Ægir - 01.07.2004, Page 5
Gæði - Öryggi - Þjónusta
Ný DHB-dælulína frá Iron Pump
Sérhannaðar til notkunar til sjós
Leytið nánari upplýsinga
Danfoss hf
Skútuvogi 6 104 Reykjavík
Sími 510 4100 • www.danfoss.is
IR
O
N
A
4
Lít ekki á mig sem sægreifa
„Nei, blessaður vertu, ég lít ekki á mig sem neinn sægreifa. Ég er fyrst og
fremst vinnumaður við þessa útgerð og ég hef ennþá mjög gaman af því
sem ég er að fást við. Þegar manni líður vel í vinnunni, þá er ekki hægt að
kvarta. En ég neita því ekki að það hafa komið stundir þegar maður spyr
sjálfan sig hvern andskotann maður sé að standa í þessu,“ segir Sverrir Leósson, útgerðar-
maður Súlunnar EA, m.a. í hressilegu Ægisviðtali
Hefð fyrir saltfiski á austurströnd Kanada
„Það er mikil hefð fyrir saltfiskvinnslu og -þurrkun hér. Við erum nokkuð
vel staðsettir til að geta afhent vöruna fljótt og örugglega. Ef vara er
pöntuð á fimmtudegi eða föstudegi getum við afhent hana á mánudegi
eða þriðjudegi í New York eða Miami,“ segir Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF Canada og fyrrv. framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar.
Aldrei að gefast upp!
„Hvað eiga menn að gera sem hafa unnið alla sína hunds- og kattartíð?
Gefast upp? Nei, aldrei! Mér fannst skynsamlegast að fara í það sem ég
kann best, þ.e.a.s. á sjóinn, og byrja rólega. Síðan þróaðist þetta smám
saman í rétta átt og nú get ég sagt að ég finn ekki fyrir neinu, það er
fyrst og fremst gaman að lifa,“ segir Viggó Jón Einarsson, trillukarl á
Hofsósi í hressilegu bryggjuspjalli.
Gömlu frystihúsin fá margvíslegt hlutverk
Gömlu frystihúsin hafa fengið margvíslegt hlutverk um allt land.
Þar sem áður var hefðbundin fiskvinnsla er nú t.d. beituframleiðsla
á Ísafirði, púttvöllur í Vestmannaeyjum, slökkvibílaframleiðsla í
Ólafsfirði o.s.frv. Og eitt af hinum fornfrægu frystihúsum, Ísbjörn-
inn í Reykjavík, er nú horfið af yfirborði jarðar og ekkert minnir á
það nema dægurlagatexti Bubba Morthens. Ægir birtir úttekt á ör-
lögum gömlu frystihúsanna.
Átak í gerð sjókorta
Sjómælingar Íslands vinna markvisst að því að gefa út ný sjókort af grunnsævi
við landið í mælikvarðanum 1:100.000. Nýverið gáfu Sjómælingar út tvö ný
sjókort og uppfærðu þrjú eldri kort samkvæmt nýjum mælingum. Árni Þór Vé-
steinsson, deildarstjóri kortadeildar Sjómælinga, spjallar við Ægi um sjókorta-
gerð Sjómælinga.
Norðurströnd herðir róðurinn
Norðurströnd ehf. er nokkurra ára gamalt fiskvinnslufyrirtæki sem hefur verið að
láta af sér kveða að undanförnu. Í raun má segja að Norðurströnd sé einskonar
móðurfélag sem á hlut í þremur fiskvinnslufyrirtækjum, sem eru Norðurós ehf. á
Blönduósi, Kolka fiskvinnsla ehf. á Hofsósi og Rípill ehf. í Ólafsfirði. Einnig er
Norðurströnd með lítilsháttar starfsemi á Skagaströnd. Ægir ræddi við stjórnendur
Norðurstrandar.
Í B L A Ð I N U
Útgefandi: Athygli ehf.
ISSN 0001-9038
Ritstjórn: Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Sími 461-5151
Bréfasími 461-5159
Ritstjóri: Óskar Þór Halldórsson (ábm.)
Sími: 461 5135
GSM: 898 4294
Netfang: oskar@athygli.is
Auglýsingar: Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Netfang: augl@athygli.is
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir
Sími 515-5206
GSM 898-8022
Netfang: inga@athygli.is
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Prentun: Gutenberg ehf.
Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2004
kostar 6800 kr.
Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5205
Myndina á forsíðunni tók Óskar Þór Halldórsson af
Viggó Jóni Einarssyni, trillukarli, þar sem hann var
að landa góðum afla í Sauðarkrókshöfn.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og
ívitnun er heimil, sé heimildar getið.
22
18
28
18
33
12
aegiragust2004-7tbl 30.8.2004 15:43 Page 5