Ægir - 01.07.2008, Qupperneq 9
9
K R Æ K L I N G A R Æ K T
hafa verið að gefa mjög góða
raun í Kanada og þær hafa
nú þegar sýnt sig að reynast
vel hér. Það er algjör óþarfi
að vera að finna upp hjólið
sem fyrir löngu er búið að
finna upp annars staðar. Við
eigum miklu fremur að nýta
okkur þá kunnáttu sem er
fyrir hendi í þessari atvinnu-
grein og laga hana að okkar
aðstæðum. Gary Rogers telur
að aðstæður hér séu mjög
góðar og hann er þess fullviss
að unnt sé að ná mun meiri
vaxtarhraða hér en á hans
heimaslóðum. Í Prince Ed-
wards glíma menn við þær
aðstæður að það er ís frá
kannski október og fram í
apríl eða maí. Það stoppar
menn hins vegar ekkert í
kræklingaræktinni og þeir
uppskera krækling í gegnum
ísinn. Ég hef farið vestur og
kynnt mér aðstæður þar og
séð hvernig þeir fara að því
að uppskera mikið magn af
kræklingi í gegnum ís í þrjátíu
stiga frosti. Sannast sagna er
það ekkert sem mig langar að
gera dags daglega! Hér eru
aðstæður aðrar og betri. Hins
vegar geta hér komið slæm
veður en þá þarf líka að
ganga þannig frá línum að
þær verði ekki fyrir tjóni í
þessum slæmu veðrum,“ segir
Víðir.
Átak í markaðssetningu
Víðir segir að Norðurskel hafi
fengið fjórar milljónir króna
úr mótvægisaðgerðum ríkis-
stjórnarinnar vegna kvótasam-
dráttar og þeim fjármunum
verði varið til markaðssetn-
ingar á kræklingnum.
„Við erum komnir út með
línu fyrir þúsund tonna kræk-
lingarækt og það er því alveg
ljóst að það magn er langt
umfram innanlandsmarkað.
Við erum vissulega komin
skammt á veg með að kynna
kræklinginn hér innanlands
vegna þess að það hefur ver-
ið svo lítið framboð af hon-
um. Það sem við höfum verið
að framleiða hefur fyrst og
fremst farið á veitingahús.
Það eina sem neytendur
kannast við úr búðum eru
dósir með kræklingi úr Lima-
firðinum í Danmörku,“ segir
Víðir.
Tækifæri stærsti hluthafinn
Frá upphafi hafa um tvö-
hundruð milljónir króna verið
settar í uppbyggingu Norður-
skeljar í Hrísey. Stærsti hlut-
hafi í fyrirtækinu er fjárfest-
ingarsjóðurinn Tækifæri, þar
sem KEA er öflugur bakhjarl,
síðan kemur Eignarhaldsfé-
lagið Samvinnutryggingar og
þá Gary Rogers. Næstir koma
síðan Víðir Björnsson,
Byggðastofnun, Akureyrar-
bær, Sæplast o.fl.
Seigla á Akureyri smíðaði þennan bát, Guðrúnu EA, fyrir Norðurskel. Báturinn er sérútbúinn fyrir kræklingaræktina og einnig
er gert ráð fyrir að hann verði notaður til ferða með ferðamenn.
Víðir í skipstjórastólnum um borð í Guðrúnu EA.
Norðurskel er með aðsetur í þessu húsi við höfnina í Hrísey. Þar hefur verið unnið að því að setja upp afkastamikinn vinnslu-
búnað fyrir kræklinginn.