Ægir - 01.07.2004, Qupperneq 42
42
F I S K E L D I
K R O S S G Á TA N
Þorsk- og
hlýraeldi
hjá SVN
Um 90 þúsund þorskseiði frá til-
raunastöð Hafró að Stað við
Grindavík voru sett í kvíar Síld-
arvinnslunnar í Norðfirði sl. vetur
og vor.
„Um 40 þúsund af þessum
seiðum eru hluti af kynbótaverk-
efni sem Stofnfiskur er að vinna
að,“ segir Sindri Sigurðsson, sem
hefur yfirumsjón með fiskeldi hjá
Síldarvinnslunni.
Sindri segir að einnig hafi
þorskur verið veiddur til
áframeldis. „Við gerðum tilraunir
með að veiða fisk í dragnót í
fyrra, en þær veiðar gengu ekki
nógu vel. Í það heila eru þetta um
fjörutíu tonn og við munum
væntanlega slátra úr þessum
lífmassa á þessu ári og taka inn í
vinnslutilraunir hjá okkur,“ segir
Sindri.
Hann telur að Norðfjörður
henti að mörgu leyti vel fyrir þor-
skeldi. „Hitastig sjávarins hefur
verið að hækka og er í raun orðið
hærra en maður gat búist við að
það yrði. „Lágmarkið var reyndar
lægra síðastliðinn vetur en vetur-
inn 2002-2003, en mér sýnist að
sjórinn hafi hlýnað mun fyrr í
sumar en áður. Það er ljóst að
svona hlýr sjór hjálpar til bæði í
þorskeldi og laxeldinu,“ segir
Sindri.
Hlýratilraunir
Síldarvinnslan hefur á undanförn-
um árum verið með tilraunir í
hlýraeldi. Sindri segir að þessar
tilraunir séu um margt á tíma-
mótum og menn séu að ráða ráð-
um sínum með hvar verkefnið
verði vistað í framtíðinni, hvort
það verði áfram í sérstöku félagi
eða hugsanlega fært undir Síldar-
vinnsluna. Sindri segir að í þessu
verkefni hafi menn aflað sér mik-
illar reynslu og þekkingar. „Hlýr-
inn hefur reynst vera tiltölulega
þægilegur eldisfiskur og við telj-
um að við höfum sýnt fram á að
hlýraeldi er raunhæfur kostur.
Það er mitt mat að lausnirnar
varðandi hlýraeldið séu smáatriði
í samanburði við þorskeldi. Líf-
fræðiþátturinn er að mörgu leyti
einfaldari, en það eina sem við
þurfum að ná betri tökum á er að
ná sviljum úr hængum, en það er
eitthvað sem á að vera tiltölulega
auðvelt að finna lausn á,“ segir
Sindri.
Um 90 þúsund seiði frá tilraunastöð Hafró við Grindavík voru sett í kvíar hjá Síldar-
vinnslunni sl. vetur og vor.
aegiragust2004-7tbl 30.8.2004 14:21 Page 42