Fjarðarpósturinn - 09.04.2015, Síða 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2015
þjónusta
Tek að mér að færa vídeó, slide,
ljósmyndir á DVD diska,eða
flakkara. Sýnishorn á
http://siggileifa.123.is sími
863 7265. Sigurður Þorleifsson.
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hagstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Alþrif, þvottur, bón og vélarþvottur.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
nnréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Húsgagnahreinsun. Djúphreinsun
borðstóla, sófasett, rúmdýnur og
teppi. Mjög vönduð hreinsun á
leðuráklæði ásamt viðhalds-
meðferð. Komum heim til fólks og
hreinsum. Sími 780 8319.
til sölu
Myndlist til sölu. Olíu-og akrýl-
málverk, vatnslita- og grafíkverk
eftir Kristberg Ó. Pétursson.
Úrval mynda á tilboðsverði.
S. 694 8650 - kbergur@mi.is
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Tónleikar í Bæjarbíói
Guðrið Hansdóttir (sóló) og glæný
hljómsveit Erlu Stefánsdóttur, Dalí,
stíga á stokk í Bæjarbíói á morgun,
föstudagskvöld kl. 22 og efna til
tónlistarveislu.
Guðrið er færeysk og hefur starfað
talsvert í tónlist hér á Íslandi og er án
efa ein besta söngkona Færeyja um
þessar mundir. Dalí er glæný
hljómsveit sem Erla Stefánsdóttir
hefur sett saman með þeim Helga
Reyni Jónssyni gítarleikara og Fúsa
Óttars trommara. Fyrsta lag þeirra
Faith kemur einmitt út þessa dagana.
Tónleikarnir munu hefjast kl. 22.00,
húsið opnar kl 21.00. Miðaverð er
einungis 1500 kr. og verða miðar
aðeins seldir við innganginn.
Kynningarfundur
Kynningarfundur um deiliskipulag
Ásvallabrautar verður haldinn á
mánu daginn kl. 17.15 að Norðurhellu
2. Til fundarins mæta hönnuðir
Ásvallabrautar og kynna útfærslu
skipulags og hljóðvistar.
Listamannaspjall
Á sunnudaginn kl. 14 verður lista-
mannsspjall með Jónínu Guðna dóttur
þar sem hún fer yfir áhuga verðan
listferil sinn, sem nú spannar tæplega
fimmtíu ár. Sýndar verða myndir af
verkum frá öllum ferlinum og Pétrún
Pétursdóttir og Ólöf K. Sigurðardóttir
ræða við listakonuna um þær
hugmyndir sem að baki liggja.
Sýningar í Hafnarborg
Tvær sýningar standa yfir í Hafnarborg.
Í aðalsal sýningin MENN og sýningin
Vörður í Sverrissal.
Orgeltónleikar
Douglas Brotschie leikur á orgel
Hafnarfjarðarkirkju á þriðjudaginn kl.
12.15. Aðgangur ókeypis. Þetta er
fyrri hluti Tónleikatvennu í apríl hjá
Hafnarfjarðarkirkju.
Sendið stuttar tilkynningar um
viðburði á ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
Leita að
blak
þjálfara
Eina blakfélagið sem er
starfrækt í Hafnarfirði er nú
með lausa stöðu þjálfara liðsins
og óska því eftir að áhugasamir
gefi sig fram.
Starfið í Blakdeild Hauka er
tvískipt. Annars vegar er það
með lið sem stefnir að því að
keppa í deild en er alveg á
byrjunareit þar. Hins vegar eru
það konur sem hafa gaman af
blaki og ætla að halda áfram að
gera það að einskærri
skemmtun.
Karólína Helga Símonardóttir
formaður blakdeildarinnar segir
blakið vera í mikilli uppbygg
ingu í Hafnarfirði og því sé
leitað að þjálfara sem er
metnaðarfullur og áhugasamur
um að taka þátt í þessu
brautryðjendaverkefni.
Áhugasamir hafi samband
við Karólínu Helgu formann
karolinahelga@simnet.is, með
upplýsingum um fyrri reynslu
og ferilskrá.
Blár apríl – Lífið er blátt
á mismunandi hátt
Blár apríl, vitundarvakning um
einhverfu, hófst 1. apríl sl. Á
Íslandi og um allan heim munu
fyrirtæki og stofnanir taka þátt í
vitundarvakningunni með því að
baða byggingar sínar í bláu ljósi
í apríl.
Styrktarfélag barna með
einhverfu stendur fyrir vitundar
vakningunni hér á landi. Styrkt
arsöfnun félagsins er hafin og
geta áhugasamir styrkt málefnið
um 1000 kr. með því að hringja í
902 1010.
Í ár verður safnað fyrir nám
skeiðum fyrir foreldra barna með
einhverfu sem og félags færni
námskeiðum fyrir börn með ein
hverfu. Námskeiðin verða haldin
í samvinnu við Greiningar og
ráðgjafastöð ríkisins. Nánari
upplýsingar um söfnunina má
finna á Facebook undir ein
hverfa.
Blár apríl nær hámarki á
föstudaginn 10. apríl. Þá munu
m.a. börn í leikskólum og nem
endur í grunn og framhalds
skólum taka þátt í vitundar vakn
ingunni með því að klæðast bláu
og sýna afrakstur þemadaga um
einhverfu.
