Ægir - 01.07.2004, Síða 12
S A LT F I S K V I N N S L A
12
SÍF Canada rekur tvær saltfisk-
vinnslustöðvar og í það heila
starfa á bilinu 80 til 90 manns
hjá fyrirtækinu. Aðalvinnslustöð-
in er í Tusket, þar sem fiskurinn
er þurrkaður og honum pakkað,
en einnig rekur SÍF Canada
vinnslustöð í Shelburne þar sem
áherslan er lögð á blautfisk. Hrá-
efni í þessa vinnslu er m.a. fros-
inn Alaska-þorskur og ferskur
fiskur af svæðinu. SÍF Canada er
eitt þriggja stærstu fyrirtækja á
þessu sviði í Nova Scotia, en síðan
eru margir smáir framleiðendur.
Rík hefð fyrir saltfiskvinnslu
„Það er mikil hefð fyrir saltfisk-
vinnslu og -þurrkun hér,“ segir
Jóhann. „Við erum nokkuð vel
staðsettir til að geta afhent vör-
una fljótt og örugglega. Ef vara er
pöntuð á fimmtudegi eða föstu-
degi getum við afhent hana á
mánudegi eða þriðjudegi í New
York eða Miami.
Þrátt fyrir þessa miklu saltfisk-
vinnsluhefð er þessi grein óneit-
anlega á fallandi fæti vegna þess
að afkoman hefur ekki verið eins
og best verður á kosið. Það er
hins vegar spurning hvenær
breyting verður á, en ég met það
svo að það muni ekki gerast fyrr
en dregur verulega úr samkeppni
framleiðenda hér í Nova Scotia.
Framlegðin í saltfisvinnslunni
hefur verið of lítil og að sama
skapi hefur orðið lítil endurnýjun
í greininni. Samkeppnin harðnaði
mjög eftir að Kínverjarnir og
fleiri komu inn á markaðinn, áður
var hér bærileg afkoma í saltfisk-
vinnslunni og á þeim grunni
keypti SÍF þessar verksmiðjur á
sínum tíma.“
Árstíðabundin neysla
Jóhann segir að Nova Scotia sé
ekki stærsti saltfiskmarkaðurinn í
Kanada. Miklu frekar sé hann í
Toronto og öðrum stærri borgum
þar sem mikið er um fólk sem á
ættir að rekja til landa við Mið-
jarðarhafið og úr Karabíska haf-
inu og hefur þar vanist salt-
fiskneyslu.
Saltfiskneysla hjá viðskiptavin-
um SÍF Canada er nokkuð árstíða-
bundin, „sem ekki síst stafar af
því að að yfir sumarmánuðina er
fólk meira að grilla kjöt, en í
ágúst og september eykst salan og
nær hámarki á síðustu vikunum
fyrir jól. Á páskaföstunni kemur
síðan aftur mikilli sölutoppur í
saltfiskinum. Sem dæmi erum við
að afhenda mikið af fiski fyrir
Mexíkómarkað í september, októ-
ber og nóvember til neyslu um
jólin.“
Jóhann segist telja að eins og
annars staðar sé neysla á ferskum
fiski að aukast í Ameríku, en hins
vegar virðist neysla á saltfiski hafa
verið að dragast heldur saman.
Lítil stemning fyrir samvinnu
Á sama tíma og framleiðendur í
Kanada keppa innbyrðis um við-
skiptavini með tilheyrandi undir-
boðum, er hart sótt að þeim frá
Kínverjum sem hafa smám saman
verið að styrkja stöðu sína eins og
á öðrum vígstöðvum í fiskvinnsl-
unni. „Nú er hafin umræða um
það hér hvernig þessi iðnaður ætl-
ar að fóta sig í þessu harðandi
samkeppnisumhverfi. Við þessar
aðstæður myndu framleiðendur á
Íslandi greina vandann og taka
saman höndum, annað hvort með
náinni samvinnu eða sameiningu
fyrirtækja. Hér er slíkt hins vegar
ekki uppi á teningnum. Við höf-
um lagt til að framleiðendur tali
Hér er rík hefð
fyrir saltfiskvinnslu
- spjallað við Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóra SÍF Canada í Yarmouth á Nova Scotia
„Það er út af fyrir sig töluverð sala og markað-
urinn er fyrir hendi. Það sem við erum hins
vegar fyrst og fremst að glíma við er afurða-
verðið og að ná viðunandi afkomu út úr
rekstrinum. Samkeppnin er mikil, hér eru
margir framleiðendur að slást á sama mark-
aðnum. Þeim hefur þó eilítið verið að fækka,
en að mínu mati þyrfti þeim að fækka enn
frekar,“ segir Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF Canada í Yarmouth á Nova
Scotia. Þar rekur SÍF fiskverkunar- og sölufyrir-
tæki sem vinnur saltaðar afurðir fyrir markaði
í Bandaríkjunum, Kanada, Mið-Ameríku, á eyj-
unum í Karabíska hafinu og Suður-Ameríku.
Helstu afurðirnir eru þurrkaður og saltaður
þorskur, ufsi, og keila.
Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri
SÍF Canada.
aegiragust2004-7tbl 30.8.2004 14:20 Page 12