Ægir - 01.07.2004, Blaðsíða 25
25
Æ G I S V I Ð TA L I Ð
skaut upp kollinum fyrr á þessu ári um að of nærri
loðnustofninum hafi verið gengið og hann sé að
hruni kominn. „Þessi umræða er út í hött. Það eru
engar forsendur fyrir því að stofninn sé að hrynja.
Hins vegar hefur þessi flökkufiskur haus og sporð og
það er hreint lygilegt hversu víða hann getur farið.
Hegðunarmynstur loðnunnar hlýtur að fara að veru-
legu leyti eftir ástandi sjávarins á hverjum tíma.
Loðnan vill vera þar sem henni líður best og þar
gilda sömu lögmálin og með mannskepnuna. Það er
því ekkert óeðlilegt að loðnan fylgi ekki sama hegð-
unarmynstri ár eftir ár og mér finnst því óábyrgt tal
þegar því er slegið fram að þessi stofn sé að hruni
kominn. Síðastliðinn vetur, þegar loðnuvertíðin var
heldur endaslepp, bendir flest til þess að óveðrið sem
gerði í vikutíma í mars hafi orðið þess valdandi að
loðnan komst ekki vestar og hún hafi því hrygnt fyr-
ir sunnan land, á allt öðrum slóðum en hún er vön.
Af þessu er ástæðulaust að draga þá ályktun að illa sé
komið fyrir stofninum.“
Ekki ánægður með bæjaryfirvöld á Akureyri
Sverrir Leósson hefur verið ófeiminn að láta í sér
heyra á opinberum vettvangi þegar honum hefur
mislíkað gjörðir bæjaryfirvalda á Akureyri. Hann var
á sínum tíma mjög gagnrýninn á þá ákvörðun Akur-
eyrarbæjar að selja hlutabréf í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa og taldi að í því væri fólgin mikil hætta fyrir
ÚA og þar með Akureyri. Í ljósi nýjustu atburða
með ÚA telur Sverrir að margt af því sem hann hafi
varað við hafi komið á daginn og hann óttast um
framtíð fyrirtækisins. „Ég hef sterkan beyg af því,“
segir Sverrir. „Stóru mistökin voru þau þegar bæjar-
stjórnin ákvað að söðla um og selja hlutabréfin í ÚA.
Byrjunin á þessu ferli var þegar talað var um að flytja
höfuðstöðvar Íslenskra sjávarafurða til Akureyrar
gegn því að ÍS fengi sölumál ÚA. Þá var Kaupfélag
Eyfirðinga í fullum rekstri og Jakob Björnsson var
bæjarstjóri. Ég reikna með að Jakob hafi orðið fyrir
nokkrum þrýstingi í þessum efnum frá KEA. Ég
held því fram að þetta hafi verið stærstu mistök sem
bæjarstjórn Akureyrar hefur gert í marga áratugi og
furðuleg skammsýni. Mér hefur fundist það undar-
legt tal þegar því er haldið fram að bæjarfélagið eigi
ekki að hringla í svona atvinnurekstri. Staðreyndin er
sú að það voru Akureyringar sjálfir sem byggðu upp
þetta fyrirtæki. Um tíma var það komið að fótum
fram og þá söfnuðu bæjarbúar liði og reistu það við.
Það má kannski segja að bæjarstjórn Akureyrar og
Akureyringar séu eitt og hið sama. Svo er hins vegar
alls ekki. Það er engu líkara en þegar menn eru
komnir í bæjarstjórn, þá hafi þeir einhver sérstök
markmið. Ég tel að Akureyrarbær hefði átt að halda
það stórum hlut í Útgerðarfélaginu að hann hefði
eitthvað um fyrirtækið að segja. Ég vildi rjúfa bein
pólitísk tengsl við stjórnun ÚA, en inn í stjórn fé-
lagsins veldust menn sem hefðu vit á þessum rekstri
og hefðu það eitt markmið að reksturinn gengi vel
og hann skilaði bæjarbúum góðum arði. Ef sú
ákvörðun hefði verið tekin, hefði bærinn fengið háar
fjárhæðir í arðgreiðslur á hverju ári. Allir þeir fjár-
munir sem Akureyrarbær fékk greitt fyrir hlutabréf-
in í ÚA eru á þrotum - hver einasta króna.“
Vantar vítamínsprautu í atvinnulífið
Sverrir hefur löngum verið tengdur við Sjálfstæðis-
flokkinn, enda var hann forðum daga formaður Varð-
ar - félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri. Sverrir
segist langt í frá vera ánægður með núverandi meiri-
hluta sjálfstæðismanna og framsóknarmanna á Akur-
eyri og hann hafi raunar ekki komið nálægt
flokkspólitík í langan tíma. „Ég skilgreini mig ekki
sem sjálfstæðismann, heldur miklu fremur sjálfstæð-
an mann,“ segir hann.
„Það er mikið talað um íbúafjölgun hér á Akur-
eyri, en ef grannt er skoðað kemur í ljós að það er
ekkert um að vera hérna í bænum. Það er ein at-
vinnugrein sem virðist blómstra nú um stundir og
það er byggingaiðnaðurinn. Vítamínsprauta í þeim
efnum er væntanlega Háskólinn og þeir nemendur
sem þar eru. Nemendurnir eru hér aðeins tímabund-
ið og fara flestir héðan vegna þess að hér eru ekki
Súlan ehf. gerir út Súluna EA. Að sjálfsögðu er nafn fyrirtækis-
ins og skipsins dregið af þessum tignarlega fugli sem er upp-
stoppaður á skrifstofu Sverris í Aðalstræti á Akureyri.
aegiragust2004-7tbl 30.8.2004 14:20 Page 25