Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Síða 16
scm menn enn haf;i komið auga á, væri þá aðeins í 3 metra
fjarlægð, en okkar vetrarbraut öll á stærð við tituprjónshaus.
Allar þær stjörnur, sem sjást með berum augum, kæmust þá fyr-
ir i kúlu, er væri 1/12 nnn. að þvermáli, og sól vor væri sem
ein einasta rafeind. Ef rafeindirnar væru ekki ódeilanlegar,
mætti þá hugsa sér jarðarhnöttinn sem milljónasta hluta úr
einni rafeind.
Og ef tilgáta Jeans um uppruna sólkerfis vors er rétt, þá eru
slík reikistjörnukerfi sjaldgæf fyrirbæri. Lif og anda þekkja vís-
indin aðeins á þessum eina hnetti, þessari liverfandi ögn i risa-
auðn geimsins, og allár likur til þess að skilyrði svipaðs lífs
séu næstum hvergi annars staðar.
Liggur það ekki í augum uppi, að hér muni vanta i eitthvað
meira en lítið? Er þetta allt það samhengi og samræmi tilver-
unnar, sem vísindin geta gefið oss?
Mun ekki hitt heldur, að ævintýri vísindanna sé enn ekki
nema byrjunin?
Yngvi Jóhannesson.
Bréf frá félagsmönnum.
Nesk. 30. des. 1938.
Góðir félagar!
Mér finnst rétt að ég, eins og ýmsir fleiri, láti álit mitt i ljós
um starf Máls og menningar og hvaða útgáfur félagið skuli ráð-
ast í í náinni framtíð.
Ég er liinn ánægðasti með þær bækur, sem félagið hefur látið
okkur i té á líðandi ári. Rauðir pennar t. d. sóma sér vel við
hlið fyrri binda. — Annars er það ekki ætlun mín að ræða svo
mjög um hina stuttu fortíð félagsins. Hún er að vísu glæsileg
og táknandi dæmi um það, að samtök þjóðarinnar geta hrund-
iö í framkvæmd hlutum, sem flestum virðast óframkvæman-
legir. En mér finnst meiru skipta að ræða um framtíðarstarf-
ið, ef vera mætti, að það gæti orðið félagsstjórninni til leið-
beiningar við val útgáfubóka félagsins.
í tímariti félagsins hefur nokkuð verið ritað um bókaval og
starfshætti félagsins, og þá einkum í grein Kr. E. A. í öðru tölu-
blaði (Framtíðarstarfsemi Máls og menningar) og jafnframt eftir
því óskað, að félagsmenn létu uppi álit sitt um þessi mál.
Ég er sammála þeirri tillögu greinarhöfundar, að félagið gefi
út árlega a. m. k. tvær bækur fagurfræðilegs efnis. Og sú regla,
að gefa út bók eftir nýjasta Nobelsverðlaunahöfundinn, er vafa-
14