Einhverfa kemur samfélaginu
öllu við. Athyglisverðar stað
reyndir um einhverfu:
• Eitt af hverjum 88 börnum fæð
ist með röskun á einhverfurófi.
• Hjá drengjum eru líkurnar 1 á
móti 54 – fimm sinnum meiri
en hjá stúlkum.
• Einhverfa er fötlun ekki
sjúkdómur og því ólæknandi.
• Það skiptir sköpum fyrir
einhverfa að fá viðeigandi
þjálf un eins fljótt og hægt er.
Stofnað 1988
Kári Halldórsson
lögg. fasteignasali.
Fjarðargötu 17, Hfj.
Opið virka daga kl. 9-17
Sími: 520 2600
as@as.is
www.as.is
Eiríkur Svanur
Sigfússon
löggiltur fasteignasali,
sími 862 3377
Norðurbakki 13c, Hfj.– íbúð 0207
Opið hús laugardaginn 11. apríl kl. 16 - 16:30
Við erum í snjallsímum á m.as.is og á facebook.com/asfasteignasala
OP
IÐ
HÚ
S
Glæsileg 135,3 m² 3ja herbergja endaíbúð (sjávarmegin) á 2. hæð í
lyftuhúsi, ásamt sér stæði í bílgeymslu. Íbúðin er austan til í húsinu,
þ.e. nær miðbænum. Íbúðin sjálf er 120,3 m², tvær geymslur 7,6 m² og
7,4 m², samtals 135,3 m². Innréttingar og skápar úr hnotu frá AXIS,
hvítar sprautulakkaðar hurðir, eikar parket. Yfirbyggðar suður svalir frá
borðstofu, frábært útsýni. Innfelld lýsing í loftum, gólfhiti, sér stilling í
hverju rými. Verð: 46,5 millj. Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur
fasteignasali verður á staðnum, sími 862 3377.
Pólitískir hárblásarar
Það hefur verið lærdómsríkur
tími fyrir réttan og sléttan
bæjarbúa að demba sér í bæjar
málin eins og ég gerði síðastliðið
vor og standa núna í stormi
pólitískra hár blásara.
Þeir gera reyndar lítið
fyrir mig þar sem hárið
hefur ekki flækst fyrir
mér síðan um aldar
mótin.
Reyndur hárgreiðslu
meistari sagði mér um
daginn að í raun tæki
hún ekki eftir hávað
anum í hárblásaranum
fyrr en slökkt væri á
honum því þá tæki hún eftir
þögninni og eðlilegum um
hverfis hljóðum. Þessu get ég vel
trúað.
Við búum í bæ sem hefur verið
í mótun allt frá því víkingurinn
HrafnaFlóki Vilgerðarson hafði
hér stutta viðdvöl einhvern tím
ann í kringum árið 860. Á þeim
tíma hafa ótal margir tekið þátt í
þeirri mótun með stórum og
smáum ákvörðunum.
Sem nýlegt dæmi má taka 15
ára gamlan saming bæjarins við
FM hús um byggingu og rekstur
Áslands skóla. Ég verð
að taka undir með
ritstjóra Fjarðar póstsins
í síð asta tölublaði, að
fáir ef nokkrir sem nú
sitja í bæj arstjórn, telja
þenn an samning góð
an. Einmitt þess vegna
hef ur bæjarstjóra verið
fal ið að ganga í málið
og freista þess að ná
betri samningi við það
ágæta fyrirtæki sem samning
urinn var gerður við.
Það er auðvelt að horfa í
baksýnisspegilinn og lýsa fyrir
samfylgdarmönnum hvaða leið
er að baki og hvort hún hafi verið
happadrjúg eður ei og hverjum
það er að kenna ef illa til tekst.
Við þessa iðju fást pólitískir
hárblásarar. Við munum senni
lega deila um það, eftir nokkur
ár, hvort bæjarstjóranum hafi
tekist vel upp í þeim samninga
viðræðum sem bærinn vill nú
hefja við FM hús.
Vandamál þeirra sem taka
ákvarðanir eru að þær eru gerðar
í nútíma, en ekki í fortíð eða
framtíð. Ég fullyrði að allir þeir
sem hafa komið að ákvörðunum
sem mótað hafa bæinn okkar í
gegnum tíðina hafa haft gott eitt
í huga og með hag bæjarbúa í
fyrirrúmi. Í dag skil ég til að
mynda ekki hverjum datt í hug
að heimila byggingu íbúðahverfis
undir rafmagnslínum, Fjörð,
Dverg eða útlit bygginganna á
Norðurbakkanum. Það skiptir
bara ekki máli, allt þetta er þarna
í dag og það sem við getum gert
er að læra af ákvörðunum okkar
til þess að geta tekið góðar
ákvarðanir í framtíðinni.
Höfundur er bæjarfulltrúi
(Æ)
Einar Birkir
Einarsson
• Fögnum fjölbreytileikanum og
tökum fólki eins og það er.
Nánari upplýsingar um
einhverfu má finna á einhverfa.
is, greining.is og www.facebook.
com/einhverfa
Nemendur í Áslandsskóla fræddust um einhverfu í fyrra.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n