Fréttablaðið - 15.05.2015, Síða 26
4 • LÍFIÐ 15. MAÍ 2015
Loksins, loksins hefur sólin
látið sjá sig og veðurguðirnir
ákveðið að leyfa okkur að njóta
hennar, án þess að vera í kulda-
gallanum, síðustu daga. Ég
hef tekið eftir því undanfarna
daga að fólkið í kringum mig
er almennt bjartara og glað-
ara en það hefur verið í vetur.
Það brosir meira og er jákvæð-
ara en oft áður. Það er ótrúlegt
hvað sólin hefur mikil áhrif á
líðan okkar og því um að gera
að nýta hana til hins ýtrasta á
meðan tækifæri gefst.
Þar sem ég vinn á líkams-
ræktarstöð hef ég einnig tekið
eftir því að smám saman fækk-
ar á stöðinni eftir því sem veðr-
ið batnar. Hvers vegna? Jú fólk
fer frekar út og hreyfir sig! Við
fáum bara örfáa mánuði á ári
þar sem veðrið er þokkalega
gott. Fæst okkar njóta þeirra
forréttinda að vinna úti yfir
sumartímann og því viljinn til
að eyða þeim frítíma sem maður
hefur á daginn úti mjög mik-
ill. Ég ákvað því að taka saman
nokkra kosti þess að hreyfa sig
utandyra yfir sumartímann.
1 Það að geta hreyft sig undir
berum himni og andað inn
fersku lofti á meðan er ómet-
anlegt. Líkaminn fyllist af ein-
hverri ólýsanlegri orku og vilj-
inn til að gera enn meira og
betur tekur yfir.
2 Þú færð að upplifa umhverf-
ið og náttúruna og njóta henn-
ar í botn á meðan líkaminn vinn-
ur fyrir bættri heilsu. Prófaðu
að fara eitthvert sem þú hefur
aldrei farið áður og stunda lík-
amsræktina þar. Það er virki-
lega gaman að hlaupa hring í
ókunnugum bæ og skoða sig um.
3 Þú færð alveg frían skammt af
D-vítamíni og smá lit á kropp-
inn í leiðinni. Mundu bara eftir
sólarvörninni!
4 Öll fjölskyldan getur tekið þátt.
Það er ekkert aldurstakmark á
æfingar utandyra. Taktu fjöl-
skylduna með í fjallgöngu, farið
í gönguferð í fjöruna eða finn-
ið ykkur stað til þess að fara í
ærslafulla leiki saman. Það er
frábært að njóta samveru við
ástvini á meðan maður hreyfir
sig.
5 Þú getur æft hvar sem er
og hvenær sem er. Engar
áhyggjur af því að líkams-
ræktarstöðin sé lokuð eða að
það sé of mikið af fólki. Þú
ræður algjörlega ferðinni.
Ég get ekki lýst því hversu
ánægð ég er yfir að geta loks-
ins farið út að hlaupa og stund-
að æfingar utandyra og get
ekki mælt nógu mikið með því
fyrir alla. Því legg ég til að
allir finni sér hreyfingu við
hæfi sem hægt er að stunda
undir berum himni. Ef þú vilt
félagsskap við æfingarnar er
ekkert mál að finna hlaupa-
hóp eða æfingahóp sem æfir úti
yfir sumartímann. Finndu bara
það sem þér hentar og komdu
þér út, því áður en þú veist af
verður Vetur konungur kominn
aftur í öllu sínu veldi.
„Það er ótrúlegt hvað
sólin hefur mikil áhrif
á líðan okkar og því
um að gera að nýta
hana til hins ýtrasta á
meðan tækifæri gefst“
HEILSURÆKTIN STUNDUÐ ÚTI Í SUMAR!
Nú þegar veðrið er okkur loksins hliðhollt þá er um að gera að brjóta upp rútínuna og fara út og hreyfa sig. Það eru ótal
leiðir til að nýta nærumhverfið og getur það skilað sér í bættu formi og sálin kætist einnig við sólarljósið og hreina loftið.
