Fréttablaðið - 28.08.2015, Page 17

Fréttablaðið - 28.08.2015, Page 17
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is Verð frá aðeins 2.290.000 kr. Þér á eftir að líka vel við ŠKODA Fabia. Glæsileg hönnunin nær niður í minnstu smáatriði og gerir aksturinn skemmtilegri hvert sem þú ferð. Það er engin tilviljun að ŠKODA Fabia skyldi vera valinn bíll ársins af WhatCar? og hljóta Red Dot hönnunarverðlaunin 2015. Komdu og prófaðu nýjan ŠKODA Fabia. Hlökkum til að sjá þig. GRÍPUR MEIRA EN ATHYGLINA Fabia – nýi verðlaunagripurinn frá ŠKODA s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17F Ö s T u D A G u R 2 8 . á G ú s T 2 0 1 5 Ég skora á Alþingi að hækka strax lífeyri aldraðra og öryrkja jafn mikið og lágmarkslaun hækk- uðu 1. maí sl. eða um 31 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin gildi frá 1. maí þannig að lífeyrisþegar fái 5 mánaða hækkun með septem- berhækkun, þegar hækkunin taki gildi eða 155 þúsund krónur. Alþingi samþykki þessa hækkun strax og það kemur saman 8. september. Allir flokkar á Alþingi taki höndum saman um þessa sjálfsögðu leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja. Náist þverpólitísk samstaða um þessa leið- réttingu á kjörum aldraðra og öryrkja er unnt að afgreiða frumvarp um hana á einum degi. Þjóðin öll mundi standa með Alþingi í þessu máli og álit Alþingis mundi stóraukast. Algert lágmark fyrir lífeyrisþega Einhleypir ellilífeyrisþegar, sem ein- ungis hafa tekjur frá almannatrygg- ingum, hafa í dag 225 þúsund krónur á mánuði frá TR fyrir skatt og 192 þúsund krónur á mánuði eftir skatt. Við leiðréttingu Alþingis mundi þessi upphæð hækka í 256 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt og 211 þúsund eftir skatt. Það eru öll ósköpin. Skatturinn Alþingi Íslendinga hækki lífeyri aldraðra strax jafn mikið og lágmarkslaun Björgvin Guðmundsson formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Það er engin spurning, að þeir aldraðir og öryrkjar, sem einungis hafa tekjur frá TR eiga rétt á aðstoð samkvæmt stjórnarskránni. Þeir hefðu hins vegar átt að fá hana miklu fyrr. kjARAmáL tekur sitt og ellilífeyrisþeginn heldur aðeins hluta af hækkuninni. Í rauninni erum við hér að tala um algert lág- mark til þess að lifa af fyrir einstakling. Ef húsnæðiskostnaður er hár dugar þetta ekki. Það þarf til viðbótar að koma aðstoð frá sveitarfélagi. Lífeyrir TR til lífeyrisþega á að vera skattfrjáls. Alþingi þyrfti einnig að samþykkja, að næstu 3 árin fengju aldraðir og öryrkjar sömu hækkun og láglaunafólk, þ.e. hækkun upp í 300 þúsund krónur á mánuði eins og láglaunafólk á að fá. Eiga rétt á þessu samkvæmt stjórnarskránni Við erum hér að tala um einhleypa lífeyrisþega en síðan ættu aðrir aldraðir og öryrkjar að hækka til- svarandi samkvæmt útreikningum Tryggingastofnunar ríkisins. Stjórnvöld, Alþingi og ríkisstjórn, hafa skert kjör aldraðra og öryrkja á miðju ári. Á sama hátt getur Alþingi hvenær sem er ársins hækkað lífeyri aldraðra og öryrkja. Það skiptir engu máli þó ekki sé lokið afgreiðslu nýrra fjárlaga. Stjórnarskráin er æðri fjár- lögum og öllum öðrum lögum. Og samkvæmt 76. grein stjórnarskrár- innar á ríkið að aðstoða þá, sem þurfa aðstoð vegna elli og örorku. Sannan- lega þurfa þeir aldraðir og öryrkjar, sem verst eru staddir aðstoð. Það er engin spurning, að þeir aldraðir og öryrkjar, sem einungis hafa tekjur frá TR, eiga rétt á aðstoð samkvæmt stjórnarskránni. Þeir hefðu hins vegar átt að fá hana miklu fyrr. Sama gildir um þá, sem eru með mjög lágan líf- eyri úr lífeyrisssjóði. Best að miða við lágmarkslaun Ï tengslum við þetta mál ætti Alþingi ef til vill einnig að samþykkja á ný eldri viðmiðun fyrir breytingar á lífeyri aldr- aðra og öryrkja, þ.e að miða ætti við breytingar á lágmarkslaunum verka- fólks, þegar lífeyri væri breytt. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, lét breyta þessari viðmiðun þannig, að nú á að miða við launaþróun í stað lágmarkslauna en lífeyrir þó aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs. Hann lýsti því yfir í tengslum við þessa breytingu, að hún yrði hagstæðari líf- eyrisþegum en eldra ákvæði. Það hafa seinni tíma stjórnmálamenn ekki viljað viðurkenna. Þeir hafa verið að reikna út minni hækkun fyrir lífeyris- þega en láglaunamenn hafa fengið. Því er einfaldast að færa orðalagið til fyrra horfs svo ekki þurfi að deila um viðmiðunina. Alþingi sameinist um afgreiðsluna Það er ekki oft, sem Alþingi sameinast um afgreiðslu mála. Oftast fær almenn- ingur þá mynd af Alþingi, að þar sé hver höndin upp á móti annarri. En nú gefst Alþingi tækifæri til þess að sameinast um mikið sanngirnis- og réttlætismál og skapa jákvæðari mynd af störfum þingsins. 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 E 5 -5 4 A 4 1 5 E 5 -5 3 6 8 1 5 E 5 -5 2 2 C 1 5 E 5 -5 0 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.