Ægir - 01.07.2004, Qupperneq 28
28
S J Ó M Æ L I N G A R
Sjómælingar Íslands,
sem eru deild innan
Landhelgisgæslu Ís-
lands, vinna mark-
visst að því að gefa út
ný sjókort af grunn-
sævi við landið í
mælikvarðanum
1:100.000.
Nú þegar hafa verið gefin út
nokkur ný sjókort, þar af voru tvö
ný kort gefin út fyrr í sumar og
þrjú eldri kort uppfærð sam-
kvæmt nýjum og nákvæmari
mælingum. Áður höfðu komið út
bæði ný og endurskoðuð kort af
svæðum fyrir norðan land og síð-
an tvö sjókort af svæðum fyrir
austan land, hið fyrra var gefið út
árið 1999 og hið síðara 2001.
Nýju sjókortin sem Sjómæling-
ar gáfu út í sumar eru kort nr. 37
- Hjörsey-Stykkishólmur, sem er í
mælikvarðanum 1:100.000 og
kort nr. 426 - Ólafsvík-Stykkis-
hólmur í mælikvarðanum
1:50.000.
Fyrrnefnda kortið, Hjörsey-
Stykkishólmur, nær yfir norðan-
verðan Faxaflóa og er fyrsta kortið
af þessu hafsvæði í stórum mæli-
kvarða. Kortið nær fyrir Snæfells-
nes og inn sunnanverðan Breiða-
fjörð að Stykkishólmi. Það byggir
á dýpismælingum sem gerðar
voru á sjómælingabátnum Baldri
og að hluta til á varðskipinu Ægi
sumrin 1998-2002.
Mörk kortsins Ólafsvík-Stykk-
ishólmur eru eilítið önnur en
áður, en helsta breytingin frá
eldra korti af þessu svæði er sú að
nýjar mælingar leysa af hólmi
eldri mælingar sem voru allt frá
1907 og náðu yfir stóran hluta
kortsins.
Uppfærð sjókort
Uppfærðu sjókortin, sem einnig
voru gefin út fyrr í sumar, eru í
fyrsta lagi kort nr. 31 -Dyrhóla-
ey-Snæfellsnes, í mælikvarðanum
1:300 000, í öðru lagi kort nr. 81
- Stokksnes-Dyrhólaey í sama
mælikvarða og í þriðja lagi kort
nr. 44 - Breiðafjörður, Norðurflói
í mælikvarðanum 1:70 000.
Fyrstnefnda kortið, Dyrhólaey-
Snæfellsnes, var uppfært með nýj-
ustu mælingum sem til eru af
svæðinu, ásamt því að skipt var
um landupplýsingar, þ.e. hæðar-
línur, byggð og vegi, en þessar
upplýsingar koma m.a. frá Land-
mælingum Íslands, Reykjavíkur-
borg og öðrum þéttbýlisstöðum
sem eru á kortinu.
Sama var gert í kortinu Stokks-
nes-Dyrhólaey en það leysir gam-
alt kort af þessu svæði af hólmi
og byggist m.a. á gögnum sem
fengust með fjölgeislamæli Haf-
rannsóknastofnunarinnar. Mörk
kortsins hafa tekið töluverðum
breytingum frá eldra korti.
Síðastnefnda kortið, Breiða-
fjörður - Norðurflói, er elsta sjó-
kortið sem Sjómælingar Íslands
hafa gefið út, en kortið var teikn-
að hjá Det kongelige Sökort-
Arkiv í Kaupmannahöfn og fyrst
gefið út árið 1915. Í kortið hafa
nýjar mælingar verið settar inn
umhverfis Elliðaey og á Bjarneyj-
arflóa í átt til Flateyjar. Þetta sjó-
kort er það síðasta sem í eru
teiknaðar myndir af miðum og
eitt af fimm kortum sem enn er í
notkun frá dögum danskrar sjó-
kortagerðar við Ísland, en öll voru
þessi kort upphaflega gerð með
koparstungu.
Umfangsmikið verkefni
Árni Þór Vésteinsson, deildar-
stjóri kortadeildar Sjómælinga Ís-
lands, segir að útgáfa nýs korta-
grunns af grunnsævi við landið sé
viðamikið verkefni, en jafnframt
nauðsynlegt. Eldri kort, mörg
þeirra eru margra áratuga gömul,
hafi verið unnin samkvæmt þeirra
tíma mælingaaðferðum. Nú sé
hins vegar allt önnur og betri
tækni komin til skjalanna. „Gall-
inn við mörg eldri kort er að
þeim hefur ekki verið hægt að
treysta hundrað prósent, það ligg-
ur í aðferðinni sem notuð var við
dýptarmælingarnar, en sú mæl-
Sjómælingar Íslands:
Gefa út ný og
endurbætt sjókort
- unnin með mikilli nákvæmni og koma í stað eldri og ónákvæmari korta
Nýtt sjókort nr. 37 - Hjörsey-Stykkishólmur.
Ný útgáfa af korti
426 Ólafsvík -
Stykkishólmur.
aegiragust2004-7tbl 30.8.2004 14:20 Page 28