Gleðilegan mæðradag elskan,“ sagði hann og brosti lævísi-
lega er við skáluðum með pappa-
málum merktum KFC. Krakkarnir
festu sig í risavaxinni rennibraut-
inni og ég missti sósu á annað
brjóstið og spáði í því hvort það
tæki því að reyna þrífa hana.
Svona er víst lífið orðið. Þegar
við kynntumst þá héldum við upp
á alla tyllidaga, stóra sem smáa.
Það dugði ekkert minna en heill
dagur í óvissuferð, kræsingar í
hvert mál og litlar gjafir löðr-
andi í rómantík. Við höfðum allan
heimsins tíma til að dúllast með
ástsjúku hormónunum okkar.
Heimurinn var okkar eigin
cronut og við gúffuðum lysti-
semdirnar í okkur. Ætli það
mætti ekki segja að við vorum
svona óþolandi krúttpar sem var
alltaf að dúllast eitthvað fyrir
hvort annað. Sumir jafnvel gengu
það langt að kalla okkur fullkom-
ið par. Ég læt slíkar athugasemd-
ir liggja á milli hluta en við pöss-
uðum upp á okkur, bæði sem ein-
staklinga og sem par. Við gáfum
hvort öðru loforð um að vera
parið sem gerir allt saman og
mætir á alla viðburði sem fjöl-
skylda. Svo kom barnið og svo
börnin. Nýr raunveruleiki blasti
við. Bóndadagur varð bara að
köldum degi í janúar en ekki
sólar hring af ástarjátningum.
Rómantíkin í dái
Ég játa að ég hef gersamlega
misst allt rómantískt kúl eftir að
ég varð mamma. Ég er gleymin,
utan við mig, syfjuð, útbíuð í hori,
með krónískt samviskubit og hár
á undarlegum stöðum. Ég þarf að
hafa gífurlega fyrir því að muna
eftir því að kyssa kveðjukoss-
inn á morgnana og gaman-að-sjá-
þig-kossinum eftir langan vinnu-
dag. Í árdaga sambandsins fórum
við ekki að sofa öðruvísi en í knúsi
eftir góðan sleik. Í dag hvíla tvö
lítil börn á milli okkar og ég man
eiginlega ekki hvenær við sofn-
uðum síðast í kúri. Hvað þá eftir
nætur sleik.
Hann fékk gjafabréf í róman-
tíska helgarferð með undirritaðri í
jólagjöf frá börnunum sínum. Það
breyttist úr slefandi rómans yfir
rauðvíni og súkkulaði í organdi
frekjukast í Target með popp á víð
og dreif í bráðnuðum ís. Börnin
trompa allt. Alltaf. Rómans verður
undir krakkaknúsi. Ætli þessi lesn-
ing fari ekki að verða getnaðar-
vörn fyrir marga lesendur á þess-
um tímapunkti. Fyrir ykkur hin
sem enn lesið hef ég eitt að segja,
þetta er tímabil. Þetta líður hjá.
Lífið er alls konar tímabil og ég
veit að börnin munu ekki sofa uppí
endalaust, þau verða sjálfstæð-
ari og ég mun gefa ástinni meira
svigrúm. Þangað til þá verður lág-
stemmdari rómans að duga.
MAMMAN
DRAP RÓMANTÍKINA
Bóndadagur
varð bara að
köldum degi
í janúar en
ekki sólahring
af ástarjátn-
ingum.
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
Heilbrigðir
fætur
Maí mánuður er alþjóðlegur fótverndarmánuður.
Íslenskir fótaaðgerðafræðingar verða
með fræðslu í sundlaugum landsins
laugardaginn 16. maí á milli kl. 10 og 14.
Í ár leggjum við áherslu á fætur unga fólksins.
Mikilvægt er að hugsa vel um fæturna og
kaupa góða skó sem hæfa viðkomandi.
Of litlir skór geta aflagað fæturna.
Verið velkomin í
sundlaugarnar
16. maí,
og fáið ráðleggingar
varðandi fæturna.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Heilsuvísir
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
0
-0
2
4
C
1
6
4
0
-0
1
1
0
1
6
3
F
-F
F
D
4
1
6
3
F
-F
E
9
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K