Fréttablaðið - 15.05.2015, Page 21
SAFNADAGUR
Íslenski safnadagurinn verður haldinn á sunnudag
um allt land en dagurinn hefur verið haldinn að
frumkvæði safnafólks síðan 1997. Um 50 söfn taka
þátt og er ókeypis inn á flest þeirra.
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
Facebook
Yfirhafnir
laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Sumar-
frakkar
Verð
23.900 .-
ÁSTRÍÐU-
KOKKUR
Ragna hefur
lengi haft
áhuga á
matargerð.
Pekanhnetu-
snúningurinn
á myndinni
hentar vel
með límon-
aðinu en upp-
skriftina að
honum má
finna á matar-
bloggi Rögnu,
ragna.is.
MYNDIR/STEFÁN
Rögnu Björgu Ársælsdóttur, hjúkr-unarfræðingi, matarbloggara og söngkonu, finnst skemmtilegt að
gera ýmsar tilraunir í eldhúsinu með
nýjar bragðtegundir og rétti. Hún hefur
lengi haft áhuga á matargerð og sat
ung á eldhúsbekknum og fylgdist með
mömmu sinni og ömmum í eldhúsinu.
Þegar Ragna bjó í Bretlandi var sum-
arið þar það heitasta í hundrað ár. „Ég
lærði þá að gera heimagert límonaði og
síðan þá hefur þetta verið uppáhalds
sumardrykkurinn minn. Ég geri margar
útgáfur af honum svo að það er seint
hægt að þreytast á þessum drykk. Ég er
farin að þrá sumar og sól og svo var ég
að koma frá Stokkhólmi þar sem ég fann
þessa fallegu könnu sem ég tók með
mér í handfarangri og mig langaði að
prófa að fylla hana af sæt-súru límonaði
með fljótandi klökum og sítrónusneið-
um. Svo ætla ég að láta mig dreyma um
sólhlífar,“ segir Ragna og brosir.
UNDIRBÚNINGUR:
400 ml sykur
200 ml vatn
Hitað saman að suðu þar til sykurinn er
uppleystur. Sett í kæli og kælt.
SAMSETNING:
350 ml sítrónusafi (um það bil sex til níu
sítrónur)
2 lítrar kalt vatn
sykursíróp
Aðferð:
- Kreistið safann úr sítrónunum í hönd-
unum eða með safapressu.
- Sigtið safann til að fjarlægja steina.
(Gott er að geyma smá af aldinkjötinu
sem festist í sigtinu og bæta út í safann
eftir á.)
- Hellið sykursírópi, sítrónusafa og
vatni saman við og hrærið þar til allt er
blandað.
- Skerið eina sítrónu í þunnar sneiðar og
bætið klökum út í.
Geymist í nokkra daga í kæli í lokaðri
flösku.
„Það er gaman að leika sér með þessa
uppskrift og setja nokkur myntublöð út
í sykursírópið þegar soðið er upp á því.
Þau eru svo sigtuð frá áður en sírópið
er sett út í vatnið og sítrónuna og fersk
blöð látin í staðinn. Eins er hægt að
nota timían, rósmarín eða ýmiss konar
ber,“ segir Ragna.
DREYMIR UM SÓL
UPPSKRIFT Þegar sólin skín eins og hún hefur gert undanfarið er ekki úr vegi
að huga að sumarlegum uppskriftum þó hitinn mættu alveg vera meiri.
SUMARDRYKKUR
Það verður gott að
bragða á þessu límonaði
á heitum degi í sumar.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
0
-A
5
3
C
1
6
4
0
-A
4
0
0
1
6
4
0
-A
2
C
4
1
6
4
0
-A
1
8
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K