Fjarðarpósturinn - 28.05.2015, Blaðsíða 9
www.fjardarposturinn.is 9FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2015
Á golfnámskeiðinu verður farið yfir alla helstu þætti
golfleiksins, reglur og golfsiði á vikulöngum námskeiðum
Markmið golfleikjanámskeiðanna:
– eru fyrir allar stelpur og stráka á aldrinum 5 til 12 ára
– að fyrstu kynni af golfi eru jákvæð og það er gaman að leika golf
– farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga
– leiknar eru nokkrar golfholur á golfvelli- kennsla er gjarnan í formi
golfleikja ýmisskonar
– áhersla er á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum
– iðkendur geta tekið fleiri en eitt námskeið
Dagsetningar:
8. - 12. júní 5 dagar (mán. - föst.)
15. - 19. júní 4 dagar (mán. - föst. frídagur mið. 17. júní)
22. - 26. júní 5 dagar (mán. - föst.)
29. júní - 3. júlí 5 dagar (mán. - föst.)
13. - 17. júlí 5 dagar (mán. - föst.)
Hægt er að velja um námskeið frá kl. 9:00 - 11:45 eða kl. 12:30 - 15:15
Haldin verða tvö námskeið á dag í 5 vikur. Hægt er að fá lánaðan golfbúnað
meðan á námskeiði stendur. Allir eiga að mæta með hollt og gott nesti.
Fimm daga námskeiðin kosta kr. 10.000. Fjögurra daga námskeiðin kosta kr. 8.000.
Veittur er 20% systkinaafsláttur og einnig ef viðkomandi sækir fleiri en eitt námskeið.
Krakkarnir kynnast einnig leikjum og æfingum með svokölluðum SNAG búnaði,
en hann hentar sérlega vel til að auðvelda iðkendum að ná betri tökum á íþróttinni
og að auka skemmtanagildið.
Umsjónarmenn golfleikjaskólans hjá Keili eru þeir Karl Ómar Karlsson PGA golfkennari
og grunnskólakennari og Axel Bóasson afrekskylfingur úr Keili ásamt golfleiðbeinendum.
Allir krakkar sem ljúka námskeiðinu fá aðild að Sveinskotsvelli og verða skráð í Keili
Námskeiðum lýkur með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá GK
Búið er að opna fyrir skráningu á slóðinni keilir.felog.is
Ef fólk lendir í vandræðum þá eru leiðbeiningar á heimasíðu Keilis, keilir.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna inn á keilir.is
Golfklúbburinn Keilir mun
í samstarfi við Golfklúbb
Setbergs bjóða uppá
golfnámskeið á báðum
völlum í ár
Hver er
besti
söngvari
skógarins?
Hin árlega fuglaskoðunarferð
Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
verður á laugardaginn kl. 10.
Lagt af stað frá gróðrarstöðinni
Þöll við Kaldárselsveg. Gangan
tekur um tvær klukkustundir.
Stefnt er að því að finn út hver
sé besti söngvari skógarins?
Tónlistarskólinn
Leiðrétting
Í auglýsingu Tónlistarskólans
um innritun fyrir skólaárið
20152016 misritaðist fæð ing
ar ár þeirra sem geta innritast í
Suzukinám á fiðlu og á selló.
Innritaðir er þeir sem fæddir eru
árið 2010.
100 ára
afmæli
kosn inga
réttar
kvenna
Hátíðahöld í tilefni 100 ára
afmæli kosningaréttar kvenna
verða 19. júní nk. Hátíðahöldin
munu hefjast kl. 16 og verður
dagskráin birt síðar.
Kosin hefur verið 5 manna
nefnd vaskra kvenna innan
Banda lags kvenna í Hafnarfirði
til að skipuleggja og sjá um
hátíðahöld í Hafnarfirði í tilefni
100 ára afmæl is kosningaréttar
kvenna.
Allar konur í Hafnarfirði eru
boðnar velkomnar að taka þátt í
hátíðahöldunum sem haldin eru
í tilefni þessara tímamóta í jafn
réttisbaráttu íslenskra kvenna.
Fólk safnast saman á Austur-
velli 7. júlí 1915 til þess að
fagna kosningarétti kvenna.
Lj
ós
m
.:M
ag
nú
s
Ó
la
fs
so
n
Sílamávur
Sílamávur líkist svartbak en
er allmiklu minni og nettari.
Hér sést hann rogginn á bryggj
unni þó lítið sé þar lengur að
finna af æti. Sílamávurinn er
farfugl og verpir í maí til ágúst.
Sílamávurinn hefur gert
harða hríð að ungum á Læknum
sem Guðmundur Fylkisson
lögreglumaður hefur tekið að
sér að verja með kjafti og klóm.
Sílamávur með Sundhöllina í
baksýn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n