Neytendablaðið - 01.06.2009, Síða 17
Í janúar á þessu ári gaf bandaríska matvæla- og lyfjastofnunin
FDA út þá yfirlýsingu að neysla á afurðum (mjólk og kjöti) úr
klónuðum dýrum og afkvæmum þeirra væri örugg. Það er því
leyfilegt að rækta klónuð dýr til manneldis í Bandaríkjunum en
slíkt er enn bannað í Evrópusambandinu.
Dýrt að klóna - ennþá
Ekki er búist við að afurðir úr klónuðum dýrum verði fyrirferðar
miklar á markaði á næstunni þar sem klónun er enn mjög kostn
aðarsöm (15.00020.000 bandaríkjadalir fyrir dýr). Líklegast er talið
að þau dýr sem best eru til undaneldis verði klónuð og því munu
klónuðu dýrin sjálf ekki lenda í fæðukeðjunni heldur afkvæmi
þeirra. Þrátt fyrir að ekki sé staðfest að neysla á klónuðum afurðum
sé skaðleg hafa neytendur sterkar skoðanir á klónun rétt eins og á
erfðabreyttri ræktun. Því hafa margir framleiðendur lýst því yfir
að þeir muni ekki nota mjólk eða kjöt úr klónuðum dýrum í sínar
vörur.
Merkingar
Það sem veldur neytendum ekki síst áhyggjum er sú staðreynd að
framleiðendur þurfa ekki að merkja klónaðar afurðir sérstaklega.
FDA hefur þó gefið í skyn að hugsanlega geti seljendur merkt afurðir
sínar sérstaklega ef þeir vilja taka fram að þær séu ekki klónaðar.
Klónframleiðendur hafa lagt til RFIDmerkingu (rekjanlegt örmerki)
á klónuð dýr og afkvæmi þeirra en slíkt virkar þó aðeins fram að
slátrun. Eftir slátrun er engin leið að sjá hvort kjöt er af klónuðu
dýri og mjólk úr afkvæmum klónaðra kúa lítur alveg eins út og
mjólk úr venjulegum kúm.
Aprílgabb
Ísframleiðandinn Ben & Jerry er meðal þeirra fyrirtækja sem hefur
ákveðið að nota ekki mjólk úr klónuðum kúm í framleiðslu sína og
hefur auglýst það rækilega. Fyrirtækið setti á fót gervifyrirtæki á
netinu www.CycloneDairy.com sem sagt var framleiða mjólkurvörur
eingöngu úr klónuðum kúm. Fyrirtækið stóð fyrir kynningu á
100% klónaðri mjólk á götum Manhattan en forviða vegfarendur
féllu ekki fyrir vörunni og höfðu alls kyns efasemdir um framleiðslu
af þessu tagi. Forstjóri Ben & Jerry segir greinilegt að neytendur
hafi engan áhuga á klónaðri mjólk eða „cloned milk“. Fyrirtækið
hvetur neytendur til að senda áskorun til stjórnvalda um að tryggja
rekjanleika klónaðra afurða í fæðukeðjunni.
Heimild: Foodnavigator.com
Klónaðar afurðir á markað
Þessar fallegu kýr eru ekki klónaðar enda íslenskar.
Þar sem ég vinn niðri í miðbæ Reykjavíkur og bý í öðru sveitarfélagi
myndu margir ganga út frá því að ég hlyti að vera þræll einkabílsins.
En svo er ekki; ég er löngu búin að átta mig á þeirri staðreynd að til
eru fleiri ferðamátar. Í vetur notaði ég strætó og nú með hækkandi
sól nota ég oftast hjólið. Hjólreiðamönnum hefur fjölgað þó nokkuð
í umferðinni og það er jákvætt. Þetta er fólk á leið í vinnu, eins
og ég. En ég hef tekið eftir því að margir taka hjólreiðarnar mjög
alvarlega og klæða sig í spandexgalla sem hrindir frá sér vatni og
vindi og bera með sér bakpoka og vatnsflösku líkt og verið sé að
taka þátt í maraþoni. Ég vil minna á að það er ekkert því til fyrir
stöðu að hjóla í venjulegum fötum. Sjálf læt mig hafa það að hjóla
í pilsi með veskið í körfunni, svona í anda leikkonunnar Femke sem
sjá má á síðu 9, nema hvað ég nota auðvitað hjálm. En það á ekki
að þurfa að fara í sturtu og skipta um föt þegar á vinnustaðinn er
kominn, ekkert frekar en þegar þú kemur á bílnum eða með strætó.
Í umferðinni hjóla sumir líkt og þeir væru í hjólreiðakeppni. Um
daginn geystist hjólreiðamaður fram úr mér á gatnamótum og þótti
mér hann ansi kræfur þegar hann fór yfir á rauðu ljósi án þess að
líta til hægri eða vinstri. Ég náði manninum samt fljótlega því á
næstu gatnamótum kom ég að honum liggjandi á götunni. Hann
hafði verið keyrður niður en virtist sem betur fer ekki illa haldinn.
Vonandi lærði hann eitthvað af þessu.
Munið, við erum bara með eitt höfuð. NOTUM HJÁLMINN!
Nöldrarinn
M
yn
d:
L
ár
a.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2009