Fjarðarpósturinn - 09.04.2015, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2015
Aðalfundur Félags eldri
borgara í Hafnarfirði haldinn 26.
mars minnir þingmenn og
sveitar stjórnarmenn á í álykt
unum sínum, að það er ekki hægt
að segja eitt í aðdraganda
kosninga og muna svo ekki eftir
loforðunum eftir kosningar.
Í ályktun sem aðal fundurinn
samþykkti var skorað á heil
brigðisráðherra að sjá til þess að
rekstrarfé til hjúkrunar heimila
verði aukið. Vegna skorts á
fjármagni sé ekki hægt að manna
heimilin sem skildi, en það komi
niður á umönnun.
„Við mótmælum því harðlega
að fjármagn í Framkvæmdasjóð
aldraðra verði notað til þess að
greiða rekstur hjúkrunarheimila.
Aðalmarkmið sjóðsins er að
stuðla að byggingum hjúkrunar
heimila.“
Telur fundurinn að neyðar
ástand sé að skapast vegna vönt
unar á hjúkrunarrýmum í
Hafnarfirði og víða á landinu.
Samfélagið allt verði að bregðast
við vandanum nú þegar með
gerð áætlunar um fjölgun hjúkr
unar rýma. Félag eldri borgara í
Hafnarfirði skorar á bæjarstjórn
Hafnarfjarðar og ríkisvaldið að
standa saman að gerð slíkra
áætlana.
Vilja hækkun á
skattleysismörkum
Fundurinn telur að ein mesta
kjarabót fyrir eldri borgara og
launa fólk yfirleitt sé hækkun á
skattleysismörkum. Þá telur
fund urinn það eina af betri kjara
bótum fyrir eldri borgara að
lækka virðisaukaskatt á lyfjum
niður í það sem er víðast hvar í
Evrópu. Bendir fundurinn á að
enginn virðisaukaskattur sé á
lyfseðilsskyldum lyfjum á
Möltu, í Englandi og Svíþjóð.
„Það er gjörsamlega óþolandi
að yfirvöld noti ávallt tilskip
unarvald í skatta og kjaramálum
aldraðra án nokkurra skýringa
eða samræðu við hópinn. Við
mótmælum skerðingum harð
lega og viljum hvetja til samræðu
ríkis og sveitarfélaga við eldri
borgara um skipan kjaramála
aldraðra.“ Vilja eldri borgarar
fella niður fasteignagjöld hjá 70
ára og eldri er búa í eigin
húsnæði.
Vilja hjúkrunarheimili sem
fyrst
FEBH skorar á bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði að leita allra leiða til
þess að ljúka við undirbúning og
síðan byggingu hjúkrunar heim
ilis fyrir aldraða í Hafnarfirði.
Brýna nauðsyn ber til að fjölga
hjúkrunarrýmum i Hafnarfirði.
Eldri borgarar í Hafnarfirði
munu fylgjast vel með framvindu
þessa máls, og beita sér eins og
þeir geta til þess að því verði lok
ið farsællega á sem skemmstum
tíma.
Fjölgun langt yfir
landsmeðaltal
Í ályktuninni segir að fjölgun
eldri borgara í Hafnarfirði er
mjög mikil, miklu meiri en á
landsvísu. Margir hafi flutt til
bæjarins frá öðrum landshlutum.
Það sé ekki of mælt hjá heil
brigðisráðherra er hann sagði
nýlega að á næstu 5 árum þurfi
að útvega 100 ný pláss á ári til að
leiðrétta stöðuna. Það dugar ekki
að byggja nýtt hjúkrunarheimili í
Skarðshlíð með 60 rúmum og
loka um leið 58 rúmum á Sól
vangi. Það sé flottræfilsháttur.
Eldri borgurum fjölgar
hratt í Hafnarfirði
Aðalfundur FEBH vill hjúkrunarheimili strax
Hinsegin í grunnskóla
Þegar ég útskrifaðist úr
grunnskóla vissi ég ekki að ég
væri samkynhneigður. Ég skildi
ekki mínar eigin tilfinningar og
datt ekki í hug að ég væri eitthvað
annað en gagnkyn
hneigð ur. Ég var lengi
að sættast við sjálfan
mig og opna mig fyrir
fólk inu í kringum mig.
Á unglingsárunum
verða mikil umskipti í
lífi einstaklinga. Ungl
ings árin geta reynst
erfiður tími fyrir þá
sem falla ekki inn í
norm samfélagsins.
Marg ir upplifa að þeir falli ekki
inn í hópinn vegna kynhneigðar
eða kynvitundar. Þessir ein
staklingar eiga í meiri hættu en
aðrir að einangrast félagslega og
verða fyrir aðkasti. Hinsegin
ung menni upplifa oftar vanlíðan
og eru líklegri til að reyna
sjálfsvíg. Rannsókn framkvæmd
í Noregi leiddi í ljós að hlutfall
hinsegin ungmenna sem hafa
reynt sjálfsvíg er þrisvar til
fjórum sinnum hærra en hlutfall
annarra ungmenna.
