Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2015, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 28.08.2015, Qupperneq 50
Tekjur tónlistarmanna af spilun tónlistar þeirra á tónlistarveitunni Spotify hafa verið gagnrýndar enda greiðsla fyrir hverja spilun ekki há. Flytjandi lags og útgefandi lags skipta með sér tæpri einni krónu fyrir eina hlustun á laginu, sem er ekki mikið miðað við þá vinnu sem oftast hefur verið varið í lagið. Höfundar lagsins fá greitt fyrir streymi verka sinna í gegnum sitt h ö f u n d a r ­ réttar félag og er sú greiðsla nokkru lægri en það sem kemur í hlut f ly t j a n d a o g ú t g e f a n d a lagsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs­ ins kveður samningur STEFs og flestra höfundaréttarfélaga við Spotify á um að tólf prósentum af öllum tekjum Spotify á viðkomandi landsvæði sé skipt niður á höfunda. Samtals fara 70 prósent af tekjum Spotify til rétthafa, tólf prósent til höfunda og 58 prósent sem skiptast á flytjanda og útgefanda. „Sú fjárhæð sem höfundar eru að fá frá höfundaréttarsamtökum fyrir hverja spilun á tónlistarveitum er ekki föst og getur verið breytileg eftir því í hvaða landi streymið fer fram svo og uppgjörstímabilum, tekjum tónlistarveitunnar á hverjum tíma og heild­ armagni streymis,“ segir Guðrún Björk Bjarna­ dóttir, framkvæmda­ stjóri STEFs. „Aðalvandamálið við Spotify er að mínu mati að áskriftargjaldið er of lágt, það er kjarni vandans eða þá að þjón­ ustan er einfaldlega of fullnægjandi fyrir þetta lága gjald. Spotify greiðir samtals sjötíu prósent af öllum sínum tekjum til rétthafa, þannig að ég tel að vandinn liggi í því að áskriftargjaldið er of lágt – eða að áskrifendur séu enn ekki nógu margir,“ segir Eiður Arnarsson, fram­ kvæmdastjóri Félags hljómplötufram­ leiðenda. Áskriftargjald á Spotify um 1.500 kr. Guðrún Björk segir þó að aðalvanda­ málið hér á landi hvað varðar tekjur höfunda af tónlistarveitum sé að hegð­ un íslenskra neytenda sé að nokkru leyti ólík neyslumynstri annarra þjóða. „95 prósent af okkar tekjum af t.d. Spotify fer til erlendra höfunda og því fara aðeins fimm prósent af tekjum af streyminu hér á landi til íslenskra rétthafa. Íslendingar eru því miður ekki að streyma mikið íslenskri tónlist. Almennt eru neytendur lítið að leita að tónlist til að streyma og láta sér nægja að láta mata sig með erlendum laga­ listum. Það er eitthvað sem STEF getur ekkert gert í, en hefur áhrif á okkar meðlimi,“ útskýrir Guðrún Björk. Haraldur Leví Gunnarsson, útgefandi hjá Record Records, skrifaði pistil fyrir skömmu þar sem hann segir að lögum hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur hafi verið streymt rúmlega 473 þúsund sinnum á streymisveitum á borð við Spotify eftir útgáfu plötunnar Tvær plánetur. Áætl­ aðar tekjur af streyminu eru um 400 þúsund krónur, eða sem samsvarar tekjum af sölu á 200 plötum. „Ég kynnti mér starfsemi Spotify mikið í kringum lokaritgerðina mína í Háskólanum. Þetta er framtíðin en þetta er enn þá svo nýtt og enn í lausu lofti. Ég fíla þetta og nota þessa þjónustu  en ég veit ekki hvort þetta muni skila hagnaði fyrir litla listamenn eins og á Íslandi. Með tíð og tíma verða fleiri áskrifendur að þjónustunni,  sem gefa meiri tekjur. Ég væri samt alveg til í að tveimur krónum væri skipt á milli flytjanda og útgefanda frekar en tæpri krónu,“ segir Arnar Freyr Frosta­ son úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur. Loka­ ritgerðin hans í viðskiptafræði ber titil­ inn „Þetta er djöfulsins hark“ – Lifað á listinni á íslenskum tónlistarmarkaði og var ætlað að leiða í ljós hvort og hvern­ ig tónlistarfólk getur lifað á listinni á íslenskum markaði. „Meðaljóninn sem keypti sér eina til tvær plötur á ári var að eyða fimm til sex þúsund krónum á ári í tónlist. Ef þessi meðaljón er með áskrift hjá Spotify eyðir hann 18.000 krónum á ári í tón­ list. Það er mikilvæg og jákvæð breyting og aukin tekjuöflun hjá sumum. En sé litið á aðra hlið peningsins þá er maður sem hefur verið að kaupa tíu plötur á ári, og var þá vanur að eyða um þrjátíu til fjörutíu þúsund krónum á ári, að borga miklu minna með sinni Spotify­áskrift, ef hún kemur alfarið í staðinn fyrir plötukaupin,“ útskýrir Eiður. Á Íslandi eru um 22.000 manns sem borga áskriftargjaldið en í heildina eru um 40.000 manns sem notfæra sér tónlistarveituna og í hverjum mánuði hækkar þessi tala enda augljóst mál að tónlistarveitur á netinu, eru komnar til að vera og eru framtíðin. Tónlistarveitur gefa lítið í aðra hönd Flytjandi og útgefandi skipta með sér tæpri krónu fyrir hverja spilun á Spotify, á meðan höfundur fær ekki hálfa krónu. Gunnar Leó Pálsson gunnarleo@frettabladid.is 2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R34 l í F i ð ∙ F R É t t A B l A ð i ðLífið Lögin á plötunni Tvær plánetur með Úlfi Úlfi  eru með 473 þúsund streymi, um 34 þúsund plötuhlustanir. Sem þýðir að flytjandi og útgefandi skipta með sér um 420.000 krónum. Beneath the Skin kom út í júní 2015. Lögin á plötunni Beneath The Skin eru með 179 þúsund streymi, tæpar 14 þúsund plötu- hlustanir. Sem þýðir að flytjandi og útgefandi skipta með sér um 162.000 krónum. Haraldur Leví Gunnarsson Eiður Arnarsson Of Monsters and Men 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 E 5 -7 2 4 4 1 5 E 5 -7 1 0 8 1 5 E 5 -6 F C C 1 5 E 5 -6 E 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.