Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2015, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 28.08.2015, Qupperneq 28
Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is Enginn viðbættur sykur, ekkert ger.VILTU HRÖKKVA Í GÍRINN? Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott! Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi. HUGSAÐU UM HOLLUSTUNA! Enginn viðbættur sykur, ekkert ger.VILTU HRÖKKVA Í GÍRINN? Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott! Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi. HUGSAÐU UM HOLLUSTUNA! Enginn viðbættur sykur, ekkert ger.VILTU HRÖKKVA Í GÍ INN? Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott! Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi. HUGSAÐU UM HOLLUSTUNA! Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott! Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hrökkbrauðið á Íslandi. Enginn viðbættur sykur, ekkert ger.VILTU HRÖKKVA Í GÍRINN? Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott! Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi. HUGSAÐU UM HOLLUSTUNA! M aría Dalberg fædd- ist í Danmörku og ólst þar upp til sex ára aldurs en þá flutti hún á Sel- tjarnarnes þar sem hún sleit barnsskónum. Að grunnskóla loknum lá leið hennar í Mennta- skólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist. Snemma sótti hugur hennar að listinni og sem barn fékk hún að velja sér hljóð- færi til að læra á. „Þegar ég var sex ára þá fannst mér fiðlan vera flottasta hljóðfæri í heimi og lærði ég á hana meðfram grunnskóla og fram í mennta- skóla. Ég var komin á sjöunda stig og átti stutt eftir í lokapróf- ið þegar annað í lífinu tók við. Ég spila þó á fiðluna mína við og við en væri til í að gefa mér meiri tíma í það,“ segir María. Tækifæri í leiklistinni Að menntaskóla loknum fór María í dönsku í Háskólanum og lauk þaðan BA-prófi. „Ætli það hafi ekki verið áhugi minn á tungumálum og bókmennt- um sem dreif mig í námið. Ég var líka með ágætisgrunn í dönsku eftir að hafa búið þar sem barn.“ Leiklistarbakterían var þó aldrei langt undan þrátt fyrir að María reyndi ítrekað að losa sig við hana. „Ég tók þátt í leikfélaginu bæði í mennta- skóla sem og í Háskólanum en þorði kannski aldrei fyllilega að hella mér út í hana. Það kom þó að því að ég lét undan og hélt utan til náms.“ María uppfyllti ævintýraþrána og hélt utan til London þar sem hún sótti um og komst inn í hinn virta leik- listarskóla Drama Centre Lond- on en hann er hluti af Central St. Martins College, hönnun- ar- og listaskólanum þekkta. „Ég var orðin tuttugu og sex ára þegar ég loksins lét verða af því að hefja nám í leiklist, ætli það teljist ekki frekar í eldri kantin- um í þessum geira,“ segir María og hlær. Nokkuð margir þekkt- ir leikarar hafa lokið námi frá þessum skóla og má þar helst nefna Colin Firth, James Bond sjálfan eða Pierce Brosnan og Em iliu Clarke, leikkonuna úr Game of Thrones. „Nokkrir þekktir Íslendingar hafa einn- ig sótt skólann en ég veit til þess að Steinunn Ólína útskrif- aðist þaðan sem og Jón Gunn- ar Þórðar son leikstjóri og Heiða Rún Sigurðardóttir leikkona.“ Það er enginn leikur að vera í leiklistarnámi og krefst námið mikils af nemendum sem það sækja. „Ég nánast bjó í skólan- um á þessum tíma enda mikil vinna á bak við hvert verkefni ef vel átti að vera.“ Eftir út- skrift fékk María umboðsmann og tækifæri til þess að prófa sig áfram í leiklistarheiminum. Hún fékk tækifæri til að leika í leikhúsum og hennar stærsta hlutverk var aðalhlutverk í leik- verki eftir Strindberg með sjálf- stæðum leikhópi í Soho leikhús- inu. Heimþráin fór þó að gera vart við sig og leitaði María sí- fellt í fleiri verkefni hér heima. Það kom svo að því að þráin eftir heimahögunum varð er- lenda ævintýrinu yfirsterkari og María flutti alfarið heim til Íslands fyrir rúmum tveimur árum. „Ég var búin að vera að vinna með Braga Ólafssyni rit- höfundi að leikgerð fyrir leik- hús upp úr skáldsögunni hans Gæludýrin. Sú vinna er enn í gangi, það verður gaman að sjá verkið lifna við á sviðinu einn góðan veðurdag,“ segir María. Jóga varð lífsstíll Leiklistin krefst mikils af lík- ama og sál. Í náminu úti í Lond- on kynnist María jóga og stund- aði það stíft meðfram náminu. „Mér fannst jógaæfingarnar skila sér vel í því sem ég var að fást við enda leikarar mikið að vinna með líkamann og nauð- synlegt að vera í góðu líkamlega og andlegu formi. Eftir námið sökkti ég mér af alvöru í jóga og þá sérstaklega Ashtanga jóga. Ég fann að þarna var ég komin á rétta hillu ásamt leiklistinni.“ Eftir að María sneri aftur heim til Íslands hélt hún áfram jóga- iðkun og ákvað svo í kjölfarið að læra að kenna öðrum þessa dásamlegu list að iðka jóga. „Eftir að ég kom heim iðkaði ég Ashtanga jóga áfram í Yoga Shala, hjá Ingibjörgu Stefáns- dóttur. Það vildi svo vel til að hún var einmitt að fara af stað með jógakennaranám og bauð mér að vera með. Á þessu tíma- bili hugsaði ég með mér að ég hefði gott af þessu þó að ég færi ekki endilega að kenna jóga.“ Námið stóð í ár og að því loknu fór hún strax að kenna og jók við sig í jógafræðunum í Banda- ríkjunum. „Ég fann að eftir námið þá þyrsti mig í meira og fór í þrjá mánuði til New York og var í læri hjá Ashtanga jóga- gúrú sem heitir Eddie Stern og er með jógastúdíó í Soho á Man- hattan. Þar var ég að æfa með frægum einstaklingum eins og Willem Dafoe Hollywood-leik- ara og rapparanum Mike D úr Beastie Boys, sem var mjög JÓGAMOTTAN ER SPEGILL SJÁLFSMYNDAR 6 • LÍFIÐ 28. ÁGÚST 2015 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 E 5 -5 4 A 4 1 5 E 5 -5 3 6 8 1 5 E 5 -5 2 2 C 1 5 E 5 -5 0 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.