Fréttablaðið - 28.08.2015, Page 29
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Heilsu Qigong
5 helstu ástæður þess að iðka qigong
Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi
í heilsurækt þar sem saman fer qi, sem merkir “lífskraftur”, og gong,
sem merkir “nákvæmar æfingar”.
Skráning
í síma
553 8282
1. Aukin vellíðan og lífsþróttur
Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og
æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og
minnkar kólesteról.
2. Dregur úr þrálátum sársauka
Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama
getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá
liðagigt.
3. Betra blóðstreymi
Með sérstökum öndunaræfingum getur
þú aukið súrefnisflæði í líkamanum.
4. Dregur úr spennu
Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi.
Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi
og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð.
5. Byggir upp sjálfsvirðingu
Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.
Finndu okkur á Facebook
áhugavert. Þetta var eitt af því
allra besta sem ég hef gert fyrir
sjálfa mig.” María hefur sér
hæft sig í Ashtanga jóga og Vin
yasa jóga og kennir núna í glæ
nýrri jógastöð sem heitir Sólir
og er úti á Granda í Vesturbæn
um. „Fyrir mér er jóga lífsstíll
og jafnmikilvægt og að borða og
sofa. Ég byrja daginn á því að
gera jóga og kenni tíma klukk
an hálfsjö á morgnana fjóra
daga vikunnar,“ segir Maríu og
bætir svo við að jóga sé eitthvað
sem flestir ættu að tileinka sér
því það sé í rauninni svo marg
brotið og styrki bæði líkamann
og hugann. „Fyrir utan jógaæf
ingarnar þá er jóga svo miklu
meira og eftir því sem þú stund
ar það oftar þá opnast nýr heim
ur sem styrkir andlegu hliðina.
Jóga hefur kennt mér að þekkja
sjálfa mig betur, ég líki oft jóga
mottunni við spegil því á henni
geturðu lesið í líkamlegt og and
legt ástand.“
Fyrsta stóra hlutverkið
Þessa dagana vinnur María
að undirbúningi á sýningunni
„Sími látins manns“ eftir banda
ríska leikskáldið Sarah Ruhl,
sem frumsýnt verður á vordög
um á þessu leikári. „Þetta er
bráðfyndið leikrit um nándina
sem við öll þráum en eigum ekki
alltaf auðvelt með. Tæki eins
og snjallsími, með öllum sínum
upplýsingum og tengimöguleik
um, getur virkað eins og ger
eyðingartól í mannlegum sam
skiptum og búið til þrúgandi
tómarúm.“ segir María. Sjálf
leikur hún aðalpersónuna Nínu
sem finnur síma látins manns
og reynir eftir bestu getu að
búa til nánd á milli fjölskyldu
og vina mannsins í gegnum sím
ann. Þessar tilraunir Nínu hafa
ófyrirsjáanlegar afleiðingar
sem í senn eru hennar glötun og
björgun, því hún kynnist líka
stóru ástinni.
„Við erum með frábæra ís
lenska staðfærslu, leikritið ger
ist í okkar nútíma í okkar nær
umhverfi og allir ættu að geta
speglað sig á einhvern hátt í
persónunum. Þetta verður fynd
ið og óbærilega siðferðislega
rangt og á vel við í íslensku
samfélagi eins og það er í dag,“
segir María. Leikstjóri verks
ins er ekki af verri endanum,
en leikkonan Brynhildur Guð
jónsdóttir hefur tekið það að
sér. „Þetta er fyrsta stóra leik
stjórnar verkefnið hennar Bryn
hildar í atvinnuleikhúsi. En
Brynhildur hefur verið mikil
fyrirmynd Maríu í leikhúsinu
og segir hún það mikinn heiður
að vinna með henni. „Ég sökkti
mér í verkin hennar Sarah
Ruhl þegar ég bjó í New York
og kolféll fyrir þessu verki,
Sími látins manns. Það vill svo
skemmtilega til að Sarah Ruhl
var einn af kennurum Brynhild
ar þegar hún var að læra leik
ritaskrif við Yale háskóla. Við
erum báðar miklir aðdáendur
hennar og því spenntar að túlka
þetta verk á okkar hátt.“ María
Dalberg er svo sannarlega fjöl
hæf og hæfileikarík manneskja
sem sífellt leitar að nýju ævin
týrum og upplifunum sem svo
skila sér aftur á svið og út til
okkar sem horfa, það verður
gaman að fylgjast með því sem
hún tekur upp á í framtíðinni.
M
YN
D
A
A
LB
Ú
M
IÐ
„Eftir námið sökkti ég
mér af alvöru í jóga
og þá sérstaklega
Ashtanga jóga. Ég
fann að þarna var
ég komin á rétta hillu
ásamt leiklistinni.“
María kennir
jóga í Sólum,
jógastúdíói
fjórum sinnum
í viku.
María og Bryn-
hildur Guðjóns-
dóttir standa
saman að sýn-
ingunni Sími
látins manns.
María ásamt
Lárusi, kærasta
sínum.
LÍFIÐ 28. ÁGÚST 2015 • 7
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-5
4
A
4
1
5
E
5
-5
3
6
8
1
5
E
5
-5
2
2
C
1
5
E
5
-5
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K