Ægir - 01.07.2008, Blaðsíða 21
21
B Á T A S M Í Ð I
Bátasmiðjan Seigla á Akureyri
hefur náð góðri fótfestu á
markaði í Noregi fyrir hrað-
fiskibáta sína. Seigla hefur
þegar afhent fimm báta til
útgerða í Noregi og nú er fyrir-
tækið að smíða fjóra báta til
viðbótar sem fara til Noregs á
næstu mánuðum, sá fyrsti
verður að óbreyttu til afhend-
ingar núna í september.
Að sögn Sverris Bergsson-
ar hjá Seiglu eru bátarnir mis-
munandi að lengd – 11, 13
eða 15 metra. Í stórum drátt-
um er um að ræða svipaða
báta frá Seiglu og hafa verið
smíðaðir fyrir útgerðir hér
heima, en þeir eru þó í
nokkrum atriðum útfærðir
með öðrum hætti – t.d. stærri
stýrishús o.fl.
„Við höfum náð þessum
árangri í Noregi vegna góðrar
markaðssetningar. Einnig er-
um við komnir lengra en
Norðmenn í smíði á svona
hraðfiskibátum. Sem stendur
virðist vera ágætis markaður í
Noregi fyrir þessa báta. Á
sama tíma er lítið að gerast á
heimamarkaði „Við fáum fyr-
irspurnir en lítið meira. Það
vantar ekki að menn hafa
áhuga, en þeir fá hreinlega
ekki fyrirgreiðslu í bankakerf-
inu. Á meðan ástandið er
svona gerist fátt hér heima. Af
þeim sökum horfum við fyrst
og fremst út fyrir landsstein-
ana í augnablikinu,“ segir
Sverrir, en nú starfa átján
manns hjá Seiglu. Fyrirtækið
hefur vaxið og dafnað enn
frekar eftir að það flutti norð-
ur til Akureyrar og nýtt hús
sem byggt var utanum starf-
semi Seiglu á athafnasvæði
Slippstöðvarinnar er nú þegar
orðið of lítið.
Mikilvæg viðurkenning
Seigla hlaut fyrstu verðlaun
fyrir tækninýjungar á sjávarút-
vegssýningunni Norfish, sem
fram fór í Þrándheimi í Nor-
egi fyrir stuttu. Verðlaunin
hlaut Seigla fyrir fellikjöl á
hraðfiskibáta, sem þeir Seiglu-
menn hafa þróað í gegnum
tíðina og nýtur sérstöðu á
markaðnum.
Fellikjölur á hraðfiskibáta
hefur lengi verið í þróun hjá
Seiglu. Kjölurinn hefur þá
eiginleika að hann er settur
niður þegar báturinn er á
veiðum en dreginn þegar bát-
urinn er á siglingu. Með því
að draga kjölinn inn á sigl-
ingu eykst hraðinn og viðnám
minnkar, sem þýðir minni
olíueyðslu. Með því að setja
kjölinn niður eykst stjórn-
hæfni bátsins, beygjuradíus
minnkar og rek minnkar.
„Þetta er góð viðurkenning
á þessari tækni sem við höf-
um verið að þróa og hún mun
án nokkurs vafa verða til þess
að vekja athygli á okkar fram-
leiðslu. Jú, þessi viðurkenning
skiptir að mínu mati miklu
máli,“ segir Sverrir.
Bátasmiðjan Seigla á Akureyri:
Verðlaunaðir fyrir fellikjölinn
Frá verðlaunaafhendingunni á Norfish í Þrándheimi. Frá vinstri: Peter Gullestad, framkvæmdstjóri Norfish, Helga Pedersen, sjávarútvegsráðherra Norðmanna og Sverrir
Bergsson frá Seiglu með verðlaunin – Innovation Prize 2008.
Einn af Noregsbátunum sem Seigla hefur smíðað. Mynd: Ingar Sagedel Bie.