Fréttablaðið - 15.05.2015, Síða 30
8 • LÍFIÐ 15. MAÍ 2015
Laxaborgari með dillsósu
og franskar sætkartöflur
350 g ferskur lax, beinhreinsaður
1 egg
2 msk. sojasósa
1 tsk. rifið engifer
1 rautt chili
2-3 dl brauðrasp
Salt og nýmalaður pipar
150 g sesamfræ til að hjúpa
með
1 Saxið laxinn niður með hníf
og setjið í skál.
2 Blandið hinum hráefnunum
saman við og mótið í fjóra
laxaborgara.
3 Veltið borgurunum upp úr
sesamfræjum og steikið við
miðlungshita í um það bil 2-3
mínútur á hvorri hlið.
Dillsósa
Hnefafylli dill, saxað
Börkur og safi úr einni límónu
2 dl majónes
salt og svartur pipar
Maukið saman í matvinnsluvél
eða með skeið.
Franskar sætkartöflur
Sætar kartöflur eru ansi bragð-
góðar. Þær passa við hvaða
máltíð sem er, þær innihalda
minni sykur en venjulegar kart-
öflur og eru stútfullar af C-vít-
amíni og trefjum. Mér finnst
gott að sjóða þær, steikja þær,
grilla þær og baka þær í ofni
eins og ég ætla að gera núna.
Sætar kartöflur skornar í af-
langar sneiðar eins og franskar
kartöflur. Þeim er svo velt upp
úr ólífuolíu, maldonsalti, gróf-
um pipar og góðri kryddjurta-
blöndu, til dæmis Best á allt frá
Pottagöldrum. Kartöflurnar bak-
aðar við 220 gráður í um 30
mínútur.
LAXASTEIK OG LAXABORGARI
MEÐ FRÖNSKUM SÆTKARTÖFLUM
Eva Laufey bauð upp á lax á tvo vegu í þættinum Matargleði á Stöð 2 í gærkvöldi og ættu þessir réttir að henta vel þegar
sest er að snæðingi í sólinni. Lax er hollur og góður fiskur sem passar vel hvort heldur sem er á grillið eða beint á pönnuna.
Matarvísir
Ofnbakaður lax
í hnetuhjúpi
„Hollur og góður kostur t.d. í
matarboð eða bara hversdags.
Berið gjarnan fram með bök-
uðum kartöflum og jógúrtdress-
ingu.“
1 laxaflak
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar
hunangs-dijonsinnep
Hnetuhjúpur
100 g hnetur, t.d. hesli- og
pekanhnetur
4 msk. brauðrasp
steinselja
börkur af einni sítrónu
1 msk. olía
2 hvítlauksrif, fínt rifin
sjávarsalt
1 Hitið ofninn í 180°C.
2 Snyrtið laxaflakið og setjið
í eldfast mót eða á pappírs-
klædda bökunarplötu.
3 Kryddið laxinn til með salti og
pipar og penslið sinnepinu yfir
hann. Dreifið hnetuhjúpnum yfir
og þjappið honum vel ofan í
sinnepið með höndunum, þann-
ig að hann haldist vel á. Bakið
í 15 mínútur. Takið þá laxinn út
úr ofninum og látið hann standa
í 5 mínútur áður en þið berið
hann fram en þannig eldast
hann aðeins lengur.
Jógúrtdressing
2 dl grískt jógúrt
1 hvítlauksgeiri
1 msk. hunangs-dijonsinnep
smátt söxuð steinselja
salt og pipar
Blandið öllu saman og bragðbætið
með salti og pipar.
Laxaborgari er góð og holl tilbreyting frá hefðbundnum hamborgara og sætar kartöflur eru hollari útgáfa af frönskum kartöflum.
Hnetuhjúpurinn fer
vel saman við mjúka
áferð laxins.
www.lyfogheilsa.is Kringlunni
Chanel kynning í
Lyfjum & heilsu Kringlunni
dagana 14.-17. maí.
20% afsláttur
af öllum vörum frá Chanel
Gréta Boða kynnir
nýtt CC krem frá Chanel
og veitir faglega ráðgjöf.
Eiginleikar nýja CC kremsins:
· Rakagefandi
· Húðholur 34% minna sýnilegar
og roði 52% minna sýnilegur
· Hefur mengunarvörn
· Sólarstuðull SPF 50
· Kemur í þremur litum 20, 30, 40
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
F
-C
7
0
C
1
6
3
F
-C
5
D
0
1
6
3
F
-C
4
9
4
1
6
3
F
-C
3
5
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K