Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Side 4
og menning hefur þegar ákveí5ið að gefa út á þessu ári. Það
mætir almennum vinsældum, að fá skáldsögu eftir nýjasta No-
belsverðlauna-höfundinn, auk þess sem Pearl Buck á miklum
vinsældum að fagna hjá þeim, sem lesið hafa Gott land eða
aðrar hækur hennar. En sérstaklega fagna menn þó útgáfunni
á úrvalsljóðum Stephans G. Stephanssonar, ásamt ritgerð Sig-
urðar Nordal. Það er fjöldi alþýðumanna, sem ekki hefur átt
þess nokkurn kost að kynnast kvæðum Stephans G., hvað þá
eignast þau, og hefur þannig farið á mis við margt það bezta,
sem íslendingar eiga í ljóðmn. Ég er sannfærður um, að með
þessari útgáfu á ljóðum skáldsins eignast íslenzka þjóðin raun-
verulegan skilning á því, hvílíkt afburða skáld hún á, þar sem
er Stephan G. Stephansson. Og jafnvíst er hitt, að við hefðum
með fáum bókum öðrum komizt nær óskum alls þorra félags-
manna. Úrvalsljóð Stephans verða þeim einhver dýrmætasta
eignin, sem þeir hefðu getað kosið sér. Við sjáum af bréfum
félagsmanna, sem hirt eru í þessu hefti, að strax eru komnar
fram óskir uin það, að ekki verði staðar numið við Stephan G.
heldur taki Mál og menning að sér að gefa út úrvalsljóð lielztu
þjóðskálda okkar.
Mannkynssagan, alfræðiritið og bókmenntasagan.
Það var um tíma tilætlun okkar, að bera útgáfu þessara þriggja
rila undir atkvæði félagsmanna og láta þá sjálfa skera úr því,
hvert ritið yrði fyrst fyrir valinu. En það virtist, eftir bréfum
að dæma viða af landinu, nærri einróma ósk félagsmanna, að
mnnkynssagan gengi fyrir, svo að við féllum frá atkvæðagreiðsl-
uuni og ákváðum að hefja undirbúning að útgáfu mannkyns-
sögunnar. Nú sjáum við af nokkrum bréfum, að það eru ýmsir
félagsmenn, sem þó hefðu heldur kosið alfræðiritið eða bók-
menntasöguna. En héðan af verður að fresta útgáfu þessara
rita. Efnahagur Máls og menningar leyfir ekki, að gefin verði
út tvö jafn dýr verk samtimis. Útgáfa alfræðiritsins mundi kosta
geysimikið fé, og hún væri varla kleif nema með aukagjaldi.
Hinu ber ekki að neila, að alfræðirit þurfa íslendingar nauð-
synlega að eignast. Það væri á einn hált hugsanlegt fyrir Mál
og menningu að ráðast i þessa útgáfu: ef nógu margir félags-
menn, segjum 2000, treystu sér til að greiða ákveðið aukagjald,
meðan útgáfan stendur yfir. Við værum reiðubúnir að bera til-
lögu í þéssa átt undir atkvæði félagsmanna.
2