Ægir - 01.04.2006, Qupperneq 32
32
N Ý S K Ö P U N
Á síðastliðnu ári stofnaði
Eyjólfur Friðgeirsson, líf-
fræðngur, fyrirtækið „Hollusta
úr hafinu ehf.“, sem framleið-
ir ýmsar vörur úr þara og söl.
Fyrstu vörurnar komu á mark-
að í nóvember í fyrra og síðan
hafa bæst við nýjar vörur, þær
nýjustu voru kynntar á mat-
vælasýningunni „Matur 2006“
í Fífunni í Kópavogi í mars sl.
Eyjólfur segir að hann telji
mikla möguleika vera fólgna í
að nýta þara og annan sjávar-
gróður til að skapa úr honum
verðmæti og þau viðbrögð
sem hann hafi nú þegar feng-
ið við framleiðslunni auki
honum bjartsýni á að þetta
eigi við rök að styðjast.
„Menn hafa vissulega reynt
það áður að gera úr þessu
verðmæti hér og hafa þá fyrst
og fremst verið að horfa til
útflutnings. Ég tel hins vegar
að vænlegast sé að fara sér
hægt í þessu til að byrja með
og reyna vöruna í dágóðan
tíma hér á heimamarkaði
áður en menn fara að horfa
út fyrir landsteinana. Það er
síðara tíma mál, ef vel geng-
ur,“ segir Eyjólfur, en fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins hafa
fyrst og fremst verið á
boðstólum í heilsubúðum en
einnig í nokkrum matvöru-
verslunum.
Fjölbreyttar vörur
Af þeirri flóru vara sem „Holl-
usta úr hafinu“ býður upp á
má merkja að möguleikarnir
eru ótæmandi. Meðal þess
sem boðið er upp á er þara-
krydd, sem unnið er úr stór-
þara, sölvum, fjörugrösum,
marinkjörnum og fjallagrös-
um. Þetta krydd er gott í
brauð, pottrétti, sósur með
fiski og sem dressing með
salati. Einnig er boðið upp á
ýmsar sósur - t.d. stór-
þarasósu, sölvasósu og fjalla-
grasasósu - frystan, hakkaðan
þara og ristaðan beltisþara
sem snakk, en beltisþarinn
hefur frá náttúrunnar hendi
sætukeim.
Á „Matur 12006“ var m.a.
kynnt kryddlegið sjávargræn-
meti, en þar var um að ræða
kryddlegna söl og kryddleg-
inn þara.
Miklir möguleikar
Eyjólfur Friðgeirsson segir að
ekki sé erfitt að verða sér úti
um þara og söl. Til dæmis sé
mikið af þara í Selvogi,
skammt frá Strandakirkju, og
þá sé Breiðafjörðurinn gósen-
svæði fyrir þara. „Það er gríð-
arlegt magn af þara við
strendur landsins og að mínu
mati er þetta verulega vannýtt
auðlind. Möguleikarnir eru að
mínu mati gríðarlega miklir ef
rétt er á spilum haldið,“ segir
Eyjólfur.
Hluti af matarvenjum Íslend-
inga frá landnámstíð
Kannski má segja sem svo að
þari sé ekki beint þekktur til
manneldis hér á landi, þó
vissulega sé það svo að hann
hafi verið nýttur til manneldis
allt frá landnámstíð. Hins
vegar er vitað að sjávargróður
hefur verið nýttur sem matur,
áburður og lyf í þúsundir ára.
Í dag er nýting þara til mann-
eldis lang mest í Japan, Kína
og Kóreu. Þar sem íbúar
þessara þjóða hafa sest að er-
lendis hafa þeir flutt með sér
neyslu á sjávargróðri. Áhugi á
asískum mat hefur einnig leitt
af sér notkun þara víða um
heim. Á Írlandi er nú vakning
á notkun sjávargróðurs, sem
áður var hluti af matarhefð
þar. Vaxandi áhugi er á sjáv-
argróðri í Kaliforníu og á
Hawaí, en hann er kominn
frá fjölda Japana sem býr þar.
Á austurströnd US og Kanada
í Maine, New Brunswick og
Nova Scotia er vaxandi áhugi
og markaður fyrir sjávargróð-
ur. Með aukinni neyslu á
heilsufæði hefur myndast
áhugi víða á Vesturlöndum á
notkun sjóþörunga t.d. í stað
salts, sem hollustuvöru og
fæðubótarefnis.
Talið er að um átta millj-
ónir tonna af sjávargróðri séu
nýttar í heiminum í dag. Nær
allt þetta magn fer til mann-
eldis. Aðeins lítið brot er not-
að í skepnufóður, til áburðar
og fl. Bróðurpartur sjávarþör-
unga til manneldis er ræktað-
ur, langmest er framleiðslan í
Kína, eða um fimm milljónir
tonna.
Í þarasósunum er soyasósa, eplaedik, vatn og hvítlaukur, sem er kryddað með
þörum og fjallagrösum. Engum aukaefnum er bætt í sósurnar. Þrennskonar sósur
eru í boði: Þarasósa, Sölvasósa og Grasasósa
Rapp netaspil
og netaniðurleggjari
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísnet Húsavík - Uggahúsi
• Ísnet Hornafjörður - Ófeigstanga
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísfell Bolungarvík - Grundarstíg 14
www.isfell.is
Fyrirtækið Hollusta úr hafinu ehf.
framleiðir vörur úr sjávargróðri:
Vannýtt auðlind
- að mati Eyjólfs Friðgeirssonar, líffræðings
aegirapril-48breitt.qxp 5/11/06 12:45 PM Page 32