Fjarðarpósturinn - 09.04.2015, Side 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2015
styrkir barna- og unglingastarf SH
Sundstund
gefur gull í mund Stofnuð 1983
EIGN VIKUNNAR
Daggarvellir 4A,
endaíbúð á efstu hæð. 113
m², glæsileg íbúð, yfirbyggðar
svalir. V. 33,9 millj.
Úrslita
veisla
Haukar sigruðu FH í
fyrsta leik liðanna
Það er sannkölluð úrslitaveisla
í Hafnarfirði en fjögur lið keppa
nú í úrslitakeppnum, FH og
Haukar eigast við í undanúrslitum
í handbolta karla, Haukar keppa
í undanúrslitum kvenna í hand
bolta við ÍBV, kvennalið Hauka
keppir í undanúrslitum við
Kefla vík í körfubolta og karlalið
Hauka keppir í undanúrslitum
við Tindastól í körfubolta.
FH - Haukar
Haukar sigruðu FH í fyrstu
viðureign liðanna í handbolta
karla. Haukar náðu mest 8 marka
forystu en á spennandi lokakafla
náði FH að minnka muninn í 1
mark þegar mínúta var eftir.
Haukarnir náðu þá að skora 2
mörk og sigruðu 3229. Næsti
leikur er á Ásvöllum í kvöld,
fimmtudag kl. 19.30 og sigri
Haukar eru FH úr leik. Annars
keppa liðin að nýju í Kaplakrika
á sunnudag kl. 19.30.
Haukar - ÍBV
ÍBV sigraði í fyrstu viðureign
leiðanna 3024 og annar leikur
inn var í gær miðvikudag eftir að
blaðið fór í prentun. Hafi ÍBV
sigrað eru Haukar úr leik, annars
leika þau oddaleik í Vest
mannaeyjum á laugardag.
Haukar - Tindastóll
Tindastóll sigraði Hauka í
fyrsta leik liðanna 9464. Liðin
keppa á morgun, föstudag, á
Ásvöllum kl. 19.15. Þriðji
leikurinn er svo á Sauðárkróki á
mánudaginn og fjórði leikurinn
er á Ásvöllum á miðvikudag kl.
19.15 en til þess að sá leikur
verði þurfa Haukar að hafa unnið
a.m.k. einn leik.
Haukar - Keflavík
Fyrsti leikur liðanna var í
Keflavík í gærkvöldi eftir að
blaðið fór í prentun. Næsti leikur
verður á laugardag kl. 16.30 á
Ásvöllum og þriðji leikurinn á á
þriðjudag kl. 19.15.
Árni Steinn Steinþórsson
skorar eitt af 9 mörkum sínum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Bókasafnið
Opið til sjö
Bæjarráð hafnaði ósk for
stöðumanns Bókasafns Hafn
ar fjarðar að loka kl. 17 í stað
þess að hafa opið til kl. 19.
Hafði forstöðumaðurinn ósk
að eftir þessu og því að breyta
vaktafyrir komulagi. Bæjarráð
leggur áherslu á að þjónusta í
bókasafninu verði óbreytt.