Fræðsla og upplýst umræða
getur skipt sköpum í lífi hinsegin
ungmenna. Fræðslan getur gert
þeim auðveldara að takast á við
þær tilfinningar sem tengjast
kynhneigð sinni og kynvitund.
Auk þess getur hinseginfræðsla
verið mikilvægur liður í að út
rýma fordómum og upp ræta hat
ursfulla orð ræðu gegn hinsegin
einstaklingum.
Breytinga er þörf. Án
þess að geta fullyrt um
það tel ég að það hefði
getað skipt sköpum
fyrir mig að fá slíka
fræðslu. Þess vegna
legg ur Samfylkingin í
Hafnarfirði til að bær
inn fari í átak í eflingu
hinsegin fræðslu í
grunn skólum bæjarins.
Í tillögunni segir að
leitað verði til Samtakanna ‘78
um ráðgjöf við ungmenni og
sam starfs um þróun námsefnis
fyrir alla bekki grunnskóla. Til
lagan er lögð fram að frumkvæði
Bersans Ungra jafnaðarmanna í
Hafnar firði og verður flutt af
varabæjar fulltrúanum Evu Lín
Vilhjálms dóttur á næsta fundi
bæjarstjórnar þann 15. apríl.
Það er von okkar Evu að
tillagan hljóti samþykki. Sömu
leiðis vonum við að önnur bæjar
félög á landinu fylgi frumkvæði
Hafnarfjarðar svo öllum
ungmennum standi sama
þjónusta til boða.
Höfundur er formaður Bers
ans, ungra jafnaðarmanna í
Hafnarfirði.
Óskar Steinn
Ómarsson
Ekki
hunda svæði
á Hörðu
völlum
Skipulags og byggingarráð
hefur falið skipulags og
bygg ingarsviði að skoða fleiri
möguleika á lokuðu hunda
gerði.
Lokað hundagerði á
Hörðuvöllum hafði verið til
skoðunar en skv. minnisblaði
sviðsstjóra er alls óvíst að slík
starfsem rúmist innan skil
grein ingar aðalskipulags Hafn
ar fjarðar á „opnum svæð um“.
Þar stendur: „Svæði fyrir
útivist með stíg um, áning ar
stöðum og þjón ustu sem veitt
er á forsendum útivistar. Ekki
er gert ráð fyrir annarri mann
virkjagerð, búsetu eða atvinnu
starfsemi.“
Telur sviðsstjóri að hunda
svæði valdi óneitanlega ónæði.
A.m.k. þyrfti að grennd
arkynna málið fyrir íbúum í
nágrenninu. Leitað verður að
öðrum stað fyrir lokað hunda
gerði og umhverfis og fram
kvæmda svið fékk ekki fram
kvæmda leyfi eins og óskað
hafði verið eftir.
Stúdíó Dís
699-6393 - heidadis@studiodis.is
www.studiodis.is - facebook/studiodis
1945 árgangurinn
Skólasystkini úr Hafnarfirði, fædd 1945, ætla að hittast
í Skútunni laugardaginn 9. maí kl. 19.
Matur og dans. – Fjölmennum eldhress!
Nánari upplýsingar gefur Kolbrún, kolbrun@jrj.is
Sameiginlegt lið FH og ÍH
fagnaði deildarmeistaratitli í 2.
flokki karla í handbolta 31. mars
sl. er liðið sigraði Hauka á
Ásvöllum í síðasta deildar leikn
um. FH/ÍH hafði mikla yfirburði
í leiknum og sigraði 3119 og
endaði með 16 stig. Haukar
enduðu í 6. og síðasta sæti í 1.
deild með 4 stig..
Í átta liða úrslitum til Íslands
meistara keppir FH við Akureyri
en ekki var kominn dagsetning á
þann leik þegar þetta er skrifað.
Haukar keppa hins vegar við
ÍBV í Vest mannaeyjum á laugar
daginn kl. 13. Selfoss mætir
Fram og Stjarnan mætir Val sem
endaði í 2. sæti í deildarkeppninni.
Undanúrslitin verða leikin
laugardaginn 25. apríl og úrslita
leikurinn verður í Kaplakrika 1.
maí kl. 20.30.
Liðið leikur í FHbúningum
enda flestir úr þeirra hópi.
Aðalfundur
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar
boðar til aðalfundar
í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 15. apríl 2015 kl. 18.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Deildarmeistarar í 2. flokki í handbolta
Sameiginlegt lið FH og ÍH sigraði Hauka með yfirburðum
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n