir því að matvælum
sem voru fullgóð til manneldis væri hent og að þessi sóun ætti sér
stað úti um allan heim.“
Ætilegt í ruslatunnum
Tristram segir þetta að einhverju leyti hafa verið upphafið að lífsstíl
sem gengur út á að hirða ætilegan mat sem hefur verið hent. Hann
segir eðlilegt að það veki sterk viðbrögð þegar fólk heyrir talað um
slíkt „sorptunnugrams“. „Eðli málsins samkvæmt ætti auðvitað
ekkert ætilegt að finnast í ruslatunnum. Markmiðið með þessum
lífsstíl er einmitt að sýna fram á hversu fáránleg þessi sóun er.“
Aðspurður segir Tristram að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir
því hversu miklu er hent af mat og hversu víðtæk og neikvæð
umhverfis áhrif þessu sóun hafi. „Það var einmitt markmiðið með
bókinni að upplýsa um þá sóun sem á sér stað á öllum stigum og
útskýra hvers vegna nauðsynlegt sé að snúa þróuninni við. Og það
er tiltölulega einfalt með því að sóa minna.“
Kjötframleiðsla óumhverfisvæn
Í bókinni er fjallað um þau neikvæðu umhverfisáhrif sem fram
leiðsla á kjöti hefur í för með sér. Tristram segir að í eina tíð hafi
búfénaður verið látinn borða gras eða afganga sem maðurinn gat
ekki nýtt með það fyrir augum að af búfénaðinum fengist síðan
kjöt til manneldis. Nútímalandbúnaður á Vesturlöndum gengur
hins vegar út á að fóðra dýrin í stórum stíl á fæði sem við gætum
borðað sjálf. „Því meiri sem eftirspurnin er eftir kjöti því meira
fóður þarf að rækta með tilheyrandi landnýtingu og skógarhöggi.
Það væri því skynsamlegt og ábyrgt að borða minna af kjöti og
mjólkurvörum þar sem búfénaðurinn er alinn á korni og öðrum
ræktuðum afurðum.“
Bjartsýnn á breytingar
Við lestur bókarinnar er ekki laust við að manni fallist hendur því
sóunin er svo gríðarleg. Er yfirhöfuð hægt að snúa þróuninni við?
„Það efast ég ekki um, og umræðan um þetta vandamál hefur aukist
mikið, sérstaklega í Bretlandi en líka í öðrum löndum. Ég sé þegar
breytingar þannig að það er engin ástæða til annars en bjartsýnni.
Lausnin á vandanum snýst í raun um heilbrigða skynsemi. Við
eigum að borða matinn, ekki henda honum.“
BP
Hættum að henda mat
− borðum hann!
Mynd: Alice Albinia
Tristram Stuart, höfundur Waste, er sagnfræðingur með
gráðu frá hinum virta Trinity College í Cam bridge. Hann
hefur skrif að bækur og pistla um mat væli og um hverfis mál
og hefur vakið mikla at hygli fyrir baráttu sína gegn sóun á
mat vælum.
Fæstir geta eflaust ímyndað sér að nokkuð ætilegt sé að finna í ruslapokum versl-
ana en myndirnar í bókinni leiðrétta slíka ranghugmyndir.
Á þessari mynd má sjá úrval ávaxta og grænmetis sem verslunin Waitrose hafði
hent.
21 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2010