Ægir - 01.07.2008, Blaðsíða 53
53
S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N
Sýningin nýtur virðingar
- segir Marianne Rasmussen, framkvæmdastjóri Íslensku
sjávarútvegssýningarinnar 2.-4. október nk.
„Stærsta breytingin frá síð-
ustu sýningu er að nú verður
hún í þrjá daga í stað fjög-
urra. Þetta gerum við vegna
eindreginna óska sýnenda um
að sýningin standi frá fimmtu-
degi til laugardags,“ segir
Marianne Rasmussen hjá
breska fyrirtækinu Mercator
Media, sem annast fram-
kvæmd Íslensku sjávarútvegs-
sýningarinnar, sem fram fer í
Smáranum í Kópavogi dagana
2. til 4. október nk.
Marianne segir horfur séu
á að sýningin verði svipuð að
stærð og sýningin í Smáran-
um í september 2005.
„Vissulega höfum við
merkt það í aðdraganda þess-
arar sýningar að það er nokk-
uð hart í ári í íslenskum sjáv-
arútvegi og það eru sömu-
leiðis efnahagslegar þrenging-
ar víða um heim. Engu að
síður verður Íslenska sjávarút-
vegssýningin mjög vegleg,
enda er það svo að í heimi
sjávarútvegsins er litið á sýn-
inguna á Íslandi sem mjög
mikilvæga fyrir bæði sýnend-
ur og þá gesti sem hana
sækja og vilja kynna sér allt
það nýjasta í sjávarútveginum.
Það er engin spurning að Ís-
lenska sjávarútvegssýningin
nýtur mikillar virðingar.“
Eins og á sýningunni fyrir
þremur árum koma sýnendur
víða að. Marianne nefnir að
frá t.d. Noregi, Danmörku og
Færeyjum verði að vanda
áberandi básar á sýningunni
og sýnendur komi einnig frá
fjarlægum heimshlutum.
Marianne segist ekki geta
spáð fyrir um hversu margir
komi til með að sækja sýn-
inguna í ár, en vonandi verði
þeir ámóta margir og á síð-
ustu sýningum, en Íslensku
sjávarútvegssýninguna 2005
sóttu tæplega fimmtán þús-
und manns frá 50 þjóðlönd-
um. Fyrri sýningar hafa allar
verið fyrrihluta september-
mánaðar, en sýningin í ár fer
sem sagt fram í októberbyrj-
un. Ein af ástæðum fyrir því
er sú að mun auðveldara er
að fá hótelrými þegar komið
er fram í október, en þá er
helsti ferðamannatíminn um
garð genginn.
Íslensku
sjávarútvegsverðlaunin
Í tengslum við Íslensku sjáv-
arútvegssýninguna verða að
venju veitt Íslensku sjávarút-
vegsverðlaunin og einnig
verða bestu básar á sýning-
unni verðlaunaðir. Meðal
verðlaunahafa á sýningunni
2005 voru Guðmundur Ein-
arsson í Bolungarvík („fram-
úrskarandi fiskimaður“),
Gjögur ehf. („framúrskarandi
útgerð“) og Samherji á Dalvík
(„framúrskarandi fiskvinnsla“).
Þá var Gísli Jón Hermannsson
í Ögurvík verðlaunaður fyrir
framúrskarandi framlag hans
til sjávarútvegsins og þau fyr-
irtæki sem hlutu viðurkenn-
ingar í flokknum „framleið-
endur fiskvinnslutækja“ voru
Marel, Skaginn, Stjörnu-Oddi
og Hampiðjan. Þá þótti bás
Olís besti bás Íslensku sjávar-
útvegssýningarinnar 2005.
Marianne Rasmussen, framkvæmdastjóri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.
Eins og á síðustu sýningu verða Danir áberandi á sýningunni í ár.
Hér eru menn að stinga saman nefjum á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2005.