Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Blaðsíða 25
asta bók hans, íslenzkur aðall, er væntanleg í danskri útgáfu,
og hefur Gunnar Gunnarsson, rithöfundur, tekið að sér að þýða
bókina. Verður gaman að sjá, hvernig hin sérkennilega list Þór-
bergs fellur i smekk Dana.
Halldór Kiljan ferðaðist til Danmerkur, Frakklands og Hol-
lands og hafði umsjá með útgáfu bóka sinna i þessum löndum.
Salka Valka er að koma út á frönsku. Á hollenzku kom hún út
1937 og fékk frábærilega góðar viðtökur hjá öllum ritdómurum
og seldist mjög vel. Útgáfan er mjög vönduð og skrautleg, með
teikningum úr íslenzku þjóðlífi og íslenzkri náttúru eftir Anton
Pieck. I vetur kom út Sjálfstætt fólk. Á dönsku eru bækur Hall-
dórs þýddar jafnóðum. Höll sumarlandsins kom út fyrir jólin
og fékk bezta dóma af öllum bókum hans. Ýmsir frægustu rit-
dómarar Dana, eins og Jörgen Bukdal (Politiken), Kai Friis-
Möller (Extrabladet), Paul la Cour (Tilskueren), Hans Brix (B.
T.), Ivarl Elfeldt (Berlingske Tidende), Hans Ivirk (Arbejder-
hladet) og Julius Bombolt (Social-Demokraten) luku hinu mesta
lofsorði á bókina og rithöfundarhæfileika Halldórs. Próf. Hans
Brix og Ivai Friis-Möller sögðu m. a., að Höll sumarlandsins væri
bezta stáldsagan, sem þýdd hefði verið á dönsku á árinu. —
Gerska æfintýrið er verið að þýða á dönsku og norsku. Sjálf-
stætt fólk kemur út í Englandi og Ameriku samtímis i haust. Áð-
ur er Salka Valka komin út í þessum löndum, og var lnin val-
in sem bezta bók mánaðarins af slærsta kvöldhlaði Lundúna,
Evening Standard. Ennfremur er Sjálfstætt fólk að koma út á
rússnesku. — Þannig hljóta skáldsögur Halldórs hina beztu við-
urkenningu, hvar sem þær birtast, og er víða farið að telja hann
i röð fremstu rithöfunda, sem nú eru uppi. Er það mikill sómi
fyrir ísland, er rithöfundur þjóðarinnar, eins og hann og Gunn-
ar Gunnarsson, geta sér svo gott orð erlendis.
Dúsundir
húsmæðra
hafa gefið
FREYJU- SUÐUSÚKKULAÐI
sín beztu meðmæli.
23