Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 13

Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 13
Jóhannes Gunnarsson forma›ur Neytendasamtakanna Það er ekki ástæða til að tíunda hér þann fjárhagslega vanda sem mörg heimili standa frammi fyrir. Þótt það sé ákveðin einföldun má segja að vandinn sé mestur hjá þremur hópum. Í fyrsta hópnum eru ein stæðir foreldrar sem eiga í miklum erfiðleikum með að ná endum saman. Annar hópurinn er einkum yngra fólk sem keypti sér hæfi lega stóra fasteign þegar verð þeirra var í hæstu hæðum og tók jafnvel myntkörfu lán til að fjármagna kaupin að miklu eða öllu leyti. Þriðji hópurinn lifði einfaldlega langt um efni fram og býr í alltof stórum eignum auk þess að sitja uppi með ýmislegt sem keypt var á „góðæris tímanum“, t.d. tvo bíla, húsvagn og margt fleira, og var jafnvel allt fengið með myntkörfulánum. Vissulega brugðust fors endur alls þessa fólks, og raunar flestra, vegna gengisfalls með tilheyr andi verðbólgu. Vöruverð hækkaði um leið og atvinnuleysi jókst og laun jafnvel lækkuðu. Nú liggur fyrir sú nöturlega staðreynd að nauðungaruppboð á íbúðar húsnæði eru að hefjast. Hægt er að sækja um frestun á nauð­ ungar sölu í þrjá mánuði, en hafi verið sótt um frestun t.d. í mars renn ur sá frestur út í júní og engir frekari frestir eru veittir. Hægt verður að sækja um frest allt þar til lögin falla úr gildi þann 31. október 2010, en eftir það verða engin frekari úrræði til að fresta nauð ungar sölu. Það er því ljóst að að margir munu missa eignir sínar. Þá skiptir máli hvernig kröfuhafar haga sér. Ætla þeir að henda íbúunum út eða á að bjóða þeim að leigja á skikkanlegu verði, en leiguverð húsnæðis hefur lækkað mikið á undanförnum mán uðum. Varla er það betra fyrir lánveitendur að sitja uppi með tóm ar íbúðir, auk þess sem spyrja má hvar þetta fólk ætti annars staðar að búa. Ef farin er sú leið að bera fólk út af heimilum sínum án þess að það hafi sómasamlegan samastað þá getur það haft alvar legar afleiðingar í för með sér. Mýkri leiðir hljóta að teljast væn legri fyrir báða aðila. Stjórnvöld og lánastofnanir hafa boðið heimilum sem stríða við fjár hags vanda upp á ýmsar aðgerðir, oftar en ekki við dræmar undir tektir skuldara. Annað hvort áttar almenningur sig ekki á því hvað felst í þessum tilboðum eða hann telur þau ekki vera lausn vanda mála sinna. Ljóst er þó að stjórnvöld geta gripið til ýmissa aðgerða. Þar má nefna frumvarp félagsmálaráðherra um að heimila Íbúðarlána­ sjóði að bjóða til leigu íbúðir sem keyptar hafa verið á nauðungar­ uppboði með ákvæði um kauprétt leigjenda. Húsaleigan tekur þá mið af markaðsleigu á viðkomandi svæði. Einnig á, með aukn um lánamöguleikum, að efla byggingu á vegum húsnæðissamvinnu­ félaga. Í þessu felst m.a. að húsnæðisfélögum verður auðveldað að endur fjármagna búsetaíbúðir þegar skipt er um búseturéttarhafa. Við höfum alltaf byggt á sjálfseignarkerfinu í húsnæðismálum, en er það besta leiðin? Vissulega eru margir fleiri kostir í stöðunni og þá ekki síst hvað varðar húsnæðissamvinnufélög sem stjórnvöld ætla nú að efla. Einnig hefur löngu verið ljóst að hér vantar stærri leigu­ markað. Loks hlýtur að koma til skoðunar einhverskonar „verka­ manna bústaðakerfi“ sem illu heilli var lagt af fyrir allmörgum árum. En nánar að húsnæðissamvinnufélögunum. Í þessu blaði er rætt við Steinar Júlíusson, sem nú er komin á eftirlaun. Steinar hefur í 21 ár búið í íbúðum á vegum slíkra félaga, fyrst 2 ár í Ósló og síðan hjá Búseta. Í viðtalinu kemur fram að víða um heim eru hús næðis samvinnu félög gríðarlega öflug og má þar nefna að 80% Berlínar búa búa í húsnæði af þessum toga. Það gera einnig 3.8 milljón ir íbúa New York og þegar húsnæðishrunið gekk yfir þar vestra stóðu húsnæðissamvinnufélögin af sér storminn. En er það góð leið fyrir fjölskyldur að taka stór lán til fjármagna íbúðar kaup? Ekki telur Steinar það og bætir því við að „engin fjöl­ skylda ætti að skuldsetja sig um ókomin ár í óvissu og áhyggjum vegna kaupa á íbúð.“ Með breyttu Íslandi þurfa að verða breytingar á húsnæðiskerfinu sem við búum við og valkostum verður að fjölga. Þar gegna hús ­ næð is sam vinnu félögin mikilvægu hlutverki. Húsnæðismál í skugga hrunsins 13 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.