Ægir - 01.07.2004, Side 15
15
F E R S K L E I K I F I S K S
verkefninu QIMCHAIN, sem
styrkt er af ESB og Rf hefur
stjórnað. Markmið þessa verkefnis
var að kynna s.k. gæðastuðulsað-
ferð, (Quality Index Method-
QIM), fyrir fiskmörkuðum, fisk-
iðnaði, dreifingar- og söluaðilum,
eftirlitsaðilum og rannsóknafólki
í Evrópu. Í 4. tbl. Ægis 2003 var
grein um mat á ferskum fiski þar
sem lýst var námskeiðum um
notkun gæðastuðulsaðferðarinnar,
sem haldin voru fyrir starfsfólk
fiskmarkaða hér á Íslandi. Þar var
m.a. sagt frá því að aðferðin væri
sú matsaðferð sem fiskirann-
sóknafólk í Evrópu er sammála
um að henti best við mat á fersk-
um fiski. Þess má geta að Rf hef-
ur um árabil notað þessa aðferð
við kennslu og námskeiðahald.
QIM netið (fréttabréf, greinar
í innlend og erlend blöð,
öflug heimasíða)
Í QIMCHAIN verkefninu tóku
þátt, ásamt Rf, rannsóknastofnan-
ir í Danmörku, Hollandi, Þýska-
landi, Noregi, Spáni og Portúgal
og auk þess íslenska hugbúnaðar-
fyrirtækið Maritech. Í verkefninu
hefur nú verið komið upp sam-
skiptaneti með meira en 200
þátttakendum. Þeim er tilkynnt
um helstu atburði og veittar upp-
lýsingar varðandi QIM og fá sent
sérstakt fréttabréf. Einnig hefur
verið farið á fundi hjá hagsmuna-
aðilum í fiskiðnaði, fiskmörkuð-
um, dreifingaraðilum og opinber-
um aðilum og sagt frá QIM og
stöðu þess. Þátttakendum í verk-
efninu hefur verið boðið á fund
hjá Evrópusambandinu (fiskveiði-
nefndinni DG XIV) ásamt Sam-
tökum evrópskra fiskihafna og -
markaða (EAPPA) til að segja frá
stöðu QIM-aðferðarinnar í Evr-
ópu. Heimasíða verkefnisins
(http://www.qim-eurofish.com/)
er uppfærð reglulega og einnig
hafa verið skrifaðar greinar í blöð
í löndum allra þátttakenda verk-
efnisins, einnig í alþjóðleg sjávar-
útvegstímarit eins og INFOFISH
International og vísindagreinar.
Tvö námskeið fyrir
gæðastjóra í Evrópu
Á vegum verkefnisins
QIMCHAIN voru haldin tvö
námskeið á þessu ári fyrir gæða-
stjóra og aðra aðila í fiskiðnaði.
Það fyrra var haldið í Vigo á
Spáni í janúar og var mikill áhugi
fyrir námskeiðinu þar í landi og
komust færri að en vildu, en hægt
var að veita 24 aðilum þátttöku.
Verklegar æfingar voru m.a. í
skynmati á lýsingi. Námskeiðið
var haldið í samvinnu við Centro
Tecnológico del Mar - fundación
(CETMAR) í Vigo and Instituto
del Frio (CSIC) í Madrid. Nám-
skeiðið og gæðastuðulsaðferðin
vakti töluverða athygli og var
m.a. haldinn fundur með frétta-
mönnum frá dagblöðum og sjón-
varpi. Einnig var farið á fund hjá
því ráðuneyti á Spáni sem hefur
með landbúnað, fiskveiðar og
matvæli að gera.
Í júní á þessu ári var svo haldið
kynningarnámskeið í Billingsgate
Seafood Training School, en skól-
inn er hluti af Billingsgate-mark-
aðinum í London. Markaðurinn er
stærsti fiskmarkaður á Bretlandi
sem ekki er staðsettur við sjó og
kemur allur fiskurinn á markað-
inn með flutningabílum, annað
hvort frá fiskihöfnum á Bretlandi
eða flugvöllum. Á námskeiðinu,
sem aðilar frá fiskmörkuðum,
smásölum, eftirlitsaðilum og
matvælarannsóknafyrirtækjum í
Bretlandi sóttu, var QIM aðferðin
kynnt og þátttakendum m.a.
kennt að nota aðferðina við mat á
misferskum þorski og kola.
Þess má geta að hinn stóri fisk-
markaður Fishgate í Hull, sem er
að stórum hluta í eigu Íslendinga,
hefur látið þjálfa starfsfólk sitt í
notkun gæðastuðulsaðferðarinnar
við mat á ferskum fiski. Ýmsir
stórir fiskmarkaðir, s.s. í Belgíu
og Hollandi, hafa einnig tekið
upp þessa aðferð.
Skynmatshandbókin
þýdd á 10 tungumál
Fiskirannsóknastofnanirnar Rf á
Íslandi, The Netherlands Institu-
te of Fisheries Research (RIVO) í
Hollandi og Danish Institute of
Fisheries Research (DIFRES)
undirrituðu samstarfssamning
árið 2001 sem gengur út á sam-
vinnu á sviði gæðamats á fiski. Í
0
5
10
15
20
25
30
0 5 10 15 20
Geymslutími í ís
G
æ
ð
a
s
tu
ð
u
ll
Það sem eftir er af
geymsluþoli
Geymsluþol
Það sem eftir er af
geymsluþoli
Skarkoli
Lax
Mynd 2. Notkun QIM í framleiðslu- og gæðastjórnun.
Skynmat á
soðnuflökum
Fiskiskip
Fiskmarkaður
Löndun Skynmat á heilum
fiski QIM/EU
Neytendur
Smásalar
Fersk flök
Neytendur
Smásalar
Frosin flök
Fiskvinnsluhús
Skynmat á hráum og
soðnum flökum
Gæðaflokkun/Torry
Skynmat á
soðnum flökum
Torry
Mynd 1. Hvar fer skynmat fram og hvaða aðferðir eru notaðar.
aegiragust2004-7tbl 30.8.2004 14:20 Page 15