Fjarðarpósturinn - 08.01.2015, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2015
Söngur og framkoma - 10 vikur,
fyrir 10-12 ára, 13-15 ára, 16 ára og eldri.
Einsöngvaranám - 12 vikur, fyrir 16 ára og eldri.
Söngleikjanámskeið í mars og apríl.
Skráning er á netfangið meiriskoli@meiriskoli.is og í síma 822 0837.
Nánari upplýsingar eru á facebookinu okkar “MEiriskóli”
og á heimasíðunni www.meiriskoli.is.
Ný námskeið
hefjast 19. janúar
www.meir iskol i . is
Kennsla fer fram í Hafnarfirði og Reykjavík
Lærðu á röddina lærðu á sjálfan þig
Lilja Guðmundsdóttir er 24 ára
Hafnfirðingur sem hefur æft
samkvæmisdans hjá Dans
íþróttafélagi Hafnarfjarðar (DÍH)
frá því hún var 8 ára gömul. 17
ára flutti hún til Danmerkur
vegna skorts á dansherrum hér á
landi og dvaldi þar í 3 ár. Þar
kenndi hún Zúmba til að afla sér
tekna og er hún flutti svo til
Frakklands stofnaði hún og
fransk ur dansherra hennar fyrir
tæki í kringum Zúmba kennslu
og voru þau orðin vel þekkt þar
er hún flutti þaðan. Hennar
markmið voru þó að ná langt í
dansi og eftir 2 ár í Frakklandi
þar sem hún keppti undir
merkjum DÍH hélt hún heim á
leið. Höfðu þau náð 5. sæti á
Íslandsmóti hér heima en vildi
gera enn betur. Nýlega kynntist
hún 29 ára dansherra Ricardo
Silva, frá Braga í Portúgal. Hann
er nú að flytjast hingað til lands
og munu þau æfa og keppa
saman. Segist Lilja leggja mikla
áherslu á að skapa eigið and
rúmsloft úti á dans gólfinu til að
aðgreina þau frá öðrum kepp
endum en þau keppa í suður
ame rískum dönsum sem saman
stendur af 5 dönsum. Dönsuðu
þau saman í Portúgal í um hálft
ár og kepptu m.a. annars á Milan
Open fyrir DÍH þar sem þau
urðu í 20. sæti af 80 pörum í
sterkri keppni og færðumst þar
með 2.000 sætum ofar á heims
listanum! Munu þau dansa fyrir
DÍH og keppa á Íslands meistara
mótinu núna í lok janúar til að
keppa um titilinn. Stefna þau hátt
og vilja geta keppt fyrir Íslands
hönd á Evrópu og heims
meistaramóti.
Lilja stundar nú nám í HÍ í
næringarfræði sem hún segir
muni nýtast sér vel.
Ricardo Silva kemur til lands
ins á morgun og þau munu þá
hefja strangt æfingartímabil.
Samhliða því og til að afla sér
lífsviðurværis eru þau að byrja
með Pílates tíma fyrir fólk á
öllum aldri, byrjendur og lengra
komna. Hafa þau fengið aðstöðu
hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar
að Bæjarhrauni 2 og hefjast
námskeiðin 12. janúar nk. Hafa
þau stofnað Lífsstílsakademíuna
og stefna á aukna starfsemi í
framtíðinni. Segir Lilja að Pílates
sé æfingakerfi sem hjálpi til að
auka sveigjanleika, vöðvastyrk
og þol í vöðvum líkamans þar
sem lögð er áhersla á líkams
vitund og öndunaræfingar. Hent
ar Pílates fyrir byrjendur sem
lengra komna að sögn Lilju.
Nánari upplýsingar má finna á
Facebook „Lífsstíls akademían“
og hjá Lilju í síma 822 5633.Lilja Guðmundsdóttir og Ricardo Silva.
Keppnisdansarar með Pílates námskeið
Þurfti til útlanda eftir dansherra
Lilja í ljósara útgáfu!
