Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Síða 18

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Síða 18
bækur um íslenzk efni, — alfræðirit, mannkynssögu, bókmennta- sögu o. fl. — Og þegar maður á að ákveða, livað af þessu mað- ur vill láta sitja á hakanum, kemst maður i stökustu vandræði.. — Við vildum helzt geta fengið þetta allt. í þriðja tímaritshefti eru birtir bréfkaflar frá nokkrum fé- lagsmönnum. Láta tveir þeirra í ljós það álit sitt, að heppileg- ast mundi að láta útgáfu alfræðirits bíða, en ráðast heldur í íuannkynssögu-útgáfu. — Mér er það vel ljóst, hversu mikið nauðsynjaverk þar er um að ræða, en ef ég mætti veljá, þá mundi ég heldur kjósa alfræðiritið. — Mig hefir lengi langað til að eignast bæði mannkynssögu og alfræðirit, en þó miklu fremur alfræðirit, þrátt fyrir löngun mína í sögulegan fróðleik.. — Ég lief oft ætlað .að kaupa danska eða norska alfræðibók,. en mér hefur alltaf reynzt það ofvaxið. En þarna sé ég opn- ast möguleika á því að eignast ritið, og það meira að segja á mínu eigin máli. — Alfræðirit er ómissandi hverjum upplýstum nútimamanni, og vil ég leggja það til, að í útgáfu þess sé ráð- izt þegar á næsta ári, séu þess nokkur tök. — Rit Björns Franzsonar hefur ekki borizt hingað enn. — Ég get því ekki dæmt um það af reynslu, hvort ég óski slíkra rita sem ákveðins liðs í útgáfustarfseminni, en mér virðist, að slíkur flokkur mundi verða mjög nauðsynlegur og nytsamur, og gæfí yfirlit yfir mörg þau svið, þar sem við eigum takmarkaðan bókakost og þar af leiðandi takmarkaða vitneskju um. Og ég er búinn að hlakka lengi til að fá þetta vafalaust merka rit. — En vegna þess þrönga stakks, sem Mál og menning þrátt fyrir allt verðilr að sníða starfi sinu, vildi ég skjóta því fram, hvort ekki væri rétt að gefa út slíkt rit annaðhvert ár. — Væri þá hægt að koma öðrum flokki að jafnhliða, sem einnig kæmi út annaðhvert ár. Sú tilhögun, sem ég mundi óska á starfi félagsins á nrestu árum, er sem næst þessi: 1. Rauðir pennar. 2. Tvö fagurfræðileg rit (ljóð ca. þriðja hvert ár). 3. íslenzk fræðirit annað hvert ár. 4. Rit i líkingu rits Björns Franzsonar annað hvert ár. 5. Alfræðirit. Með þessu er ráðstafað 5 bókum, og ef miðað er við C bæk- ur árlega, — en það finnst mér ekki eiga að vera alveg bind- andi, — er einni bók enn óráðstafað, og er það gott, svo að unnt sé að uppfylla aðrar bókmenntalegar þarfir að einhverju 16

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.