Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Page 12

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Page 12
1-íkja henni við farveg margra sundurlausra ljóðbrota, sem flétt- ast saman í eina litrika heild, þar sem hvert ljóðbrot orkar með svipuðum hætti á skynfæri lesandans. Sem stendur er frú Theodóra Thoroddsen eini núlifandi full- trúi þulunnar, og það var ætlun min með þessum línum, að vekja athygli á hinni nýju og auknu útgáfu af yrkingum hennar. Ég held, að sjaldan hafi þetta einkennilega ljóðform náð eins glæsilegri fullkomnun og listrænni túlkun og í meðferð Theo- dóru. Það eru ekki margir, sem hafa sameinað jafn látlaust, glit- ofið og blæhrigðaríkt 'mál. Rím hennar er víða mjög dýrt, þótt maður verði hvergi var við strengjatök liagyrðingsins, sem glimir við orðin með misjöfnum árangri, án þess að skeyta um innihaldið. Á tuttugu og fjórum blaðsíðum sameinar Theodóra margt liið fegursta úr þjóðsögunni. Dvergar, töfradjásn, ljósálfar, huldusvein- ar og liafmeyjar í hinu margbreytilegasta umhverfi. Ýmist er það spegilskyggður hafflötur, þar sem selir sofa á skerjum og börn tína kuðunga i fjörunni, en fyrir innan liggja djúpir, iðjagrænir dalir með brekkum og bölum og blábeltuðum háfjöllum í kring; eða rjúkandi brimrót, óveðurshiminn og dimmar hamraborgir i gnauðandi stormi; eða mjállhvitir hnjúkar, fossar og klökugir bnullungar i rómantísku silfri tunglskinsins. Stundum er þetta allt í senn, og svið þulunnar tekur sifelldum breytingum. Og stundum erum við stödd í draumheimum, í þeirri veröld, sem imyndunaraflið eitt er fært um að skýra frá. — Sá, sem liefur horft á móður sína á hálfrokknu vetrarkvöldi, framan við rauða glóð í stónni, mætir þessum þulum eins og gömlum og hjartfólgnum vinum. Börnin hlustuðu óþreyjufull á glamrið í prjónunum og báðu móðurina að segja sögu eða fara með kvæði. Og geðhrif hinnar líðandi stundar áttu mestan þátt í vali ævintýranna og gáfu frásögninni sérstakan blæ. — Þegar veturinn teiknaði rósir sínar á lítinn glngga og snjóinn mald- aði niður fyrir utan, þá var gott að leita huggunar í voninni um betri tima, þvi að „vordraumurinn verður flestum sætur“. „Ef að þornar ullin vel, og ekki gerir stórfelld él, sendi ég þér um sumarmálin sóley i varpa.“ „.... ljósálfar sér leika á hól að lýsigulli og steinum. Við skulum reyna að ræna frá þeim einum.“ Þegar liður fram á vorið, eru gjafirnar stærri. Við fáum fjólu ÍO

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.