Biskup Íslands hefur skipað sr.
Þórhildi Ólafs prófast í Kjalar
nessprófastsdæmi. Tekur hún við
af sr. Gunnari Kristjánssyni á
Reynivöllum í Kjós sem gegnt
hefur starfinu frá 1997.
Þórhildur er fyrsti hafnfirski
presturinn til að gegna þessu
embætti síðan sr. Garðar Þor
steinsson gegndi því embætti frá
1954 til 1977 er hann lét af
em bætti sem sóknarprestur í
Hafn ar fjarðarkirkju. Eiginmaður
Þór hildar er sr. Gunnþór Þ. Inga
son sem tók við sem sóknar prest
ur í Hafnarfirði af sr. Garðari.
Sr. Þórhildur segir í samtali við
Fjarðarpóstinn að tilkynningin
sem barst henni fyrir helgi hafi
komið sér skemmtilega á óvart.
Segist hún nú þurfa að setjast vel
yfir þær reglur sem gilda um
prófast svo hún geti tekist á við
þau verkefni sem starfinu fylgja.
Hún mun áfram sinna sínu
starfi sem prestur í Hafnar
fjarðarkirkju. Prestar og safn
aðar formenn tilefna í embættið
en biskup Íslands skipar í það.
Ekki er gefið upp hverjir aðrir
voru tilnefndir.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Telur sig hafa tapað 1,6
milljónum vegna afglapa
Byggingarfulltrúi samþykkti án heimildar
Gunnar Örn Friðriksson,
eigandi Hnoðravalla 24 sendi 7.
október sl. embætti byggingar
fulltrúans í Hafnarfirði stjórn
sýslukæru þar sem krafist er að
reyndarteikning sem samþykkt
var af byggingar fulltrúa að
beiðni fyrri eigenda, en án
aðkomu þinglýsts eiganda, verði
felld úr gildi og upphafleg
teikning verði samþykkt sem
gild.
Gunnar keypti fasteignina með
afsali 7. júlí 2010 og komu gallar
í ljós á fasteigninni og var rekið
mál fyrir héraðsdómi vegna
þeirra. Þann 30. ágúst 2012 lagði
seljandi fram sk. reyndar
teikningar af regnvatns og
skolplögnum í jörðu sem fulltrúi
byggingarfulltrúa tók á móti og
samþykkti án vitundar og
samþykkis þinglýsts eiganda.
Var umrædd teikning notuð
sem sönnunargang í dómsmálinu
og segir Gunnar Örn í kærunni að
hún hafi orðið til þess að hluti
málsins tapaðist. Þar kemur
einnig fram að Gunnar telji beint
fjárhagstjón hans vegna þessa
hafi verið 1.650.000 kr. eins og
komi fram í dómsorði og mun
Gunnar leita réttar síns eftir hefð
bundnum leiðum. Segir hann
jafnfram í kærunni óþarft að
fjölyrða um ábyrgð þess aðila er
fremji embættis afglöp sem að
framan sé lýst.
Beiðni Gunnars um að upp
runa legur uppdráttur verði látinn
gilda var samþykktur á af greiðslu
fundi skipulags og byggingar
Skriðsundsnámskeið
Næstu
námskeið
hefjast
15.
janúar
í
Sundhöll
Hafnarfjarðar.
Hvert
námskeið
er
8
skipti.
Grunnnámskeið
Þri
og
fim
kl
19:00-‐19:50
Framhaldsnámskeið
Þri
og
fim
kl
20:00-‐20:50
ásamt
heimaverkefnum
Upplýsingar
og
skráning
holmsteinn10@gmail.com
fulltrúa 31. des. sl. með skilyrðum
að regnvatnslögn yrði lögð eins
og upprunalegar teikningar sýna.
Sr. Þórhildur Ólafs
skipaður prófastur
Skrifstofa prófasts flyst í Hafnarfjarðarkirkju